Bætir í vind með deginum og víða líkur á skúrum eða éljum Atli Ísleifsson skrifar 15. desember 2021 07:34 Loftið eróstöðugt og því víða líkur á skúrum eða éljum. Vísir/Vilhelm Það bætir í vind með morgninum og má búast við suðvestan átta til fimmtán metrum á sekúndu um hádegi, en heldur hvassara með suðurströndinni. Einnig hvessir um norðanvert landið í kvöld.
Á vef Veðurstofunnar segir að loftið sé óstöðugt og því víða líkur á skúrum eða éljum, en þurrt fyrir norðan og austan. Hiti verður á bilinu núll til fimm stig. „Í fyrramálið koma hlý skil upp að landinu svo að það bætir í vindinn með rigningu um landið sunnan- og vestanvert. Skilin fara frekar hratt yfir og dregur úr úrkomunni eftir hádegi, en önnur gusa kemur á Suðurland annað kvöld. Það verður hvasst um landið V-vert í fyrramálið og hinir venjulegu hviðustaðir í suðaustanátt (Kjalarnes, Hafnarfjall, norðanvert Snæfellsnesið o.fl) verða varasamir. Það dregur úr vindi þar um hádegi, en þá bætir í vindinn fyrir norðan og er líklegt að verði hvöss sunnanátt inn Eyjafjörðinn, Skagafjörðinn og víðar fram á kvöld. Með skilunum hlýnar einnig og er líklegt að víða mælist tveggja stafa hitatölur, einkum í hnúkaþey norðan heiða.“ Spákortið fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Sunnan 13-20 m/s og rigning eða súld, en þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 4 til 10 stig. Á föstudag: Minnkandi suðlæg átt og rigning eða súld með köflum, en þurrt á norðanverðu landinu fram undir kvöld. Hiti 2 til 7 stig. Á laugardag: Suðlæg eða breytileg átt 5-10 m/s. Víða rigning með köflum, en úrkomulítið austanlands. Hiti breytist lítið. Á sunnudag og mánudag: Sunnan og suðaustan 5-10 og dálítil væta, hiti 2 til 7 stig. Hægari vindur á Norður- og Austurlandi, þurrt og hiti kringum frostmark. Á þriðjudag (vetrarsólstöður): Útlit fyrir suðaustlæga átt og úrkomulítið veður. Kólnar heldur, einkum fyrir norðan.
Veður Mest lesið Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Innlent Björg býður ungliðum til fundar Innlent Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Erlent Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Innlent Takmarka fjölda nemenda utan EES Innlent Staðin að því að stinga inn á sig snyrtivörum Innlent Fleiri fréttir Fer að lægja norðvestantil um hádegi Djúp lægð grefur um sig Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Tíðindalítið veður en bætir í vind í kvöld Dálítil snjókoma norðantil en þurrt sunnan heiða Lægðin á undanhaldi Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Sjá meira