Að sögn Jóns sýna niðurstöður nýrrar rannsóknar McKinsey að aldrei hafi fleiri starfsmenn velt því fyrir sér hvers vegna þeir eru að vinna hjá núverandi vinnuveitenda.
Og hvort þeir séu yfir höfuð metnir af vinnuveitandanum að verðleikum.
Þetta má skoðast í samhengi við nýjar fréttir frá Bandaríkjunum. Til að mynda sagði RÚV frá því á dögunum að aldrei hefðu jafn margir vestanhafs sagt upp störfum og nú, sérstaklega í tækni- og heilbrigðisgeiranum. Það sama á við um stöðuna í Bretlandi.
Fólk er hreinlega að velja það að segja upp starfinu sínu, þrátt fyrir að samhliða sé talað um kreppu og atvinnuleysi.
Jón líkir heimsfaraldrinum síðustu mánuði við það ástand sem myndast þegar stríð geisar.
„Því er haldið fram að stríð þjappi þjóð saman og hugmyndin um sameiginlegan óvin styrki leiðtogann,“ segir Jón.
En eftir því sem tíminn líður og stríðið dregst á langinn koma áhrifin fram og ekki síst hvernig einstaklingar koma mismunandi undan álaginu.“
Þannig segir Jón stöðuna nú þannig að þótt Covid hafi aukið samheldnina um tíma og þá ekki síst að starfsfólk hafi þjappað saman bökum til að styðja stjórnendur og vinnustaði, sé starfsfólk nú að kalla eftir félagslegri samheldni, tilgangi og trausti.
„Það vill sjá að framlag þeirra sé metið, fá tækifæri til að mennta sig og vaxa og að framtíðarsýn þeirra falli að markmiðum fyrirtækisins,“ segir Jón.
Hugtakið „Employee experience,“ oft skammstafað sem EX, segir Jón oft notað um samband fyrirtækis við starfsfólk.
„Eða öllu heldur samband stjórnenda við fólkið sitt,“ segir Jón.
Að mati Jóns hafa stjórnendur það tækifæri nú, að nýta sér það traust sem Covid-stríðið hefur fært þeim og beina starfsfólki í átt að mikilvægum markmiðum.
„Það verður ekki gert með því að leiða starfsfólkið sem hóp heldur með því að setja sig inn í aðstæður hvers og eins og varða leiðina með viðkomandi fram á veginn,“ segir Jón og bætir við:
Stjórnendur hugsa sífellt um hagsmuni hluthafa og upplifun viðskiptavina.
Á næstu mánuðum þarf hins vegar að fara enn meiri tími í að huga að upplifun starfsmanna til að auka virkni þeirra þannig að fyrirtækið nái markmiðum sínum.“
Rannsókn McKinsey má sjá HÉR.