Nýir erlendir leikmenn KR-inga þekkja vel til í íslensku deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. september 2021 16:30 Adama Darboe og Shawn Glover stilltu sér upp á mynd í KR-húsinu. KR KR-ingar staðfestu í gærkvöldi komu tveggja erlendra leikmanna til liðsins og báðir hafa þeir spilað áður í úrvalsdeildinni á Íslandi.
Það er þó mjög mislangt síðan þeir voru hér í deildinni. Körfuknattleiksdeild KR hefur gengið frá samningum við þá Danann Adama Darboe og hinn bandaríska Shawn Glover. Sagt er frá þessu á heimasíðu félagsins. Adama Darboe hefur spilað með danska stórliðinu Bakken Bears í fimm ár en hann er reynslumikill leikmaður sem getur spilað nokkrar stöður. Darboe lék með Grindvíkingum í tvö tímabil frá 2006 til 2008. Hann var með 10,9 stig og 5,8 stoðsendingar að meðaltali í 44 deildarleikjum þessi tvö tímabil. Í fimmtán leikjum í úrslitakeppni þessi tvö ár var hann með 17,2 stig og 7,6 stoðsendingar í leik eða mun hærri tölur en í deildarleikjunum. Það er miklu styttra síðan að Shawn Glover spilaði hér á landi en hann lék með Tindastól á síðustu leiktíð. Shawn er 201 sentímetra framherji og á síðasta tímabili skoraði hann að meðaltali 26,2 stig og tók 7,5 fráköst. Glover kláraði þó ekki tímabilið með Stólunum því þeir urðu að láta hann fara þegar hann vildi ekki festa sig hjá liðinu. Hann var með klásúlu í samningi sínum sem gaf honum leyfi til að taka tilboði frá erlendu félagi. Glover spilaði einn leik á móti KR og var þá með 30 stig á 29 mínútur þar sem hann hitti úr 67 prósent skota sinna.
Dominos-deild karla KR Mest lesið Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fótbolti Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa“ Golf „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira