Það voru heimamenn sem tóku forsytuna eftir rúmlega hálftíma leik. Þar var á ferðinni Marco Djuricin eftir stoðsendingu frá Dominik Fitz.
Hvorugu liðinu tókst að koma boltanum í netið það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og Blikar gegnu því til búningsklefa 1-0 undir.
Kópavogsstrákarnir mættu þó grimmir til leiks eftir hlé og seinni hálfleikur var varla orðinn tveggja mínútna gamall þegar Alexander Helgi Sigurðarson jafnaði metin fyrir Blika eftir stoðsendingu Árna Vilhjámssonar.
Þetta reyndist seinasta mark leiksins og lokatölur því 1-1. Seinni leikur liðana fer fram á Kópavogsvelli eftir slétta viku.