Allt jafnt í stórleiknum á Anfield Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 3. október 2021 17:25 Forvitnilegur varnarleikur hjá gestunum frá Manchester-borg. Michael Regan/Getty Images Liverpool og Englandsmeistarar Manchester City gerðu 2-2 jafntefli í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Það var hart barist í leik dagsins en engin mörk voru skoruð í fyrri hálfleik. Rúben Dias og James Milner nældu sér hins vegar í gult spjald og hefði sá síðarnefndi ef til vill átt að fá annað í síðari hálfleik, það var hins vegar þá sem flóðgáttirnar opnuðust. Sadio Mané kom heimamönnum yfir eftir tæplega klukkutíma eftir sendingu Mohamed Salah. Sléttum tíu mínútum síðar jafnaði Phil Foden með frábæru skoti úr þröngri stöðu eftir sendingu Gabriel Jesus. Staðan var ekki jöfn lengi en Mo Salah kom heimamönnum í 2-1 með þrumuskoti úr einkar þröngu færi hægra megin í vítateig Man City eftir frábæran sprett þar sem hann fór framhjá varnarmönnum City eins og að drekka vatn. 11 - Mohamed Salah has either scored (8) or assisted (3) in eight of his nine games in all competitions this season, having a direct hand in more goals so far in 2021-22 than any other Premier League player. Thrust. pic.twitter.com/XiH7F2yf4r— OptaJoe (@OptaJoe) October 3, 2021 Aðeins fimm mínútum síðar þrumaði Kevin De Bruyne að marki og endaði boltinn í netinu eftir að hafa haft viðkomu í varnarmanni. Staðan því 2-2 þegar tæpar tíu mínútur lifðu leiks og andrúmsloftið á Anfield rafmagnað. Fleiri urðu mörk dagsins hins vegar ekki og lauk leiknum með 2-2 jafntefli. Það þýðir að Chelsea heldur toppsæti deildarinnar með 16 stig, þar á eftir kemur Liverpool með 15 og Man City með 14 stig. Enski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti