Vara við frostrigningu og mögulegri flughálku Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. nóvember 2021 07:15 Varað er við svokallaðri frostrigningu á Suður-og Vesturlandi. Vísir/Egill Aðstæður við suður- og vesturströndina gætu gert það að verkum að von sé á frostrigningu með flughálku. Veðurstofan segir að vegfarendur á þessum slóðum ættu að hafa varan á fram eftir degi.
Fyrripartinn í dag verður úrkomubakki við suður- og vesturströndina með rigningu eða slyddu og sumsstaðar snjókomu í fyrstu á láglendi. Hiti um og yfir frostmarki. Þannig mun snjóa ofurlítið á Hellisheiði, Mosfellheiði og á Snæfellsnesi. Á láglendi ætti úrkoman vera blautari og jafnvel gæti myndast aðstæður fyrir frostrigningu með flughálku og ætti fólk að hafa varan á fram eftir degi, segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í öðrum landshlutum verður dálítil sjókoma á víð og dreif og vægt frost. Heldur meiri úrkomu er á sjá fyrir morgundaginn og áfram má reikna með að úrkoman sunnan- og vestanlands falli sem rigning eða slydda og hiti yfirleitt yfir frostmarki á meðan úrkoman fellur sem snjókoma annars staðar og áfram hiti undir frostmarki. Þessu fylgir almennt fremur hægur vindur. Veðurhorfur á landinu Breytileg átt, víða 3-10 m/s, skýjað og dálítil snjókoma á víð og dreif í dag og frost 0 til 7 stig, en rigning eða slydda við SV- og V-ströndina með morginum og fram eftir degi með hita 0 til 5 stig. Vaxandi NV-átt A-til í kvöld. Suðlæg átt, 5-13 á morgun, víða snjókoma og vægt frost en rigning suðvestantil og hiti 1 til 5 stig. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Suðaustlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og úrkomulítið. Fer að snjóa um og eftir hádegi með 0 til 8 stiga frosti, en rigning við SV- og V-ströndina og hiti 1 til 6 stig. Á mánudag: Austlæg eða breytileg átt 5-13 og dálitlar skúrir eða él. 8-15 m/s og snjókoma eða slydda seinnipartinn og frost 0 til 7 stig, en rigning SV-til með 1 til 7 stiga hita. Á þriðjudag: Snýst í norðan 8-18 með éljum á N- og A-landi, hvassast við N-ströndina, en styttir upp sunnan heiða. Kólnandi veður. Á miðvikudag (fullveldisdagurinn): Minnkandi norðlæg átt og dálítil él, en birtir til eftir hádegi, síst NA-til. Talsvert frost víðast hvar. Á fimmtudag: Vaxandi suðaustanátt með snjókomu eða slyddu og hlýnandi veðri, en þurrt NA-til fram eftir degi. Vestan 5-10 og hlánar vestast um kvöldið. Á föstudag: Útlit fyrir fremur hæga vestlæga átt með dálítilli ofankomu um mest allt land. Vægt frost.
Veður Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira