Fylkir búinn að hafa samband við Rúnar Pál Valur Páll Eiríksson skrifar 30. ágúst 2021 19:22 Rúnar Páll er efstur á óskalista Fylkismanna. Vísir/Hulda Margrét Fylkir hefur sett sig í samband við Rúnar Pál Sigmundsson í þeirri von að hann hafi áhuga á að taka við karlaliði félagsins í fótbolta. Atla Sveini Þórarinssyni og Ólafi Inga Stígssyni var sagt upp störfum í dag.
Atli Sveinn og Ólafur Ingi hafa verið við stjórnvölin í Árbænum síðustu tvö ár en verulega hefur hallað undan fæti hjá félaginu að undanförnu. Fylkir hefur spilað sjö deildarleiki í röð án sigurs en síðasti sigur liðsins var gegn KA 13. júlí síðastliðinn. Fylkir tapaði 7-0 á heimavelli fyrir Breiðabliki í gær og fór við tapið niður í fallsæti í fyrsta sinn í sumar. Stjórnarmenn hjá Fylki virðast hafa fengið nóg og tilkynnt var um brottför þeirra Atla Sveins og Ólafs Inga í kvöld. Samkvæmt heimildum Vísis hefur Fylkir þegar sett sig í samband við Rúnar Pál Sigmundsson í von um að hann vilji taka við keflinu í Árbænum. Rúnar Páll var þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í sjö ár, frá 2014 allt þar til í vor. Hann sagði þá óvænt upp störfum í upphafi Íslandsmótsins og tók Þorvaldur Örlygsson við starfi hans. Vísir hafði samband við Rúnar Pál í kvöld sem neitaði því ekki að Fylkir hefði haft samband við hann en kvaðst ekki getað tjáð sig frekar um málið. Fylkir er í 11. sæti Pepsi Max-deildarinnar, fallsæti, með 16 stig, einu stigi á eftir HK og tveimur á eftir Keflavík sem eru í sætunum fyrir ofan. Fylkir mætir KA, síðasta liði sem þeir unnu í deildinni, í næsta leik sínum þann 11. september á Akureyri. Liðið heimsækir botnlið ÍA á Akranes 19. september en síðasti leikur liðsins í deildinni er á heimavelli gegn Íslandsmeisturum Vals.
Pepsi Max-deild karla Fylkir Mest lesið Gamla Skyttan veitti City þungt högg Enski boltinn Tómas Bent þurfti að yfirgefa völlinn eftir þungt höfuðhögg Fótbolti Dugði Chelsea ekki til sigurs að umkringja dómarann Enski boltinn Sextán ára gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur Enski boltinn Tveir látnir eftir skotárás nærri Players meistaramótinu Golf Töfrandi stund fyrir sextán ára strák: „Þetta er bara ekki eðlilegt“ Enski boltinn Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Enski boltinn Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina Handbolti Verstappen segir Red Bull-bílinn ömurlegan Formúla 1 Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Sjá meira