Gripu strax til aðgerða en fengu litlar upplýsingar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. apríl 2021 12:15 Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að gripið hafi verið inn í um leið og í ljós kom að viðkomandi hefði brotið sóttkví. Þá var viðkomandi hins vegar búinn að smita aðra. Vísir/Vilhelm Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hvetur fólk til þess að dæma ekki alla vegna hegðunar fárra, jafnvel þótt sú hegðun hafi alvarlegar afleiðingar. 44 greindust með Covid-19 og má rekja smitin til aðila sem kom hingað til lands og sinnti ekki sóttkví. Víðir sagði að um leið og komið hefði í ljós sóttkvíarbrot hefði verið gripið til aðgerða. „Aðgerðirnar fóru í gang strax um mánaðamótin og var fylgt eftir,“ segir Víðir en málið var til umfjöllunar á upplýsingafundinum í dag. Ekki var annað að skilja á Víði en að illa hefði gengið að rekja ferðir hins smitaða sem sinnti ekki sóttkví reglum samkvæmt. Smit orðin þegar gripið var til aðgerða „Eins og alltaf í smitrakningu þá byggist hún á upplýsingum sem viðkomandi aðilar gefa okkur. Hverja þeir hafa hitt eða umgengist. Það eru oft einkenni, þegar við erum að fást við brot í þessum málaflokki, að upplýsingarnar eru mjög takmakaðar,“ segir Víðir. Afskipti lögreglu af viðkomandi hafi þó hafist strax upp úr mánaðamótum. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir segir engan drátt hafa orðið á því að grípa inn í þegar í ljós kom að viðkomandi hefði ekki sinnt sóttkví. „En þá voru smitin orðin,“ segir Þórólfur. Hann minnir á að það tekur eina og jafnvel tvær vikur fyrir fólk að veikjast og smitin að koma í ljós. „Við erum alltaf að vinna tveimur vikum á eftir í því sem hefur gerst.“ Telur ekki tilefni til að hækka sektir 25 af 27 sem greindust smitaðir í gær voru í sóttkví. Þórólfur segir þetta fólk þó aðeins hafa verið í sóttkví síðan á föstudag eða laugardag og því vel mögulegt að þau hafi smitað fleiri í aðdraganda þess að þau fóru í sóttkví. Víðir segir mál einstaklingsins sem sinnti ekki sóttkví á borði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann hefði ekki upplýsingar um það hvernig málið stæði. Sá sem brýtur gegn reglum um sóttkví á von á sekt á bilinu 50 til 250 þúsund. Sóttvarnalæknir og í framhaldinu heilbrigðisráðherra beindu þeim tilmælum til ríkissaksóknara á dögunun, eftir að reglugerð um sóttvarnahús stóðst ekki lög, að hækka sektir eða fullnýta heimildirnar. Ríkissaksóknari segir í svari sínu til heilbrigðisyfirvalda vænlegra til árangurs að skikka fólk sem rjúfi sóttkví í sóttvarnarhús. Það hafi meiri fælingarmátt en hækkun sekta. Í tilfelli ferðamanna geti reynst erfitt að innheimta sektirnar þegar þeir séu farnir úr landi. Því sé ekki tilefni til að hækka sektir. Dæmi séu um að sektarheimild hafi verið fullnýtt, í tilfelli þriggja erlendra ferðamanna sem fóru á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur en áttu að vera í sóttkví. Voru þeir sektaðir um 250 þúsund krónur, hver fyrir sig. Svar ríkissaksóknara til heilbrigðisyfirvalda Ríkissaksóknari hefur farið yfir beiðni í 7. tölulið tillagnanna sóttvarnalæknis þess efnis að sektir vegna brota á sóttkví verði hækkaðar til muna eða a.m.k. tryggt að sektarheimildir séu fullnýttar. Ríkissaksóknari leitaði af þessu tilefni upplýsinga hjá lögreglustjórum um fjárhæð sekta vegna brota gegn skyldu til að fara/vera í sóttkví og til hvaða atriða ákærendur lögreglustjóra litu til við mat á alvarleika brotanna og þar með fjárhæð sekta, en skv. fyrirmælum ríkissaksóknara nr. 1/2021 ákvarðast sektin eftir alvarleika brots kr. 50.000 – 250.000. Sektir lögreglustjóra hafa í einhverju tilvikum verið að fjárhæð