Spennandi jólapakkar fyrir krakka Gullskógar 17. nóvember 2021 10:20 Smoby Flextreme- bílabrautin vann til verðlauna sem besta nýja leikfangið í Frakklandi árið 2020. Sex stórsniðugar gjafahugmyndir fyrir yngsta fólkið.
Jólin eru hátíð barnanna en það er oft þrautin þyngri að finna réttu gjöfina undir tréð handa þeim. Við tókum saman nokkrar tillögur að fallegum og skemmtilegum gjöfum sem munu vekja lukku. Ímyndunaraflið stekkur af stað Smoby Flextreme-bílabrautin er stórskemmtileg fyrir krakka fjögurra ára og eldri og hleypir ímyndunaraflinu heldur betur af stað. Sveigjanlegir teinarnir virka þannig að hægt er að byggja bílabrautina yfir stóla og borð, hengja undir hillur og upp á veggi og jafnvel í hringi. Bílarnir eru “fastir” við brautina og detta því ekki af þó þeir fari á hvolf. Þeir eru á stórum dekkjum og með ljósum. Smoby Flextreme- bílabrautin vann til verðlauna sem besta nýja leikfangið í Frakklandi árið 2020. Krúttbomba sem kann að dansa Dúlludúskurinn Poppy Dancing Pug er nýjasta dýrið í Pets Alive línunni. Hann er algjört krútt og skemmtilegur fyrir alla krakka eldri en 3 ára og jafnvel fyrir ömmu líka. Hann dansar, snýst í hringi, dillar skottinu og snýr höfðinu um leið og hann spilar fjörug og skemmtileg lög. Töfrasprotinn stjórnar ferðinni Glitsee bíllinn er algjör draumabíll fyrir dúkkuleikinn. Tvær dúkkur komast í bílinn og geta farið í hressilegan bíltúr. Bíllinn er með öryggisbeltum sem er kannski eins gott því bílnum er hægt að stjórna með töfrasprota! Sveiflaðu sprotanum til vinstri og bíllinn beygir um leið. Glitsee bíllinn er á frábæru verði og spennandi gjöf undir jólatréð. Skemmtilegir aukahlutir Angel High dúkkurnar eru svakalegar skvísur og þeim fylgja allskonar skemmtilegir aukahlutir sem er gaman að safna. Aukahlutirnir eru til dæmis hárlokkur sem breytir um lit, hárbursti, föt, vængir, eyrnalokkar og ýmislegt fleira. Vængirnir eru með klemmu svo eigandi dúkkunnar getur notað hann sem hárspennu. Bleian breytir um lit í baði Einhyrningabörn í bolta eru afar falleg gjöf en þessar dúllur koma í litlu eggi og það kemur algjörlega á óvart hvað leynist í egginu. Eggið breytist í vöggu fyrir einhyrningabarnið og til þess að vita hvort það er strákur eða stelpa seturðu barnið í bað og þá breytir bleian um lit. Mismunandi fylgihlutir koma einnig upp úr egginu sem gaman er að safna. Glitrandi glimmer og bling Rainbocorns serían nýtur mikilla vinsælda og þá sérstaklega fyrir það óvænta en eigandinn veit ekkert hvað leynist í egginu eða í sjeiknum fyrr en hann opnar. Þá kemur í ljós hvaða heilladýr býr í egginu, hvernig það ilmar og hvaða litlu aukahlutir fylgja með. Glitrandi glimmer og bling einkennir Rainbocorns heilladýrin og það er hægt að breyta þeim að vild. Hægt er að safna 26 mismunandi heilladýrum. Vörurnar færðu í Dotabudin.is, Leikfangalandi, Elko, Vaski Egilsstöðum, Hans og Grétu, Kaupfélagi Skagfirðinga, Kaupfélagi Borgfirðinga, Fríhöfninni og Byko.
Jól Mest lesið Í þrjátíu ára gömlum fötum af mömmu Tíska og hönnun Endurheimti lífsgleðina við gerð ostabakkanna Lífið Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Lífið „Þetta situr enn þá í mér í dag“ Lífið Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Lífið Leifur Andri og Hugrún selja íbúðina í Garðabæ Lífið Umdeild mormónadrottning nýja piparjónkan Lífið Tískan við þingsetningu: Þjóðlegur þriðjudagur Tíska og hönnun Á leið á heimsmeistaramót í drifti: „Íslendingarnir eru til, við getum þetta líka“ Lífið Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning Fleiri fréttir Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira
Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning
Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning