Tróna á toppnum með sitt fyrsta lag í tvo áratugi Tinni Sveinsson skrifar 16. apríl 2021 20:00 Kenny Dope Gonzalez og Louie Vega eru Masters At Work. Donna Ward/Getty Images PartyZone gaf í dag út nýjan topplista þar sem fyrsta lag frá sveitinni Masters At Work í 20 ár trónir á toppnum.
Mánaðarlegir listar dansþáttarins eru vel þekktir en þar sem ekki kom út listi í mars er listinn núna í apríl enn innihaldsríkari en venjulega. „Við leitum til plötusnúðanna og biðjum þá um að gramsa í plötukössunum sínum og láta okkur hafa uppáhalds lögin sín. Einnig grömsum við sjálfir í helstu miðlum tónlistarpressunnar og skoðum allt það sem er að koma út,“ segir Helgi Már Bjarnason, einn stjórnenda PartyZone. Topp 30 listinn orðinn 30 ára Topp 30 listi PartyZone var fyrst kynntur á útvarpsstöðinni Útrás 13. apríl árð 1991. Hann er því 30 ára gamall núna í vikunni og hefur verið vinsælasti liður þáttarins alla tíð síðan. „Á listanum þessa vikuna er að finna funheita danstónlist úr ýmsum áttum, sumarlegt sundlagabakkahús yfir í þétta dansslagara fyrir mjög stór herbergi. Listamenn eins og Groove Armada, Booka Shade, íslenskt teknó frá OHM, írsku drottninguna Roisin Murphy og hina kanadísku Jayda G. Einnig má nefna líka endurkomur frá Basement Jaxx, Dimitri From Paris og húsgoðsagnirnar Masters At Work, sem tróna á toppnum með fyrsta lag sitt í tvo áratugi. Lagið heitir Mattell og er óður til samnefnds trommuheila. Þeir eru að endurútgefa allt sem kom út frá MAW Records á digital veitunum (m.a. Spotify) og má sömuleiðis búast með meira nýmeti frá þeim félögum,“ segir Helgi. Hér fyrir neðan geta áhugasamir rýnt í listann í heild sinni. Í þættinum er vikulegi liðurinn Múmía kvöldsins á sínum stað. Það er topplag PZ listans sem var kynntur á Rás 2 í apríl 2001 og er því 20 ára í dag. Lagið er stórdansslagarinnn Star 69 og má heyra það hér fyrir neðan. PartyZone-Podcast er frumfluttur á Vísi snemma á föstudögum og er þátturinn síðar aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Mixcloud síðu þáttarins.
PartyZone Tengdar fréttir Mixuðu níu tíma dansveislu fyrir páskana Páskaþáttur af tónlistarþættinum PartyZone 2021 fór í loftið á Vísi um helgina. Þema þáttarins að þessu sinni var árið 2000. „Árið 2000 var frábært danstónlistar ár og skemmtanalífið hér á landi var mjög viðburðaríkt. Það má segja að plötusnúðamenningin og danssenan hafi verið á algerum yfirsnúningi þetta herrans aldamótaár árið 2000,“ segir í lýsingu aðstandenda þáttanna. 4. apríl 2021 16:42 Dans og báns úr MH á toppi PartyZone listans Nýr PartyZone hlaðvarpsþáttur er kominn á „öldur netvakans“. Fyrsti PartyZone listi ársins, topp 30 fyrir febrúarmánuð, er kynntur og spilaður í þættinum. Árið fer af stað með látum samkvæmt þáttastjórnendum og má finna frábæra nýja tónlist úr heimi danstónlistarinnar í þættinum. Sem fyrr byggir listinn á vali plötusnúðanna og á „nokkuð ígrunduðu grúski þáttarstjórnenda.“ 26. febrúar 2021 17:11 PartyZone birtir árslistann fyrir 2020 Það er árlegur viðburður að umsjónarmenn danstónlistarþáttarins PartyZone hói í fjöldan allan af plötusnúðum og taki saman árslista yfir það sem stóð upp úr í danstónlist á árinu. 29. janúar 2021 13:20 Mest lesið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Lífið Fleiri fréttir Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar „Ég á mjög auðvelt með að standa með þessu öllu saman“ Pétur Jökull er Pj Glaze Tileinkar lagið trans fólki: „Hefur verið mikill tilfinningarússíbani“ Ingi Bauer, VÆB og Stefán Berg bjóða upp á Stemningu Frumsýning á Vísi: „Þetta er alveg ný hlið á mér“ Sjá meira
Mixuðu níu tíma dansveislu fyrir páskana Páskaþáttur af tónlistarþættinum PartyZone 2021 fór í loftið á Vísi um helgina. Þema þáttarins að þessu sinni var árið 2000. „Árið 2000 var frábært danstónlistar ár og skemmtanalífið hér á landi var mjög viðburðaríkt. Það má segja að plötusnúðamenningin og danssenan hafi verið á algerum yfirsnúningi þetta herrans aldamótaár árið 2000,“ segir í lýsingu aðstandenda þáttanna. 4. apríl 2021 16:42
Dans og báns úr MH á toppi PartyZone listans Nýr PartyZone hlaðvarpsþáttur er kominn á „öldur netvakans“. Fyrsti PartyZone listi ársins, topp 30 fyrir febrúarmánuð, er kynntur og spilaður í þættinum. Árið fer af stað með látum samkvæmt þáttastjórnendum og má finna frábæra nýja tónlist úr heimi danstónlistarinnar í þættinum. Sem fyrr byggir listinn á vali plötusnúðanna og á „nokkuð ígrunduðu grúski þáttarstjórnenda.“ 26. febrúar 2021 17:11
PartyZone birtir árslistann fyrir 2020 Það er árlegur viðburður að umsjónarmenn danstónlistarþáttarins PartyZone hói í fjöldan allan af plötusnúðum og taki saman árslista yfir það sem stóð upp úr í danstónlist á árinu. 29. janúar 2021 13:20