Víða hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Atli Ísleifsson skrifar 19. október 2021 07:14 Vindaspáin fyrir klukkan níu. Hvassast verður í Öræfasveit, en varasamt verður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Eru afmarkaðar samgöngutruflanir líklegar og fólk hvatt til að sýna aðgát. Veðurstofan Landsmenn mega búa sig undir norðaustanátt í dag þar sem víða verður hvassviðri eða stormur. Sums staðar getur þó orðið enn hvassara í vindstrengjum við fjöll.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði rigning eða slydda norðan- og austanlands, og dálítil él þar seinnipartinn, en yfirleitt þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hiti verður á bilinu tvö til níu stig, en það kólnar smám saman í dag og í kvöld dregur úr vindi og frystir allvíða. Gular viðvaranir eru enn í gildi á Breiðafirði, Vestfjörðum, Austfjörðum og á Suðausturlandi. Viðvörunin er í gildi á Suðausturlandi til klukkan 23 í kvöld, en þar gæti farið yfir fjörutíu metra á sekúndu í hviðum. Hvassast verður í Öræfasveit, en varasamt verður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Eru afmarkaðar samgöngutruflanir líklegar og fólk hvatt til að sýna aðgát. „Norðlæg átt 10-18 m/s á morgun, en það lægir á vestanverðu landinu með morgninum. Víða léttskýjað sunnan- og vestantil, en áfram dálítil él norðaustanlands. Hiti í kringum frostmark yfir daginn. Hægari vindur annað kvöld og þykknar upp vestanlands, en styttir jafnframt upp eystra.“ Gular viðvaranir eru í gildi.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðlæg átt 10-18 m/s, en lægir á V-verðu landinu með morgninum. Dálítil él NA-lands, en yfirleitt léttskýjað S- og V-til. Hiti í kringum frostmark yfir daginn. Vestan og suðvestan 5-13 um kvöldið og þykknar upp V-lands, en styttir upp eystra. Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt 5-10 og stöku skúrir eða slydduél, en víða þurrt og bjart eftir hádegi. Norðvestan 8-15 og él við A-ströndina. Hiti um og yfir frostmarki, en kólnar síðdegis. Á föstudag: Gengur í suðaustan 10-18 og fer að rigna S- og V-lands, hiti 2 til 7 stig. Hægari vindur og þurrt NA-til á landinu og hiti um eða undir frostmarki. Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Suðaustlæg átt og væta með köflum. Hiti 3 til 8 stig. Á sunnudag: Norðaustlæg átt og rigning eða slydda, en þurrt um landið S-vert. Hiti 1 til 6 stig. Á mánudag: Breytileg átt og þurrt að kalla, en rigning með köflum N- og A-lands. Hiti 2 til 8 stig.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira