Benítez gæti orðið næsti stjóri Gylfa Sindri Sverrisson skrifar 16. júní 2021 17:30 Rafael Benítez gæti snúið aftur í enska boltann, þar sem hann hefur stýrt Liverpool, Chelsea og Newcastle. Getty/Stu Forster Til greina kemur að Rafael Benítez, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool, verði næsti stjóri Everton. Nuno Espirito Santo er þó talinn líklegastur til að taka við starfinu.
Þetta fullyrðir BBC í dag og segir að Benítez hafi átt í viðræðum við Everton. Hann starfaði síðast í Englandi þegar hann stýrði Newcastle árin 2016-19. Eftir það tók hann við Dalian Professional í Kína en hætti þar í janúar og bar því að hann vildi tryggja betur öryggi fjölskyldu sinnar vegna kórónuveirufaraldursins. Benítez hefur áður unnið í Liverpool-borg þegar hann stýrði helstu erkifjendum Everton á árunum 2004-2010, þar sem hæst bar sigur í Meistaradeild Evrópu árið 2005. Benítez gæti því orðið fyrstur til að stýra bæði Liverpool og Everton. Nuno þykir þó eins og fyrr segir enn líklegastur til að stýra Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum næstu misseri. Hann hætti hjá Wolves eftir nýafstaðna leiktíð. Everton er í leit að stjóra eftir að Carlo Ancelotti hætti til að taka við Real Madrid. Í grein BBC segir að forráðamenn félagsins vilji gefa sér góðan tíma og kanna vel sína kosti áður en lokaákvörðun um arftaka hans verði tekinn.
Enski boltinn Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira