Þriðja skotárásin á þremur dögum í Kaupmannahöfn Smári Jökull Jónsson skrifar 5. desember 2021 10:17 Lögreglan leitar manns sem grunaður er um skotárásina í gærkvöldi. Vísir / EPA Lögreglan í Kaupmannahöfn leitar manns sem grunaður er um skotárás í Friðriksberg í gærkvöldi. Skotárásin var sú þriðja í borginni á síðustu þremur dögum.
Maðurinn sem slasaðist í árásinni í gærkvöldi er í lífshættu en hann var skotinn í höfuðið á vatnspípureykstofu á mörkum borgarhlutanna Norðurbrú og Friðriksberg. Lögreglan fékk tilkynningu rúmlega hálftíu í gærkvöldi um að skoti hefði verið hleypt af en fámennt var á reykstofunni þegar árásin var gerð. Kaupmannahafnarlögreglan auglýsir eftir ungum manni sem grunaður er um skotárásina. Hann náðist á mynd öryggismyndavélar við matvöruverslun á leið sinni í átt að miðborginni. Árásin í gærkvöldi var sú þriðja á þremur dögum í dönsku höfuðborginni. Síðdegis á fimmtudag var 27 ára gamall maður myrtur á Norðurbrú og eru tveir aðilar í haldi grunaðir um morðið. Um kvöldmatarleytið á föstudags lést 17 ára piltur eftir að hafa verið skotinn á hárgreiðslustofu í Islev en 15 ára piltur og 28 ára gamall maður slösuðust einnig í þeirri árás. Lögreglan hefur verið fámál um ástæður árásanna en talsmaður hennar segir að eftir árásina á laugardag hafi grunur þeirra styrkst um að þær tengist átökum innan glæpagengja borgarinnar. Í kjölfar árásanna hefur lögreglan fengið auknar heimildir til að framkvæma leit á fólki í ákveðnum hverfum án staðfests gruns um að aðild að málinu.
Danmörk Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira