Framleiðandi Marlboro býður yfir milljarð punda í úðalyfjafyrirtæki Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. ágúst 2021 11:06 Philip Morris er tíundi söluhæsti sígarettuframleiðandi heims. Tóbaksrisinn Philip Morris hefur hækkað tilboð sitt í lyfjafyrirtækið Vecture eftir að keppinauturinn, Carlyle-fjárfestingasjóðurinn, bauð 958 milljónir punda. Boð Philip Morris hljóðar upp 1,65 pund á hlut, eða yfir einn milljarð punda.
Vectura framleiðir lyf og tæki sem notuð eru við öndunarfærasjúkdómum en Philip Morris er tíundi söluhæsti sígarettuframleiðandi heims. Fyrirtækið á meðal annars vörumerkið Marlboro. Forsvarsmenn Vectura hafa lýst yfir stuðningi við tilboð Carlyle og segja mögulegt eignarhald Philip Morris vekja óvissu um framtíð fyrirtækisins. Þeir eru nú í samstarfi við breska lyfjafyrirtæið Inspira um þróun á úðalyfi gegn Covid-19. Talsmenn Philip Morris segja fyrirtækið hins vegar hafa í huga að reka Vectura áfram sem sjálfstæða einingu og sem helstu stoð úðalyfjarekstrar síns. Þeir tilkynntu á dögunum að forsvarsmenn fyrirtækisins hygðust hætt að selja sígarettur í Bretlandi innan tíu ára og einblína heldur á aðrar valkosti, til dæmis hitað tóbak. Var gefið í skyn í yfirlýsingu frá Philip Morris að fyrirtækið myndi fagna banni gegn sölu sígaretta. Samtök sem berjast fyrir heilsu og heilbrigði hafa lýst yfir efasemdum um yfirlýsingar fyrirtækisins.
Áfengi og tóbak Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira