Fólki sem finnst rigningin góð ætti að geta notið dagsins Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. júlí 2021 07:29 Seinni partinn gæti glytt í sól norðan heiða þar sem hitinn verður í kringum tuttugu stigin. Víða annars staðar gæti verið vissara að hafa regnfötin við höndina. Veðurstofa Íslands Suðlæg átt verður á landinu í dag, víða 5-10 m/s og súld eða rigning með köflum. Á norðaustanverðu landinu verður úrkomulítið fram eftir degi en þar má búast við sæmilega öflugum síðdegisskúrum að því er segir hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands í morgun. Hiti verður á bilinu 10 til 22 stig og sem fyrr hlýjast á Austurlandi.
Það dregur úr vætu í kvöld, en á morgun gengur í suðaustan 8-15 m/s með rigningu um landið sunnan- og vestanvert. Vindstyrkurinn getur orðið meiri í vindstrengjum við fjöll, til að mynda á norðanverðu Snæfellsnesi. Þeir sem ferðast á húsbíl eða með eftirvagn eru hvattir til að skoða veðurathuganir áður en lagt er af stað. Norðaustantil á landinu verður hins vegar heldur hægari vindur og þurrt fram á kvöld. Þeir sem hafa gaman af því að hoppa í polla eiga eftir að njóta helgarinnar. Sólarvörnina virðist mega geyma uppi í skáp næstu daga miðað við veðurspána.Vísir/Vilhelm Á sunnudag: Gengur í suðaustan og sunnan 8-15 m/s með rigningu á köflum um landið S- og V-vert. Heldur hægari og þurrt að kalla NA-til. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast A-lands. Á mánudag: Austlæg eða breytileg átt 3-10 og skúrir, en úrkomulítið á N- og A-landi. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Norðan og norðaustan 3-10 og skýjað með köflum, en 8-15 og dálítil væta við A-ströndina. Hiti 7 til 13 stig. Léttskýjað á S- og SV-landi og hiti 14 til 20 stig yfir daginn. Á miðvikudag og fimmtudag: Norðaustlæg átt og væta með köflum um landið A-vert. Þurrt að kalla annars staðar, og yfirleitt léttskýjað SV-lands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast S-til. Á föstudag: Útlit fyrir breytilega átt með bjartviðri víða um land. Hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira