Yfirlýsing Stjörnunnar vegna draugamarksins: Það sem gerist inni á vellinum á að ráða úrslitum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. apríl 2021 13:31 Stjarnan er í 6. sæti Olís-deildar kvenna. vísir/vilhelm Handknattleiksdeild Stjörnunnar sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem farið er yfir ástæður þess að hún kærði úrslit leiksins gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna 13. febrúar. KA/Þór vann leikinn, 26-27, þrátt fyrir að hafa bara skorað 26 mörk í leiknum. Stjarnan kærði úrslit leiksins. Dómstóll HSÍ vísaði kröfu Stjörnunnar frá en áfrýjunardómstóll HSÍ dæmdi félaginu í hag og komst að þeirri niðurstöðu að endurtaka þyrfti leikinn, KA/Þór til lítillar gleði. Málið er enn fyrir dómstólum HSÍ og niðurstöðu í því er að vænta seinna í vikunni að því er kemur fram í yfirlýsingu Stjörnunnar. Þar fer Stjarnan nánar yfir það af hverju sú ákvörðun að kæra úrslit leiksins hafi verið tekin. Aðalástæðan sé sú að það sem gerist inni á vellinum eigi að ráða úrslitum, ekki það sem er skráð á leikskýrslu, sé það ekki í samræmi við það sem raunverulega gerðist. „Ef leikskýrsla ræður meira um úrslit leikja en það sem raunverulega gerist á vellinum er grundvallaratriðum íþróttarinnar kastað á glæ. Slíkt er íþróttinni hættulegt og bíður upp á hættu að upplýsingar séu ranglega skráðar á skýrslu með vísvitandi hætti til að hafa áhrif á úrslit leikja,“ segir í yfirlýsingunni. Stjarnan segir einnig rangt að félagið hafi kært sjálft sig enda sé litið á starfsfólk ritaraborð sem fulltrúa HSÍ en ekki heimaliðsins. Úrslit umrædds leiks gætu haft mikil áhrif á lokaniðurstöðu Olís-deildar kvenna. KA/Þór er með eins stigs forskot á toppi deildarinnar en Stjarnan í 6. sætinu. Tveimur umferðum er ólokið en óvíst er hvenær keppni í deildinni hefst á ný. Tilkynning Stjörnunnar
KA/Þór vann leikinn, 26-27, þrátt fyrir að hafa bara skorað 26 mörk í leiknum. Stjarnan kærði úrslit leiksins. Dómstóll HSÍ vísaði kröfu Stjörnunnar frá en áfrýjunardómstóll HSÍ dæmdi félaginu í hag og komst að þeirri niðurstöðu að endurtaka þyrfti leikinn, KA/Þór til lítillar gleði. Málið er enn fyrir dómstólum HSÍ og niðurstöðu í því er að vænta seinna í vikunni að því er kemur fram í yfirlýsingu Stjörnunnar. Þar fer Stjarnan nánar yfir það af hverju sú ákvörðun að kæra úrslit leiksins hafi verið tekin. Aðalástæðan sé sú að það sem gerist inni á vellinum eigi að ráða úrslitum, ekki það sem er skráð á leikskýrslu, sé það ekki í samræmi við það sem raunverulega gerðist. „Ef leikskýrsla ræður meira um úrslit leikja en það sem raunverulega gerist á vellinum er grundvallaratriðum íþróttarinnar kastað á glæ. Slíkt er íþróttinni hættulegt og bíður upp á hættu að upplýsingar séu ranglega skráðar á skýrslu með vísvitandi hætti til að hafa áhrif á úrslit leikja,“ segir í yfirlýsingunni. Stjarnan segir einnig rangt að félagið hafi kært sjálft sig enda sé litið á starfsfólk ritaraborð sem fulltrúa HSÍ en ekki heimaliðsins. Úrslit umrædds leiks gætu haft mikil áhrif á lokaniðurstöðu Olís-deildar kvenna. KA/Þór er með eins stigs forskot á toppi deildarinnar en Stjarnan í 6. sætinu. Tveimur umferðum er ólokið en óvíst er hvenær keppni í deildinni hefst á ný. Tilkynning Stjörnunnar Huldumark í TM höllinni – um hvað er deilt og hvað er Stjarnan að kæra?! Við hjá handknattleiksdeild Stjörnunnar höfum fengið ýmsar fyrirspurnir vegna atviks sem átti sér stað í leik Stjörnunnar og