kr. 250.000, s.s. í tilviki þar sem um var að ræða brot þriggja erlendra ferðamanna á skyldu til að vera í sóttkví. Sekt ákvörðuð 250.000 fyrir hvern og einn. Tilkynnt var um þá á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur. Voru þeir undir áhrifum áfengis og innan um aðra ótengda einstaklinga. Þá má nefna dæmi um það þegar sekt var ákveðin kr. 50.000 en í því máli var um að ræða einstakling sem fór í bifreið með öðrum einstakling sem ekki var í sóttkví. Ríkissaksóknari telur ekki efni til að hækka sektir vegna brota á sóttkví enda eru sektarheimildir ríflegar miðað við sektir almennt hér á landi. Þá má ætla að sú heimild sóttvarnarlæknis til að ákveða að einstaklingur sem ekki hefur fylgt reglum um sóttkví eða einangrun skuli sæta sóttkví eða einangrun í sóttvarnahúsi hafi mun meiri fælingarmátt en hækkun sekta. Þá er á það bent að stór hluti þeirra sem verða uppvísir að brotum á reglum um sóttkví eru erlendir ferðamenn og af því leiðir að erfitt getur reynst að innheimta sektir eftir að viðkomandi er farinn úr landi. Því er heppilegra að sektarfjárhæðin sé nokkuð viðráðanleg þannig að hinn erlendi ferðamaður geti greitt sektina og þá sem fyrst, jafnvel á vettvangi. Í því sambandi má velta því upp við ríkislögreglustjóra hvort ekki væri æskilegt að útbúa vettvangsskýrsluform fyrir þessi brot. Í nýjum fyrirmælum sínum um brot gegn sóttvarnarlögum og reglum settum skv. þeim nr. 4/2021, sem gefin voru út í dag, mun ríkissaksóknari, í samræmingarskyni, gera grein fyrir sjónarmiðum sem lögreglustjórum og ákærendum þeirra ber að líta til við mat á alvarleika brotanna/fjárhæð sektanna en í fyrirmælunum segir: Við mat á alvarleika brotanna verði m.a. litið til þess í hvaða aðstæðum sakborningur hefur verið þegar ætlað brot á sér stað, bæði hvað varðar samneyti við aðra einstaklinga, og þá hversu marga, hvar viðkomandi er staddur og hvort hann hafi farið á einn eða fleiri staði, hvort sakborningur gætti varúðar þrátt fyrir brotið, eða hvort hann sýndi af sér vítaverða háttsemi að öðru leyti s.s. með því að vera undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna innan um aðra ótengda einstaklinga. Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Innlent Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Innlent Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Erlent Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Innlent Færeyingar vilja fullveldi Erlent Fleiri fréttir Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Sjá meira
Víðir sagði að um leið og komið hefði í ljós sóttkvíarbrot hefði verið gripið til aðgerða. „Aðgerðirnar fóru í gang strax um mánaðamótin og var fylgt eftir,“ segir Víðir en málið var til umfjöllunar á upplýsingafundinum í dag. Ekki var annað að skilja á Víði en að illa hefði gengið að rekja ferðir hins smitaða sem sinnti ekki sóttkví reglum samkvæmt. Smit orðin þegar gripið var til aðgerða „Eins og alltaf í smitrakningu þá byggist hún á upplýsingum sem viðkomandi aðilar gefa okkur. Hverja þeir hafa hitt eða umgengist. Það eru oft einkenni, þegar við erum að fást við brot í þessum málaflokki, að upplýsingarnar eru mjög takmakaðar,“ segir Víðir. Afskipti lögreglu af viðkomandi hafi þó hafist strax upp úr mánaðamótum. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir segir engan drátt hafa orðið á því að grípa inn í þegar í ljós kom að viðkomandi hefði ekki sinnt sóttkví. „En þá voru smitin orðin,“ segir Þórólfur. Hann minnir á að það tekur eina og jafnvel tvær vikur fyrir fólk að veikjast og smitin að koma í ljós. „Við erum alltaf að vinna tveimur vikum á eftir í því sem hefur gerst.