Fjallsárlón á meðal dýpstu stöðuvatna landsins Kjartan Kjartansson skrifar 9. maí 2021 09:01 Fjallsárlón er eitt þeirra jökullóna sem hafa myndast og stækkað ört á undanförnum áratugum. Það er nú á meðal dýpstu stöðuvatna landsins. Líklegt er að fleiri jökullón bætist í þann hóp á næstu árum og áratugum. Þorsteinn Sæmundsson Mælingar jarðvísindamanna á Fjallsárlóni á Breiðamerkursandi benda til þess að það sé um 130 metra djúpt þar sem það er dýpst. Þorsteinn Sæmundsson, jarðfræðingur við Háskóla Íslands, segir líkur á því að jökullón sem stækka nú ört vegna hops jökla eigi eftir að verða enn dýpri þegar fram líða stundir.
Fjallsárlón fyrir framan Fjallsjökul, skriðjökul sem gengur austur úr Öræfajökli, er eitt fjölda jökullóna sem hefur myndast og farið ört stækkandi vegna hlýnandi loftslags á undanförnum árum og áratugum. Talið er að lónið hafi byrjað að myndast í kringum 1945 og það hefur stækkað hratt síðan þá. „Þessi jökullón hafa verið að stækka hratt á undanförnum árum og áratugum,“ segir Þorsteinn við Vísi. Ef marka má lista yfir dýpstu stöðuvötn landsins sem kom fram í svari á Vísindavef Háskóla Íslands árið 2003 væri Fjallsárlón fjórða dýpsta vatn landsins. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands liggja ekki fyrir nýrri upplýsingar um dýpt stöðuvatna á Íslandi. Jöklar sverfa miklar dældir í landslagið og þegar þeir hörfa fyllir leysingarvatn trogin sem þeir skilja eftir sig. Í sumar mældi Þorsteinn Fjallsárlón með dýptarmæli til þess að kortleggja botninn og dýptardreifingu lónsins. Slík gögn gefa jarðvísindamönnum mikilvægar upplýsingar, meðal annars að átta sig á hvernig jökullinn hefur hörfað með tilliti til dýpis lónanna. Í spilaranum hér fyrir neðan má sjá drónamyndir frá því þegar bátur Köfunarþjónustunnar sigldi um Fjallsárlón með dýptarmæli síðasta sumar. Landsvirkjun styrkti verkefnið. Klippa: Dýptarmælingar á Fjallsárlóni Dýptarmælingar af þessu tagi hafa áður verið gerðar á Jökulsárlóni en þetta var í fyrsta skipti sem lón sem ekki er tengt sjó er mælt. „Þetta er gríðarlega mikilvægt að eiga þessi gögn og kortleggja þær miklu breytingar sem eru að eiga sér stað fyrir framan jökulsporða þar sem lón eru að myndast,“ segir Þorsteinn. Vísindamenn vissu það fyrir að Fjallsjökull hefði grafið sig töluvert niður þökk sé svonefndum íssjármælingum Háskóla Íslands. Íssjár senda bylgjur í gegnum ísinn og er ferðatími þeirra notaður til þess að meta þykkt hans. „Íssjármælingar hafa sýnt fram á að jöklarnir eru að grafa tiltölulega djúpa dali, langt niður fyrir núverandi sjávarmál,“ segir Þorsteinn. Þorsteinn Sæmundsson, jarðfræðingur hjá Háskóla Íslands, hefur rannsakað jökullón á Íslandi um árabil.Vísir/Stöð 2 Aðdjúpt lón Dýptarmælirinn í sumar sýndi að lónið er orðið um og yfir 130 metrar að dýpt. Yfirborð lónsins stendur um fimmtán metrum yfir núverandi sjávarmáli og því nær lónið að minnsta kosti 115 metra niður fyrir sjávarmál. Sérstaklega kom það Þorsteini á óvart hversu aðdjúpt Fjallsárlón er, það er að segja hversu skarpt það dýpkar frá ströndinni. „Þetta er ekki eins og í vötnum sem við getum vaðið út kannski tíu til tuttugu metra upp að mitti. Þá værirðu kannski kominn í tuttugu metra dýpi í þessum lónum eða meira,“ segir Þorsteinn. Dýptarmælingar eru vissum takmörkunum háðar en með því að bera saman íssjár- og dýptarmælingar segir Þorsteinn að fáist nákvæmari mynd af dýptardreifingu lónanna. Mælingarnar benda til þess að Fjallsjökull hafi hörfað mest þar sem lónið er dýpst. Þar sem vatnið er grynnra hafi jökullinn náð að halda betur í. Með því að bera saman hraða hörfunar jökla við dýptardreifingu lónanna er hægt að leggja mat á hvernig jöklar gætu hugsanlega hörfað í komandi framtíð og hversu hratt. Þorsteinn bendir þó á að margir þættir hafi áhrif á það. Almennt hörfi jöklar hraðar þar sem vatnsdýpi er meira og kelfing verður meiri. „Það eru gögn frá ísjármælingum sem segja okkur að þessi lón eigi eftir að verða ennþá dýpri eftir því sem jöklar hörfa lengra inn. Þegar jöklarnir eru horfnir úr þessum dölum þá munu myndast þar mörg djúp lón, þegar og ef þeir gera það,“ segir Þorsteinn. Sporður Fjallsjökul sem kelfir út í Fjallsárlón. Í baksýn er Öræfajökull sem Fjallsjökull gengur niður úr.Þorsteinn Sæmundsson Gefur gleggri mynd af hvað gæti gerst við skriður eða berghlaup Þorsteinn hefur undanfarin ár beint sjónum sínum að hættunni á skriðuföllum og berghlaupum úr óstöðugum hlíðum dala sem jöklarnir sverfa og skilja eftir fulla af vatni. Hann hefur varað við því að flóðbylgjur gætu myndast í jökullónum falli stórar skriður eða berghlaup í þau. Tiltölulega nýleg dæmi eru um slíkt hamfaraflóð á Íslandi. Þannig varð mikið vatnsflóð úr lóni fyrir framan Steinsholtsjökul árið 1967 þegar berghlaup féll í það. Má enn sjá merki þess í sethólum og stórgrýti í Steinsholtsdal. Fyrir rúmum áratug féll stórt berghlaup á Morsárjökul. Á undanförnum árum hafa fundist ummerki um óstöðugar hlíðar fyrir ofan hörfandi skriðjökla og lón þeirra. Þessar mælingar sem nú standa yfir gefa gleggri mynd af því hvernig lögun botns lónanna er og ekki síst hversu mikið vatn er í þessum lónum. Upplýsingar um vatnsmagn, dýpt og landslag botnsins eru nauðsynlegar við gerð líkana um hvað getur gerst ef skriður og berghlaup féllu í lónin. „Þetta skiptir allt miklu máli þegar við erum að tala um svona hafnarbylgjur sem myndu líklega myndast við að stór efnismassi félli ofan í lónin,“ segir Þorsteinn. Þá segir hann afar mikilvægt að fylgjast grannt með þeim öru breytingum sem eiga sér stað í þessu umhverfi. Fyrirhugað sé að mæla fleiri lón í sumar í samstarfi við Náttúrustofu Suðausturlands á Höfn í Hornafirði. Dýptardreifing Fjallsárlóns. Rauði liturinn sýnir dýpsta hluta lónsins við jökulsporðinn en sá blái grynnstu hluta þess.
Loftslagsmál Hornafjörður Tengdar fréttir Endurskapa hverfandi jöklana í kringum Höfn Tölvulíkön og drónatækni gerðu íslenskum og skoskum vísindamönnum kleift að endurskapa jökla í kringum Höfn í Hornafirði eins og þeir litu út fyrir fjörutíu og allt að 75 árum í nýrri stuttmynd. Á sama tíma sýna myndirnar glöggt hversu stórfelldar breytingar hafa orðið á jöklunum með áframhaldandi hnattrænni hlýnun af völdum manna. 15. mars 2021 07:00 Jöklarnir tapa um fjórum milljörðum tonna af ís á ári Íslenskir jöklar hafa tapað um fjórum milljörðum tonna af ís að meðaltali á ári undanfarin 130 ár og er rýrnun þeirra ein sú mesta á jörðinni utan heimskautanna. Um helmingur massatapsins hefur átt sér stað síðasta aldarfjórðunginn. 3. desember 2020 07:01 Mest lesið Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér Innlent „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Innlent Líkamsárás í farþegaskipi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl Erlent Fleiri fréttir Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Sjá meira
Endurskapa hverfandi jöklana í kringum Höfn Tölvulíkön og drónatækni gerðu íslenskum og skoskum vísindamönnum kleift að endurskapa jökla í kringum Höfn í Hornafirði eins og þeir litu út fyrir fjörutíu og allt að 75 árum í nýrri stuttmynd. Á sama tíma sýna myndirnar glöggt hversu stórfelldar breytingar hafa orðið á jöklunum með áframhaldandi hnattrænni hlýnun af völdum manna. 15. mars 2021 07:00
Jöklarnir tapa um fjórum milljörðum tonna af ís á ári Íslenskir jöklar hafa tapað um fjórum milljörðum tonna af ís að meðaltali á ári undanfarin 130 ár og er rýrnun þeirra ein sú mesta á jörðinni utan heimskautanna. Um helmingur massatapsins hefur átt sér stað síðasta aldarfjórðunginn. 3. desember 2020 07:01