Gróf og ástæðulaus aðför ASÍ að PLAY Birgir Jónsson skrifar 21. maí 2021 12:00 PLAY er stolt af því að vinna eftir íslenskum kjarasamningum enda íslenskt fyrirtæki sem er stofnað til þess að færa Íslendingum lægri flugfargjöld og efla íslenska ferðaþjónustu. Félagið skapar hundruð nýrra starfa á íslandi og þeir starfsmenn munu greiða sína skatta og gjöld á Íslandi auk þess sem önnur áhrif á íslenskt efnahagslíf verða verulega jákvæð og umtalsverð. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess nú um stundir eins og ritstjóri Markaðarins nefnir í leiðara sínum í Fréttablaðinu í dag. Félagið lauk nýverið hlutafjárútboði þar sem breiður hópur fagfjárfesta fjárfesti um 6 miljarða króna í félaginu. Þessi fjárfesting var gerð í kjölfarið á faglegri áreiðanleikakönnun þar sem öll aðalatriði rekstursins voru könnuð gaumgæfilega eins og vera ber í svona stórum verkefnum. Þar með talið voru kjarasamningar enda var það algjörlega skýrt af hálfu allra þessara aðila að þau mál þyrftu að vera fullkomlega í takt við lög og reglur. Þessi atriði voru því sérstaklega rannsökuð af sérfræðingum í kjaramálum. Lágmarkslaun lægsta taxta flugliða PLAY eru um 350 þúsund krónur, án vinnuframlags – heildartekjur nýráðinna um 500 þúsund Kjarasamningur sá sem Íslenska flugstéttafélagið gerði upprunalega við PLAY tók breytingum í kjölfar þessarar vinnu enda voru gerðir svokallaðir Lífskjarasamningar í millitíðinni sem fólu í sér talsverðar launahækkanir. Allra lægstu grunnlaunaflokkum þess samnings sem PLAY gerði við Íslenska flugstéttafélagið (ÍFF) var breytt til að mæta Lífskjarasamningunum með þeim hætti að greiðslur sem áður voru breytilegar voru gerðar fastar og tryggðar. Sem dæmi þá fær flugliði greidda breytilega þóknun af sölu veitinga og varnings um borð ofan á fastan grunnlaunataxta. Þessar greiðslur eru tryggðar hjá PLAY. Flugliði hjá fyrirtækinu fær að lágmarki 34 þúsund krónur á mánuði og oftast meira ef salan er hærri. Sama má segja með akstursgreiðslu, hún er tryggð að upphæð 51 þúsund krónur. Þannig mynda þessar greiðslur föst laun sem breytast ekkert þó að starfsmaður fari í fæðingarorlof, veikindaorlof eða annað slíkt. Þannig eru lágmarkslaun á lægsta taxta PLAY 350 þúsund krónur og halda ber til haga að hér er verið að taka dæmi um allra lægstu grunnlaun án vinnuframlags fyrir flugliða sem kemur alveg óreyndur að starfinu. Fyrir reyndan aðila geta þessi föstu laun verið allt að 450 þúsund krónur, án vinnuframlags. Ofan á þetta bætast ýmsar aðrar greiðslur sem verða til þess að mánaðarleg laun starfsmanna PLAY, reyndra sem óreyndra, eru algerlega samkeppnishæf í íslensku samfélagi þó að þau séu á sama tíma miklu hærri en gengur og gerist hjá þeim erlendum flugfélögum sem einnig eru að fljúga til Íslands. Í tilfelli hins nýja og óreynda starfsmanns eru heildartekjur um 500 þúsund í meðalmánuði. ASÍ ber saman epli og appelsínur en hefur þegar dregið alvarlegustu ásakanir sínar tilbaka Þessi aðför ASÍ hófst með þeim skilaboðum að PLAY væri að greiða laun sem ekki hefðu sést áður á Íslandi, væru langt undir lágmarkslaunum og jafnvel undir atvinnuleysisbótum í landinu. ASÍ brást við með þeim hætti að beina þeim tilmælum til nær allra launþega í landinu að þetta fyrirtæki ætti að sniðganga. Því skyldi útskúfað. Á sama tíma og þessi yfirlýsing ASÍ birtist þá birti Viðskiptablaðið greiningu á samanburði fastra launa PLAY og launa Icelandair sem blaðið kvaðst hafa gögn um. Sá samanburður var PLAY í hag þó að fyrirtækið hafi ekki sett þennan samanburð fram sjálft enda hefur PLAY engin gögn eða vitneskju um smáatriði í kjarasamningi þeim sem Icelandair byggir á. Slíkir samningar hafa alltaf verið mikið trúnaðarmál á milli samningsaðila, þangað til nú. Þar kom þetta skýrt fram og hér er tilvitnun; „Lægstu föstu laun PLAY eru rúm 350 þúsund, samanborið við 307 þúsund hjá Icelandair.“ Hér eru appelsínur og appelsínur bornar saman. Ennfremur kom fram að grunnlaun þau sem ASÍ vitnar í hjá PLAY (krónur 266.500) eru samkvæmt viðskiptablaðinu krónur 210.115 hjá Icelandair, og þetta er bein tilvitnun; „samkvæmt launatöflu í kjarasamningi Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) við Icelandair nema lægstu grunnlaun flugliða 210.115 krónum, það er 56.385 krónum minna en grunnlaun flugliða PLAY.“ Hér mætti segja að borin séu saman epli og epli. ASÍ heldur hinsvegar ítrekað fram rangfærslum í fjölmiðlum og ber saman föst laun Icelandair við grunnlaun PLAY. Þau bera saman appelsínur og epli. Ljóst er að bæða félögin greiða laun sem eru yfir lágmarkslaununum með því t.d. að tryggja fastar greiðslur eins og sölutryggingu og akstursgreiðslur. ASÍ vill ekki funda með PLAY, ASÍ vill knésetja PLAY PLAY tók til varna og benti á að ASÍ hefði ekki sýnt neinn raunverulegan vilja til að kynna sér málið, enda hafi ekki verið leitað til PLAY né ÍFF um útskýringar áður en félagsmenn ASÍ voru hvattir til að sniðganga það. Það var skotið fyrst og spurt svo sem er áfar ábyrgðarlaust við þær aðstæður sem ríkja í samfélaginu. Eftir að PLAY kom með sýnar útskýringar og birti upplýsingar úr kjarasamningi sínum þá hefur árás ASÍ breyst mikið og í mikilvægum atriðum því nú er áherslan á að laun hjá PLAY séu lægri en hjá Icelandair en ekki að þau séu lægri en lágmarkslaun í landinu eins og lagt var upp með fyrst og er rangt. Fyrst eru á annað hundrað þúsund manns hvattir til að sniðganga nýtt fyrirtæki vegna meintra undirboða og háttsemi sem ekkert okkar vill sjá í okkar samfélagi. Málið er sett fram af ASÍ með einföldum áróðri í þeim tilgangi að sefja fólk til fylgis við markmið ASÍ. Þegar ásakanir ASÍ eru afsannaðar þá eru hin meintu sakarefni allt í einu farin að snúast um samanburð á flóknum uppbyggingum kjarasamninga flugstétta við annað fyrirtæki sem er ekki í samanburðarhæfum rekstri við PLAY en ekki hvort hvort PLAY sé að greiða laun undir lágmarkslaunum. Auglóst er að ASÍ hefur áttað sig á að þau höfðu rangt fyrir sér, en vilja ekki gangast við því. Þetta eru vinnubrögð sem eru ekki samboðin samfélagi okkar og það er sorglegt að horfa upp á ASÍ misnota vald sitt með þessum hætti. Best væri að ASÍ ræddi þessi mál beint við þá aðila sem að málinu koma í stað þess að snúa hlutina úr samhengi í fjölmiðlum og setja fram með hætti sem forsvarmönnum þess ætti að vera fulljóst að eru ekki réttir enda hafa þeir ekki gert neitt í því að kynna sér þá. Höfundur er forstjóri Play. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Play Kjaramál Mest lesið Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar