Innlent

Flug­um­ferðar­stjórar semja og af­lýsa verkfalli

Eiður Þór Árnason skrifar
Ríkissáttasemjari auk fulltrúa Isavia og Félags íslenskra flugumferðarstjóra. 
Ríkissáttasemjari auk fulltrúa Isavia og Félags íslenskra flugumferðarstjóra.  Ríkissáttasemjari

Félag íslenskra flugumferðarstjóra skrifaði í dag undir nýjan kjarasamning við Isavia og hefur aflýst verkföllum sem voru fyrirhuguð voru í næstu viku. 

Kjarasamningurinn gildir til 1. október 2023 en haldnir hafa verið átján fundir í deilunni hjá ríkissáttasemjara. Stóð síðasti samningafundurinn í 27 klukkustundir með fundarhléi frá klukkan 4 til 11 í morgun.

Frá þessu er greint á vef ríkissáttasemjara en flugumferðarstjórar boðuðu til verkfalls síðasta þriðjudag eftir árangurslausan sáttafund. Mikill meirihluti félagsmanna innan Félags íslenskra flugumferðarstjóra studdu verkfallsboðunina og ætluðu þeir að leggja niður störf næsta þriðjudag og föstudag. 

Fulltrúar ferðaþjónustunnar höfðu lýst yfir áhyggjum af stöðunni en vinnustöðvunin hefði sett millilandaflug á Keflavíkurflugvelli úr skorðum. Birgir Jónsson, forstjóri Play, sagði á dögunum að verkföll væru það síðasta sem ferðaþjónustan og flugiðnaður landsins þyrfti ofan í glímuna við áhrif heimsfaraldurs. Til stóð að efna til fyrri vinnustöðvunarinnar á milli klukkan fimm og tíu á þriðjudagsmorgun og hefði hún fyrst og fremst haft áhrif á morgunflug Icelandair frá Bandaríkjunum. 

Boðuðu síðast til vinnustöðvunar árið 2019

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði á þriðjudag að ekki væri talið tilefni til að grípa inn í kjaradeiluna. Það væri þó alvarlegt hversu oft verkfallsréttinum væri beitt á Íslandi miðað við það sem tíðkaðist víða annars staðar.

Félag íslenskra flugumferðarstjóra boðaði síðast til vinnustöðvunar árið 2019 en náðu samningum áður en til hennar kom. Þá var samið um sautján þúsund króna hækkun 1. janúar 2020 og átján þúsund króna hækkun 1. apríl 2020. Að aukið var samið um að félagið myndi skuldbinda sig til að grípa ekki til vinnustöðvana í skiptum fyrir sérstakt álag sem nam 4,5 prósentum af launum. 

Kjarasamningurinn féll úr gildi um síðustu áramót og boðað var til vinnustöðvunar eftir um sex mánaða kjaraviðræður. Arnar Hjálmsson, formaður félagsins, sagði í samtali við fréttastofu fyrr í vikunni að viðræðurnar hafi strandað á launaprósentum og ákvæðum um lengd samningstíma.


Tengdar fréttir

„Það síðasta sem við þurfum núna“

„Það er auðvitað það síðasta sem við þurfum núna, að sjá mikla röskun á flugstarfseminni, og þess vegna hlýtur maður bara að binda vonir við að aðilar haldi áfram að tala saman,“ segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra um yfirvofandi verkfall flugumferðarstjóra á þriðjudag.

Verk­föll eru það síðasta sem ferða­þjónustan þarf á að halda

Verk­föll hjá flug­um­ferðar­stjórum væru það síðasta sem ferða­þjónusta og flug­iðnaður landsins þarf á að halda að sögn Birgis Jóns­sonar, for­stjóra PLAY. Fé­lag ís­lenskra flug­um­ferðar­stjóra (FÍF) á­kveður í dag hvort ráðist verði í verk­falls­að­gerðir á þriðju­daginn í næstu viku og skoða hvort greiða eigi atkvæði um frekari verk­falls­að­gerðir á næstunni.

Milli­landa­flug fer úr skorðum

Millilandaflug á Keflavíkurflugvelli fer úr skorðum á þriðjudag eftir viku þegar allt flug til og frá landinu á þriðjudagsmorgun fellur niður takist ríkissáttasemjara ekki að sætta Isavia og flugumferðarstjóra fyrir þann tíma. Verkfall þeirra hefur ekki áhrif á innanlandsflug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×