Gerir upp gamlar tilfinningar á nýrri sýningu Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 19. ágúst 2021 06:01 Listakonan Rakel Tómasdóttir gerir upp ýmislegt í sínum nýjustu verkum. Listakonan Rakel Tomas opnar sýninguna Hvar ertu? næsta föstudag á vinnustofu sinni og sýningarrými á Grettisgötu 3. Til sýnis verða um tuttugu ný verk sem Rakel segir hafa farið í allt aðra átt en hún átti von á við upphaf ferlisins. „
Ég ætlaði að skipta um takt og einblína á landslag í stað kvenlíkamans. En það kom fljótt í ljós að það var eitthvað sem vantaði,“ segir Rakel í samtali við Vísi. „Ég fann að það voru allskonar hlutir sem ég átti eftir að gera upp. Síðasta vor var frekar erfitt. Veikindi, sambandsslit og misheppnuð verkefni settu strik í reikninginn,“ bætir hún við. „Þetta er ekki sýningin sem ég ætlaði að gera en samt er þetta klárlega sýningin sem ég þurfti að gera og ég held að hún sé töluvert betri fyrir vikið.“ segir Rakel. „Mér leið eins og ég væri búin að týna sjálfri mér. Einn daginn vaknaði ég og skildi ekki af hverju mér fannst orðið erfitt að fara í sturtu. Mig langaði að slá sjálfa mig í andlitið og var bara: Hvar ertu? Hvar er power-skvísan sem ég veit að ég er?“ Eitt af speglaverkum listakonunnar.Rakel Tómas Sleppir tökunum Rakel segist vanalega ganga hreint til verks, hafa gaman af lífinu og njóta vinnunnar sinnar. Á þessum tímapunkti hafi sá hluti sjálfsins hinsvegar virst óravegu í burtu. Í dag líði henni þó aftur vel í eigin skinni og sýningarferlið hafi stutt við þann bata. „Í gegnum tíðina hef ég átt frekar erfitt með að koma hlutum í orð en ég þekki líkamann minn – líkamstjáning er eitthvað sem „meikar sens“ fyrir mér. Þegar ég teikna er ég yfirleitt að reyna að koma einhverjum tilfinningum úr líkamanum og yfir á blað, bæði til að skilja þær betur og til að sleppa tökunum á þeim. “ Hún hefur vakið mikla athygli síðustu ár fyrir flottar blýantsteikningar af kvenlíkamanum, einstök blekverk og svo dagbækur sem skreyttar eru með hennar eigin listaverkum. Á síðasta ári gaf hún einnig út listaverkabókina Um stundarsakir. Minning um það sem aldrei varð Rakel leggur mikið upp úr því að áhorfandinn finni sína eigin tengingu í listinni og nýtir til dæmis Instagram til að safna mismunandi upplifunum. Á þessari sýningu stígur hún skrefi lengra og notar spegla sem hluta af verkunum sjálfum. Áhorfandinn getur þar af leiðandi bókstaflega séð sjálfan sig í verkunum. „Sýningin fjallar um það að vera á sama stað – og ekki. Í sama rými en samt órafjarri andlega – í sitthvorum landshlutanum en samt til staðar. Hún spyr hvort skiptir meira máli: að vera á sama stað og í sundur eða saman í sitthvoru lagi. Spegillinn gerir það svo að verkum að myndin er háð staðsetningu sinni og verður að nýju verki um leið og hún er færð eða umhverfið breytist.“ Rakel er spennt að fylgjast með upplifun sýningargesta.Rakel Tómasdóttir Rakel segir vangaveltur um raunveruleikann einnig vera henni hugleiknar þessa dagana – hugmyndir og draumar um framtíðina séu stór hluti af öllum ástarsamböndum en þegar samböndin enda virðist hin ímyndaða framtíð aðeins tálsýn. „Fyrir mér táknar hver og ein mynd einhverja tilfinningu eða upplifun sem ég hef þurft að sleppa tökunum af. Eitt verkanna er til dæmis um þau ferðalög sem ég og fyrrverandi kærastan mín hefðum getað farið í en gerðum aldrei. Stundum eru hugmyndirnar um það sem hefði getað orðið svo sterkar að maður man betur eftir þeim en því sem raunverulega átti sér stað. Með því setja draumana á sýninguna velti ég því þannig upp hvort þeir séu kannski jafn mikils virði og aðrar minningar úr sambandinu.“ Við þeirri spurningu eru eflaust fjölbreytt svör. Áhugasamir geta fundið sín svör, eða kannski bara fleiri spurningar, með því að spegla sig í verkum Rakelar. Sýningin Hvar ertu? opnar 17:30 föstudaginn 20. ágúst á vinnustofu hennar að Grettisgötu 3 og stendur til 5. september.
Myndlist Menning Reykjavík Tengdar fréttir Skapa dýpri skilning í samtali milli listar og hönnunar TEXTÍL-RIT er samsýning meðlima Textílfélagsins á HönnunarMars, þar sem þátttakendur velta fyrir sér gerð og hlutverki bóka út frá textíl. 23. maí 2021 15:36 Það þarf Hvað við getum lært af Janúarráðstefnu Festu?Umhverfismál og sjálfbærni eru ekki ný af nálinni hér á Íslandi - litlu eyju okkar í norðri. Óhætt er að segja að Íslendingar tengjast náttúrunni órjúfanlegum böndum og hún er sterkur hluti af sjálfsmynd okkar. 11. febrúar 2021 19:42 Þurftu að hugsa út fyrir boxið til að láta bolinn verða að veruleika í ár Salan á góðgerðarbol Konur eru konum bestar hefst um helgina. Að þessu sinni er safnað fyrir Bjarkarhlíð. Salan er eingöngu rafræn að þessu sinni. 2. október 2020 11:30 Mest lesið „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Lífið Tapaði ellefu milljónum Lífið Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Bíó og sjónvarp Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Bíó og sjónvarp Með eina þriggja mánaða í vinnunni Lífið Hvað veistu um… pasta? Lífið Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Lífið Mikil hvatning ef fólk hlær að fötunum Tíska og hönnun Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Lífið samstarf Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Byrjar settið á tjáningardansi við Euphoria Látlausir kjólar hafa átt sviðið en það er að breytast Með eina þriggja mánaða í vinnunni Oddvitaáskorunin: Erfðagóssið færi frekar til versta óvinar „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Fortíðin þvælist ekki fyrir Ara sem gefur í á Tik-Tok Oddvitaáskorunin: Dreymir um skautasvell á torginu Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni Tapaði ellefu milljónum Oddvitaáskorunin: Á í haltu mér - slepptu mér sambandi með morgunmat Hvað veistu um… pasta? Almar í kassanum ætlar að sækja um hjá Fox-sjónvarpsstöðinni Oddvitaáskorunin: Kleinan toppurinn á tilverunni Eldpiparshausar í átkeppni Læknuð af þrálátum hita og margra mánaða orkuleysi eftir jógaferð Ellefu ára þegar fyrrverandi maður Mariuh Carey vildi gera hana að stjörnu Sanna hét áður Díana Oddvitaáskorunin: Heillaðist alveg af Guðrið Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn Innipúkar geti farið á „tryllt djamm“ í Austurbæjarbíói í annað sinn Oddvitaáskorunin: Hefði viljað verja meiri tíma í tónlistina Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Skráðu dótturina á spjöld sögunnar Gráhærð og aldrei glæsilegri Oddvitaáskorunin: Nína ekki eins miðaldra Mætti með sextán ára gamalt prump bróður síns „Agaleysið er algjört“ Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Oddvitaáskorunin: Mistök að kenna hundinum á klukku „Lítill verkalýðsprins synti í heiminn“ Sjá meira
Skapa dýpri skilning í samtali milli listar og hönnunar TEXTÍL-RIT er samsýning meðlima Textílfélagsins á HönnunarMars, þar sem þátttakendur velta fyrir sér gerð og hlutverki bóka út frá textíl. 23. maí 2021 15:36
Það þarf Hvað við getum lært af Janúarráðstefnu Festu?Umhverfismál og sjálfbærni eru ekki ný af nálinni hér á Íslandi - litlu eyju okkar í norðri. Óhætt er að segja að Íslendingar tengjast náttúrunni órjúfanlegum böndum og hún er sterkur hluti af sjálfsmynd okkar. 11. febrúar 2021 19:42
Þurftu að hugsa út fyrir boxið til að láta bolinn verða að veruleika í ár Salan á góðgerðarbol Konur eru konum bestar hefst um helgina. Að þessu sinni er safnað fyrir Bjarkarhlíð. Salan er eingöngu rafræn að þessu sinni. 2. október 2020 11:30