Um mikinn heiður er að ræða enda er hátíðin ein sú stærsta sinnar tegundar.
„Að frumsýna myndina á virtri hátíð eins og Locarno er sérstakur heiður fyrir okkur öll sem komum að myndinni. Þar sem lítið hefur verið um kvikmyndahátíðir vegna Covid er óvanalega mikill fjöldi mynda sem reynir að komast að á hátíðum og því er það mikil viðurkenning að vera valin“ segir Lilja Ósk Snorradóttir framleiðandi hjá Pegasus.
Sýningin skipulögð í kringum fótboltadagskrá
Hátíðin fer fram í ágúst en myndin verður frumsýnd hér á landi 27. ágúst í Sambíóunum. Þetta er fyrsta kvikmynd sem Hannes Þór Halldórsson leikstýrir en skrifaði hann einnig handritið í samvinnu við Nínu Petersen og Sverri Þór Sverrisson eftir hugmynd frá Auðunni Blöndal, Agli Einarssyni og honum sjálfum.
Hannes vakti strax athygli á blaðamannafundinum í morgun þar sem listrænn stjórnandi tók sérstaklega fram að mjög spennandi mynd frá Íslandi yrði sýnd í keppninni og hefði hátíðin þurft að skipulegja prógrammið sérstaklega í kringum fótboltadagskrá leikstjórans. Hægt er að sjá upptöku af fundinum hér fyrir neðan.
„Þetta er búið að vera mjög krefjandi og skemmtilegt ferli með frábæru fólki. Ég er enn að átta mig á að myndin hafi verið valin inn á hátíðina og hlakka til að sýna hana þar. Er samt enn spenntari fyrir því að sýna hana hér heima sem verður núna í lok ágúst,“ segir Hannes Þór Halldórsson leikstjóri.
Myndin fjallar um Bússa sem leikinn er af Auðunni Blöndal. Bússi er einn besti lögreglumaður Reykjavíkur sem er í baráttu við sjálfan sig á sama tíma og hann berst við hættulegustu glæpamenn landsins. Meðal annara sem fara með burðar hlutverk í myndinni eru Egill Einarsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Björn Hlynur Haraldsson, Vivian Ólafsdóttir og Sverrir Þór Sverrisson en mikill fjöldi annarra leikara kemur fram.
Sýnishorn úr myndinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.