KA/Þór í Olísdeild kvenna þann 13. febrúar sl. í TM höllinni í Garðabæ. Samkvæmt upptökum og öðrum gögnum frá umræddum leik er það óumdeilt að bæði lið skoruðu 26 mörk með löglegum hætti í leiknum. Hins vegar voru gerð mistök á ritaraborði sem fólust í því að mark sem Stjarnan skoraði var ranglega skráð á lið KA/Þórs. Þegar dómarar fá ábendingu um að það vanti mark hjá Stjörnunni þá fara þeir fram á við ritaraborð að bæta eigi marki við hjá Stjörnunni sem var gert en markið hins vegar ekki tekið af KA/Þór. Grundvallarástæða þess að Stjarnan kærir framkvæmd þessa leiks er að það er okkar staðfasta trú að það sem gerist inni á vellinum og þau mörk sem þar eru skoruð eru það sem eigi að ráða úrslitum leikja en ekki það sem skráð er á leikskýrslu ef það er ekki í samræmi við það sem raunverulega gerðist. Ef leikskýrsla ræður meira um úrslit leikja en það sem raunverulega gerist á vellinum er grundvallaratriðum íþróttarinnar kastað á glæ. Slíkt er íþróttinni hættulegt og bíður upp á hættu að upplýsingar séu ranglega skráðar á skýrslu með vísvitandi hætti til að hafa áhrif á úrslit leikja. Er Stjarnan að kæra sjálfan sig? Nei, það hefur komið skýrt fram í málflutningi fyrir dómi HSÍ að litið er á starfsfólk ritaraborðs sem fulltrúa HSÍ á leikjum en ekki fulltrúa heimaliðs. Enda þurfi þau að hafa fengið þjálfun og viðurkenningu frá HSÍ til að sinna störfum á ritaraborði og fara eftir tilmælum dómara og eða eftirlitsdómara. Í málflutningi Kvennaráðs KA/Þórs er því m.a. haldið fram að engin leikregla hafi verið brotin í umræddum leik og því ekki tilefni til að kæra leikinn. Það er hins vegar ekki rétt, leikregla 9.1 segir skýrt til um hvernig hægt er að skora löglegt mark í handknattleik. Þar er útskýrt með nákvæmum hætti hvernig bolti þarf að fara yfir línu til þess að um löglegt mark sé að ræða. Það er algjörlega skýrt samkvæmt öllum gögnum að boltinn fór 26 sinnum yfir marklínu hjá hvoru liði í leiknum. Þegar lögleg mörk er talin samkvæmt upptökum þá fór leikurinn jafntefli 26 – 26. Til skýringa má nefna það að skráning marka er skv. leikreglum á ábyrgð dómara en eftir að farið var að taka hraða miðju þá færðist sú ábyrgð í raun og veru á ritaraborð án þess að reglunum hafi verið breytt í samræmi við raunverulega framkvæmd. Það er okkar mat að nauðsynlegt uppfærsla á reglum HSÍ sé aðkallandi og gerðar séu ráðstafanir til þess að hægt sé að skera úr um slík vafaatriði á staðnum í hvejum leik með því að nýta upptökur og nútímatækni auk skráning í HB stats. Það skal tekið fram að umrætt atvik er ekki einstakt í sögu handbolta í efstu deildum þ.e. að mark sé ranglega skráð eða vanskráð á lið. En í þessu tilfelli er sennilega um að ræða eitt áhrifamesta mark í sögu íslensk kvennahandbolta og jafnvel handbolta yfir höfuð þar sem að sá möguleiki er fyrir hendi að umrætt mark skeri úr um það hvaða lið verði Olísdeildarmeistari 2021. Stjarnan telur því mjög mikilvægt að fá skorið úr um þessi atriði með skýrum hætt og skapa umgjörð sem er skýr og til þess fallin að íþróttin fái að njóta sín með því að láta það sem raunverulega gerist á handboltavellinum ráða úrslitum. f.h. stjórnar handknattleiksdeildar Stjörnunnar Lárus Halldórsson varaformaður. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Huldumark í TM höllinni – um hvað er deilt og hvað er Stjarnan að kæra?! Við hjá handknattleiksdeild Stjörnunnar höfum fengið ýmsar fyrirspurnir vegna atviks sem átti sér stað í leik Stjörnunnar og KA/Þór í Olísdeild kvenna þann 13. febrúar sl. í TM höllinni í Garðabæ. Samkvæmt upptökum og öðrum gögnum frá umræddum leik er það óumdeilt að bæði lið skoruðu 26 mörk með löglegum hætti í leiknum. Hins vegar voru gerð mistök á ritaraborði sem fólust í því að mark sem Stjarnan skoraði var ranglega skráð á lið KA/Þórs. Þegar dómarar fá ábendingu um að það vanti mark hjá Stjörnunni þá fara þeir fram á við ritaraborð að bæta eigi marki við hjá Stjörnunni sem var gert en markið hins vegar ekki tekið af KA/Þór. Grundvallarástæða þess að Stjarnan kærir framkvæmd þessa leiks er að það er okkar staðfasta trú að það sem gerist inni á vellinum og þau mörk sem þar eru skoruð eru það sem eigi að ráða úrslitum leikja en ekki það sem skráð er á leikskýrslu ef það er ekki í samræmi við það sem raunverulega gerðist. Ef leikskýrsla ræður meira um úrslit leikja en það sem raunverulega gerist á vellinum er grundvallaratriðum íþróttarinnar kastað á glæ. Slíkt er íþróttinni hættulegt og bíður upp á hættu að upplýsingar séu ranglega skráðar á skýrslu með vísvitandi hætti til að hafa áhrif á úrslit leikja. Er Stjarnan að kæra sjálfan sig? Nei, það hefur komið skýrt fram í málflutningi fyrir dómi HSÍ að litið er á starfsfólk ritaraborðs sem fulltrúa HSÍ á leikjum en ekki fulltrúa heimaliðs. Enda þurfi þau að hafa fengið þjálfun og viðurkenningu frá HSÍ til að sinna störfum á ritaraborði og fara eftir tilmælum dómara og eða eftirlitsdómara. Í málflutningi Kvennaráðs KA/Þórs er því m.a. haldið fram að engin leikregla hafi verið brotin í umræddum leik og því ekki tilefni til að kæra leikinn. Það er hins vegar ekki rétt, leikregla 9.1 segir skýrt til um hvernig hægt er að skora löglegt mark í handknattleik. Þar er útskýrt með nákvæmum hætti hvernig bolti þarf að fara yfir línu til þess að um löglegt mark sé að ræða. Það er algjörlega skýrt samkvæmt öllum gögnum að boltinn fór 26 sinnum yfir marklínu hjá hvoru liði í leiknum. Þegar lögleg mörk er talin samkvæmt upptökum þá fór leikurinn jafntefli 26 – 26. Til skýringa má nefna það að skráning marka er skv. leikreglum á ábyrgð dómara en eftir að farið var að taka hraða miðju þá færðist sú ábyrgð í raun og veru á ritaraborð án þess að reglunum hafi verið breytt í samræmi við raunverulega framkvæmd. Það er okkar mat að nauðsynlegt uppfærsla á reglum HSÍ sé aðkallandi og gerðar séu ráðstafanir til þess að hægt sé að skera úr um slík vafaatriði á staðnum í hvejum leik með því að nýta upptökur og nútímatækni auk skráning í HB stats. Það skal tekið fram að umrætt atvik er ekki einstakt í sögu handbolta í efstu deildum þ.e. að mark sé ranglega skráð eða vanskráð á lið. En í þessu tilfelli er sennilega um að ræða eitt áhrifamesta mark í sögu íslensk kvennahandbolta og jafnvel handbolta yfir höfuð þar sem að sá möguleiki er fyrir hendi að umrætt mark skeri úr um það hvaða lið verði Olísdeildarmeistari 2021. Stjarnan telur því mjög mikilvægt að fá skorið úr um þessi atriði með skýrum hætt og skapa umgjörð sem er skýr og til þess fallin að íþróttin fái að njóta sín með því að láta það sem raunverulega gerist á handboltavellinum ráða úrslitum. f.h. stjórnar handknattleiksdeildar Stjörnunnar Lárus Halldórsson varaformaður.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild kvenna Stjarnan KA Þór Akureyri Tengdar fréttir Vilja að dómurinn í draugamarksmálinu verði ógildur og nýir dómarar taki það fyrir KA/Þór hefur óskað eftir því að dómur áfrýjunardómstóls HSÍ vegna leiks liðsins gegn Stjörnunni í Olís-deild kvenna verði ógildur. KA/Þór furðar sig jafnframt á vinnubrögðum áfrýjunardómstólsins og skrifstofu HSÍ. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá KA/Þór. 23. mars 2021 11:47 „Ótrúleg vinnubrögð af hálfu HSÍ og áfrýjunardómstólsins“ Framkvæmdastjóri KA er gáttaður á úrskurði áfrýjunardómstóls HSÍ um að endurtaka eigi leik KA/Þórs og Stjörnunnar í Olís-deild kvenna. Akureyringar hafa eitt og annað við málsmeðferðina að athuga og segja að gleymst hafi að tilkynna þeim um áfrýjunina. 19. mars 2021 12:15 Endurtaka þarf leik Stjörnunnar og KA/Þórs Samkvæmt heimildum Vísis hefur Áfrýjunardómstóll HSÍ ógilt úrslit Stjörnunnar og KA/Þórs og komist að þeirri niðurstöðu að endurtaka þurfi leikinn. 19. mars 2021 11:13 Draugamarkið í Mýrinni stendur Úrslitin í leik Stjörnunnar og KA/Þórs í Olís-deild kvenna 13. febrúar síðastliðinn standa þrátt fyrir að eitt marka KA/Þórs hafi verið oftalið. Dómstóll HSÍ hefur úrskurðað í málinu. 1. mars 2021 14:44 Misskilningurinn í Mýrinni Draugamarkið svokallaða í leik Stjörnunnar og KA/Þórs í Olís-deild kvenna í handbolta var að sjálfsögðu til umfjöllunar í Seinni bylgjunni. 17. febrúar 2021 10:30 Síðasta sambærilega dæmið frá 2007 og þá stóðu úrslitin Kæra handknattleiksdeildar Stjörnunnar á úrslitum í leik gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna á laugardaginn er komin inn á borð dómstóls HSÍ. KA/Þór vann leikinn, 26-27, en mistök á ritaraborði urðu til þess að eitt marka liðsins var oftalið. Síðasta sambærilega dæmið um að úrslit hafi verið kærð vegna rangrar skráningar marka er frá 2007. 15. febrúar 2021 11:31 Garðbæingar kæra eigin framkvæmd - Óska eftir jafntefli Stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar hefur kært framkvæmd leiks Stjörnunnar og KA/Þór í Olís-deild kvenna sem fram fór í gær. 14. febrúar 2021 19:31 Draugamark í Garðabæ í sigri KA/Þór KA/Þór vann dramatískan sigur á Stjörnunni í gær. Samkvæmt heimasíðu Handknattleikssambandsins endaði leikurinn 27-26 en norðanstúlkur virðast bara hafa skorað 26 mörk í leiknum. 14. febrúar 2021 11:10 Mest lesið Var rekinn en hefndi sín: „Hefði verið búið að berja hann í spað“ Körfubolti Dramatískt flautumark tryggði Liverpool mikilvægan sigur Enski boltinn Eze aftur í aðalhlutverki gegn Tottenham og Arsenal með fimm stiga forskot Enski boltinn „Mín mistök að hafa ekki komið Bjögga betur inn í mótið“ Handbolti Búin í aðgerð og ber sig vel eftir að hafa fengið skauta í augað Sport Kokteilar á línuna: Guardiola vill að sínir menn drekki vel og njóti Enski boltinn Missti tilfinninguna í fingrunum eftir bræðiskastið á HM Sport Furðufréttir Vetrarólympíuleikanna: Framhjáhald, stóra typpamálið og skemmdar medalíur Sport Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Enski boltinn Slær niður veggi í HSÍ eftir viðburðaríkan fyrsta mánuð í starfi Handbolti Fleiri fréttir KA hafði betur gegn ÍBV í spennutrylli á Akureyri Auðvelt hjá Magdeburg og Íslendingar áberandi Benedikt ekki brotinn en frá næstu vikurnar „Mín mistök að hafa ekki komið Bjögga betur inn í mótið“ Þorsteinn Leó með fjögur í fjórða sigri Porto í röð Púðurskot hjá Viggó og áfram gengur ekkert hjá Göppingen Þórsarar upp úr fallsæti Valskonur völtuðu yfir Stjörnuna Uppgjör: Fram - ÍR 26-34 | Öruggur og mikilvægur sigur ÍR Eyjakonur höfðu betur í Suðurlandsslagnum Slær niður veggi í HSÍ eftir