Innlent

Segir ferðahug í fólki þrátt fyrir uppsveiflu

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Nadine Guðrún Yaghi er samskiptastjóri Play.
Nadine Guðrún Yaghi er samskiptastjóri Play. sigurjón ólason

Margir hafa sett sig í samband við Neytendasamtökin vegna breytinga eða afpöntunar utanlandsferða. Samskiptastjóri Play segir fólk hikandi við að bóka flug en að ferðahugur sé í fólki þrátt fyrir uppsveiflu í faraldrinum.

Margir virðast efins um bókaðar utanlandsferðir vegna uppsveiflu í faraldri kórónuveirunnar. Formaður Neytendasamtakanna segir marga hafa samband við samtökin til að kanna rétt sinn komi til afpöntunar eða breytinga á ferðum.

„Sér í lagi hvað varðar pakkaferðir til útlanda en einnig varðandi gistingar á stöðum þar sem hætt hefur verið við skemmtanahald núna um helgina,“ sagði Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna.

Breki Karlsson er formaður Neytendasamtakanna.sigurjón ólason

Hann segir að lög geri ráð fyrir að ef uppi séu óvenjulegar og óviðráðanlegar aðstæður á áfangastað eða á ferðalagi þangað, geti fólk afpantað pakkaferðir með rétt á endurgreiðslu.

„Það eru önnur lög sem gilda um flugferðir og þar er fólk meira upp á sitt eigið ágæti komið. Situr uppi með kostnað sem hlýst af því að hætta við ferðir.“

Hér má sjá upplýsingar um rétt til að afpanta pakkaferðir.

Merkir breytingar vegna uppsveiflu í faraldrinum

Samskiptastjóri Play merkir einnig breytingar vegna uppsveiflunnar. Hún segir Íslendinga hikandi við að bóka flug og að mikið sé spurt um regluverk og breytingarskilmála.

„Varðandi þá Íslendinga sem hafa nú þegar bókað miða hjá okkur, þeir eru margir að biðja um gjafabréf í staðinn og svo er nokkuð mikið um það að fólk sé að breyta um dagsetningar. Ætli að fara seinna en við finnum klárlega að það er mikill ferðavilji í Íslendingum og fólk ætlar sér að ferðast áfram en ætlar þá kannski að fara á annan áfangastað eða fresta ferðinni sinni um nokkra daga eða vikur,“ sagði Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri Play.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×