“ Telur ekki tilefni til að hækka sektir 25 af 27 sem greindust smitaðir í gær voru í sóttkví. Þórólfur segir þetta fólk þó aðeins hafa verið í sóttkví síðan á föstudag eða laugardag og því vel mögulegt að þau hafi smitað fleiri í aðdraganda þess að þau fóru í sóttkví. Víðir segir mál einstaklingsins sem sinnti ekki sóttkví á borði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann hefði ekki upplýsingar um það hvernig málið stæði. Sá sem brýtur gegn reglum um sóttkví á von á sekt á bilinu 50 til 250 þúsund. Sóttvarnalæknir og í framhaldinu heilbrigðisráðherra beindu þeim tilmælum til ríkissaksóknara á dögunun, eftir að reglugerð um sóttvarnahús stóðst ekki lög, að hækka sektir eða fullnýta heimildirnar. Ríkissaksóknari segir í svari sínu til heilbrigðisyfirvalda vænlegra til árangurs að skikka fólk sem rjúfi sóttkví í sóttvarnarhús. Það hafi meiri fælingarmátt en hækkun sekta. Í tilfelli ferðamanna geti reynst erfitt að innheimta sektirnar þegar þeir séu farnir úr landi. Því sé ekki tilefni til að hækka sektir. Dæmi séu um að sektarheimild hafi verið fullnýtt, í tilfelli þriggja erlendra ferðamanna sem fóru á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur en áttu að vera í sóttkví. Voru þeir sektaðir um 250 þúsund krónur, hver fyrir sig. Svar ríkissaksóknara til heilbrigðisyfirvalda Ríkissaksóknari hefur farið yfir beiðni í 7. tölulið tillagnanna sóttvarnalæknis þess efnis að sektir vegna brota á sóttkví verði hækkaðar til muna eða a.m.k. tryggt að sektarheimildir séu fullnýttar. Ríkissaksóknari leitaði af þessu tilefni upplýsinga hjá lögreglustjórum um fjárhæð sekta vegna brota gegn skyldu til að fara/vera í sóttkví og til hvaða atriða ákærendur lögreglustjóra litu til við mat á alvarleika brotanna og þar með fjárhæð sekta, en skv. fyrirmælum ríkissaksóknara nr. 1/2021 ákvarðast sektin eftir alvarleika brots kr. 50.000 – 250.000. Sektir lögreglustjóra hafa í einhverju tilvikum verið að fjárhæð kr. 250.000, s.s. í tilviki þar sem um var að ræða brot þriggja erlendra ferðamanna á skyldu til að vera í sóttkví. Sekt ákvörðuð 250.000 fyrir hvern og einn. Tilkynnt var um þá á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur. Voru þeir undir áhrifum áfengis og innan um aðra ótengda einstaklinga. Þá má nefna dæmi um það þegar sekt var ákveðin kr. 50.000 en í því máli var um að ræða einstakling sem fór í bifreið með öðrum einstakling sem ekki var í sóttkví. Ríkissaksóknari telur ekki efni til að hækka sektir vegna brota á sóttkví enda eru sektarheimildir ríflegar miðað við sektir almennt hér á landi. Þá má ætla að sú heimild sóttvarnarlæknis til að ákveða að einstaklingur sem ekki hefur fylgt reglum um sóttkví eða einangrun skuli sæta sóttkví eða einangrun í sóttvarnahúsi hafi mun meiri fælingarmátt en hækkun sekta. Þá er á það bent að stór hluti þeirra sem verða uppvísir að brotum á reglum um sóttkví eru erlendir ferðamenn og af því leiðir að erfitt getur reynst að innheimta sektir eftir að viðkomandi er farinn úr landi. Því er heppilegra að sektarfjárhæðin sé nokkuð viðráðanleg þannig að hinn erlendi ferðamaður geti greitt sektina og þá sem fyrst, jafnvel á vettvangi. Í því sambandi má velta því upp við ríkislögreglustjóra hvort ekki væri æskilegt að útbúa vettvangsskýrsluform fyrir þessi brot. Í nýjum fyrirmælum sínum um brot gegn sóttvarnarlögum og reglum settum skv. þeim nr. 4/2021, sem gefin voru út í dag, mun ríkissaksóknari, í samræmingarskyni, gera grein fyrir sjónarmiðum sem lögreglustjórum og ákærendum þeirra ber að líta til við mat á alvarleika brotanna/fjárhæð sektanna en í fyrirmælunum segir: Við mat á alvarleika brotanna verði m.a. litið til þess í hvaða aðstæðum sakborningur hefur verið þegar ætlað brot á sér stað, bæði hvað varðar samneyti við aðra einstaklinga, og þá hversu marga, hvar viðkomandi er staddur og hvort hann hafi farið á einn eða fleiri staði, hvort sakborningur gætti varúðar þrátt fyrir brotið, eða hvort hann sýndi af sér vítaverða háttsemi að öðru leyti s.s. með því að vera undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna innan um aðra ótengda einstaklinga.
