Hyggjast bólusetja alla óbólusetta við komuna til Gana Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. desember 2021 12:11 Stjórnvöld í Gana eru uggandi um þróun faraldursins þar í landi. Stjórnvöld í Gana hyggjast bólusetja alla borgara og íbúa landsins við komuna á flugvöllum frá og með mánudegi, ef þeir hafa ekki þegar þegið bóluefni. Þá verður þeim sem yfirgefa landið gert að framvísa sönnun um bólusetningu.
Aðeins um 5,7 prósent íbúa Gana eru bólusettir en um 30 milljónir búa í landinu. Nýtilkynntar aðgerðir eru meðal þeirra ströngustu í Afríku en lágt bólusetningarhlutfall má hins vegar helst rekja til skort á bóluefnum og vandkvæða við framkvæmd bólusetning. Patrick Kuma-Aboagye, æðsti yfirmaður heilbrigðisþjónustunnar í landinu, sagði í yfirlýsingu í gær að vegna fjölda nýrra tilfella og greiningar ómíkron-afbrigðisins meðal ferðalanga sem kæmu til landsins erlendis frá, væri nauðsynlegt að grípa strax til aðgerða. Bólusetningarátak stendur yfir í Gana nú í desember en frá og með 22. janúar tekur gildi bólusetningarskylda meðal ákveðinna hópa, svo sem opinberra starfsmanna, heilbrigðisstarfsmanna og námsmanna. Þá mun engin komast inn á staði þar sem fólk safnast saman nema framvísa bólusetningarpassa. Á síðustu vikum greindust 60 prósent smita í Gana á Kotoka-alþjóðaflugvellinum í höfuðborginni Accra. Þeir sem greindust á vellinum voru þrisvar sinnum líklegri til að vera óbólusettir. 34 tilvik ómíkron greindust í landinu, þar af 75 prósent meðal óbólusettra. 131.246 hafa greinst með Covid-19 í Gana frá upphafi kórónuveirufaraldursins og 1.228 látist. Guardian greindi frá.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Gana Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Bjartsýn eftir fund í Virginíu vegna Söndru sem afplánar 37 ára dóm Innlent Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Innlent Lögreglan bannaði bjór á B5 Innlent Kallar eftir sams konar úrræði og Breivik og árásarmaður hennar sæta Innlent „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Erlent Öryrkjar fá 1,7 skattfrjálsa milljarða Innlent Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Innlent Mansalsmál Gríska hússins: Vann sjö daga í viku hverri og svaf í kjallaranum Innlent Sakar Snorra um að tendra bál fordóma Innlent Fleiri fréttir „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Þrír handteknir vegna dauða Liam Payne Vilja banna 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla Fundu ellefu lík í yfirgefnum pallbíll Ávarp Bidens: „Þú getur ekki elskað nágranna þinn bara þegar þið eruð sammála“ Vill taka vantraustið fyrir strax Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Ríkissjórn Scholz er sprungin Óskaði Trump til hamingju og ítrekaði friðsamleg valdaskipti Ríkisstjórn Scholz á barmi þess að springa Harris búin að hringja í Trump og undirbýr ávarp Óttast verulegt bakslag á mörgum vígstöðvum Baráttan um Bandaríkin: Donald Trump verður forseti, og hvað svo? Þjóðarleiðtogar kasta kveðju á Trump Trump lýsir yfir sigri: Guð hafi bjargað honum svo hann gæti bjargað Ameríku Andstæðingar þungunarrofs unnu í Flórída Donald Trump forseti á nýjan leik Mikill fögnuður hjá Trump-liðum Repúblikanar ná meirihluta í öldungadeildinni Gætum þurft að bíða í nokkra daga ef ekkert óvænt gerist Netanjahú rekur varnarmálaráðherrann Sjá meira