viðburðaríkan fyrsta mánuð í starfi Snorri beið spenntur eftir ræðu Dags og er sammála honum Viktor Gísli með 48 prósent markvörslu í stórsigri Valsmenn með þriggja stiga forskot á toppnum eftir stórsigur Framarar safna áfram sigrunum eftir Evrópuflakkið Óli P. Ólsen er látinn Burðarás snýr aftur norður en bíður fyrst eftir barni Grínaðist í Antoni: „Við erum báðir rauðhærðir“ „Ekki endilega eitthvað sem ég þarf að upplifa aftur“ Uppgjör: Haukar - FH 25-32| Haukar létu valta yfir sig á heimavelli Mosfellingar enduðu taphrinuna og Haukakonur unnu fyrir norðan Sigurganga stráka Guðjóns Vals heldur áfram en tap hjá Bjarka Díana í lokaprófi og missir af mikilvægum landsleik Ómar Ingi markahæstur þegar Magdeburg tryggði sig inn í átta liða úrslit Elín Klara lék best allra á vellinum Viktor Gísli fagnaði sigri og sæti í átta liða úrslitunum Sara Dögg tekin inn í hópinn fyrir næstu leiki í undankeppni EM Reynir markahæstur í Íslendingaslagnum Fjórða tapið í röð hjá lærisveinum Arnórs Fyrsta tap Gísla og Ómars kom gegn stórveldinu Sjá meira
Vilja að dómurinn í draugamarksmálinu verði ógildur og nýir dómarar taki það fyrir KA/Þór hefur óskað eftir því að dómur áfrýjunardómstóls HSÍ vegna leiks liðsins gegn Stjörnunni í Olís-deild kvenna verði ógildur. KA/Þór furðar sig jafnframt á vinnubrögðum áfrýjunardómstólsins og skrifstofu HSÍ. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá KA/Þór. 23. mars 2021 11:47
„Ótrúleg vinnubrögð af hálfu HSÍ og áfrýjunardómstólsins“ Framkvæmdastjóri KA er gáttaður á úrskurði áfrýjunardómstóls HSÍ um að endurtaka eigi leik KA/Þórs og Stjörnunnar í Olís-deild kvenna. Akureyringar hafa eitt og annað við málsmeðferðina að athuga og segja að gleymst hafi að tilkynna þeim um áfrýjunina. 19. mars 2021 12:15
Endurtaka þarf leik Stjörnunnar og KA/Þórs Samkvæmt heimildum Vísis hefur Áfrýjunardómstóll HSÍ ógilt úrslit Stjörnunnar og KA/Þórs og komist að þeirri niðurstöðu að endurtaka þurfi leikinn. 19. mars 2021 11:13
Draugamarkið í Mýrinni stendur Úrslitin í leik Stjörnunnar og KA/Þórs í Olís-deild kvenna 13. febrúar síðastliðinn standa þrátt fyrir að eitt marka KA/Þórs hafi verið oftalið. Dómstóll HSÍ hefur úrskurðað í málinu. 1. mars 2021 14:44
Misskilningurinn í Mýrinni Draugamarkið svokallaða í leik Stjörnunnar og KA/Þórs í Olís-deild kvenna í handbolta var að sjálfsögðu til umfjöllunar í Seinni bylgjunni. 17. febrúar 2021 10:30
Síðasta sambærilega dæmið frá 2007 og þá stóðu úrslitin Kæra handknattleiksdeildar Stjörnunnar á úrslitum í leik gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna á laugardaginn er komin inn á borð dómstóls HSÍ. KA/Þór vann leikinn, 26-27, en mistök á ritaraborði urðu til þess að eitt marka liðsins var oftalið. Síðasta sambærilega dæmið um að úrslit hafi verið kærð vegna rangrar skráningar marka er frá 2007. 15. febrúar 2021 11:31
Garðbæingar kæra eigin framkvæmd - Óska eftir jafntefli Stjórn handknattleiksdeildar Stjörnunnar hefur kært framkvæmd leiks Stjörnunnar og KA/Þór í Olís-deild kvenna sem fram fór í gær. 14. febrúar 2021 19:31
Draugamark í Garðabæ í sigri KA/Þór KA/Þór vann dramatískan sigur á Stjörnunni í gær. Samkvæmt heimasíðu Handknattleikssambandsins endaði leikurinn 27-26 en norðanstúlkur virðast bara hafa skorað 26 mörk í leiknum. 14. febrúar 2021 11:10
Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Enski boltinn
Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Enski boltinn