Svar ríkissaksóknara til heilbrigðisyfirvalda Ríkissaksóknari hefur farið yfir beiðni í 7. tölulið tillagnanna sóttvarnalæknis þess efnis að sektir vegna brota á sóttkví verði hækkaðar til muna eða a.m.k. tryggt að sektarheimildir séu fullnýttar. Ríkissaksóknari leitaði af þessu tilefni upplýsinga hjá lögreglustjórum um fjárhæð sekta vegna brota gegn skyldu til að fara/vera í sóttkví og til hvaða atriða ákærendur lögreglustjóra litu til við mat á alvarleika brotanna og þar með fjárhæð sekta, en skv. fyrirmælum ríkissaksóknara nr. 1/2021 ákvarðast sektin eftir alvarleika brots kr. 50.000 – 250.000. Sektir lögreglustjóra hafa í einhverju tilvikum verið að fjárhæð kr. 250.000, s.s. í tilviki þar sem um var að ræða brot þriggja erlendra ferðamanna á skyldu til að vera í sóttkví. Sekt ákvörðuð 250.000 fyrir hvern og einn. Tilkynnt var um þá á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur. Voru þeir undir áhrifum áfengis og innan um aðra ótengda einstaklinga. Þá má nefna dæmi um það þegar sekt var ákveðin kr. 50.000 en í því máli var um að ræða einstakling sem fór í bifreið með öðrum einstakling sem ekki var í sóttkví. Ríkissaksóknari telur ekki efni til að hækka sektir vegna brota á sóttkví enda eru sektarheimildir ríflegar miðað við sektir almennt hér á landi. Þá má ætla að sú heimild sóttvarnarlæknis til að ákveða að einstaklingur sem ekki hefur fylgt reglum um sóttkví eða einangrun skuli sæta sóttkví eða einangrun í sóttvarnahúsi hafi mun meiri fælingarmátt en hækkun sekta. Þá er á það bent að stór hluti þeirra sem verða uppvísir að brotum á reglum um sóttkví eru erlendir ferðamenn og af því leiðir að erfitt getur reynst að innheimta sektir eftir að viðkomandi er farinn úr landi. Því er heppilegra að sektarfjárhæðin sé nokkuð viðráðanleg þannig að hinn erlendi ferðamaður geti greitt sektina og þá sem fyrst, jafnvel á vettvangi. Í því sambandi má velta því upp við ríkislögreglustjóra hvort ekki væri æskilegt að útbúa vettvangsskýrsluform fyrir þessi brot. Í nýjum fyrirmælum sínum um brot gegn sóttvarnarlögum og reglum settum skv. þeim nr. 4/2021, sem gefin voru út í dag, mun ríkissaksóknari, í samræmingarskyni, gera grein fyrir sjónarmiðum sem lögreglustjórum og ákærendum þeirra ber að líta til við mat á alvarleika brotanna/fjárhæð sektanna en í fyrirmælunum segir: Við mat á alvarleika brotanna verði m.a. litið til þess í hvaða aðstæðum sakborningur hefur verið þegar ætlað brot á sér stað, bæði hvað varðar samneyti við aðra einstaklinga, og þá hversu marga, hvar viðkomandi er staddur og hvort hann hafi farið á einn eða fleiri staði, hvort sakborningur gætti varúðar þrátt fyrir brotið, eða hvort hann sýndi af sér vítaverða háttsemi að öðru leyti s.s. með því að vera undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna innan um aðra ótengda einstaklinga.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Innlent Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Innlent Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Innlent Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Erlent Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Innlent Færeyingar vilja fullveldi Erlent Fleiri fréttir Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Sjá meira