Ekki frammistaða sem verðskuldar Meistaradeildarsæti Valur Páll Eiríksson skrifar 24. apríl 2021 14:45 Jürgen Klopp var óánægður með sína menn. Getty Images/Clive Brunskill Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var að vonum ósáttur eftir 1-1 jafntefli liðs hans gegn Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Um er að ræða annan leikinn í röð þar sem Liverpool fær á sig jöfnunarmark undir lok leiks.
Mohamed Salah kom Liverpool yfir snemma leiks og stýrði heimamenn ferðinni frá A til Ö eftir það. Mörkin létu þó á sér standa sem kom í bakið á Englandsmeisturunum þegar Joe Willock jafnaði leikinn á 96. mínútu. Callum Wilson hafði þá jafnað skömmu áður en myndbandsdómarar dæmdu markið af. Svipað var uppi á teningunum á mánudagskvöld þegar Liverpool gerði 1-1 jafntefli við Leeds United þar sem þeir síðanefndu jöfnuðu seint í leiknum. Klopp afsakaði lið sitt ekki eftir leik. „Á sérstakan hátt þá berjumst við ekki nóg. Þetta er ekki vegna mistaka. Við vorum 70% með boltann og hefðum átt að hafa hann 80%. Þetta eru augnablik [sem ráða úrslitum]. Við sköpum nóg af færum, nýtum þau ekki, svo við þurfum að skapa meira og nýta það.“ sagði Klopp. Eftir jafnteflið er Liverpool í fimmta sæti deildarinnar, stigi frá Meistaradeildarsæti, en liðin í kringum þá rauðklæddu eiga leik inni. Aðspurður um Meistaradeild að ári sagði Klopp: „Ef þú verðskuldar það, þá verðskuldar þú það. Ég sá okkur ekki eiga skilið að spila í Meistaradeildinni út frá spilamennskunni í dag. Við höfum fimm leiki. Við lærum, eða við spilum ekki í Meistaradeild.“ Líkt og Klopp segir á Liverpool fimm leiki eftir í mótinu. Næstur þeirra er leikur við Manchester United á Old Trafford næstu helgi.
Meistaradeild Evrópu Enski boltinn Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Sjá meira