Alvarlega slasaður eftir misheppnaðan framúrakstur Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 27. desember 2021 11:43 Einn slasaðist alvarlega þegar tveir bílar lentu saman á Suðurlandsvegi í síðustu viku. Vísir Ökumaður jeppa, sem lenti í árekstri á Suðurlandsvegi 20. desember síðastliðinn, slasaðist alvarlega í árekstrinum. Jepplingur, sem reynt hafði framúrakstur, lenti framan á bílnum með þessum alvarlegu afleiðingum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi en fjögur umferðarslys voru tilkynnt á rétt rúmlega tveggja klukkustunda tímabili 20. desember. Fyrst var það bílvelta á Þjórsárdalsvegi þar sem meiðsl ökumanns bílsins voru minniháttar. Lögregla greindi frá því þennan dag að talsverð hálka var á vegum í umdæminu og valt önnur bifreið út af Biskupstungnabraut en ökumaður var einn í bílnum og taldi sig ekki þurfa flutning með sjúkrabíl af vettvangi. Reyndi framúrakstur sem tókst ekki Önnur velta varð sama dag á Eyrarbakkavegi en í bifreiðinni var par með tvö börn, sem öll voru flutt á heilbrigðisstofnun til aðhlynningar en þau ekki talin alvarlega slösuð. Loks varð árekstur tveggja bifreiða á Suðurlandsvegi í Flóa þar sem jeppi og jepplingur rákust á en þeim var ekið úr gagnstæðum áttum. Ökumaður jepplingsins var einn á ferð og virðist vera sem hann hafi verið að taka fram úr röð bíla og ekki næáð að ljúka framúrakstrinum og því lent framan á jeppanum. Ökumaður jepplingsins var lítið slasaður en bíll hans valt og endaði á hvolfi úti í vatnsfylltum skurði. Hann komst út með aðstoð annarra vegfarenda. Ökumaður jeppans var fastklemmdur og alvarlega slasaður og þurfti tækjabúnað slökkviliðs til að losa hann úr braki bílsins. Farþegi í jeppanum slapp lítið meiddur. Tjón varð á minnst tveimur öðrum bílum vegna braks sem þeyttist frá bílunum sem lentu í árekstrinum. Nokkur tekin fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur Talsvert var um að vera hjá lögreglunni á Suðurlandi síðustu vikuna og talsvert um umferðaróhöpp og umferðarlagabrot. Fullorðin kona brotnaði á hendi eftir að ekið var á hana á bílastæði fyrir aftan Ráðhús Árborgar á Selfossi. Konan var flutt til að hlynningar á heilbrigðisstofnun. Nokkrir voru teknir fyrir fíkniefna- eða ölvunarakstur, þar á meðal einn sem var stöðvaður af lögreglu í gær á Eyrarvegi á Selfossi þar sem skráningarnúmer vantaði aftan á bílinn sem hann ók. Maðurinn reyndist bæði undir áhrifum áfengis og fíkniefna auk þess sem hann hafði verið sviptur ökurétti vegna fyrri brota. Annar var stöðvaður vegna undarlegs aksturs í síðustu viku og reyndist hann ölvaður. Þá var stúlka stöðvuð í reglubundnu eftirliti á Selfossi og er hún grunuð um akstur undir áhrifum fíkniefna. Tveir slökktu sjálfir eld án hjálpar slökkviliðs Sex ökumenn voru þá ákærðir fyrir of hraðan akstur. Ökumaður vöruflutningabíls var þá stöðvaður á Suðurlandsvegi við Reykjavík en sá reyndist með útrunnin ökuréttindi. Bifreiðin var kyrrsett og honum gert að útvega bílstjóra með gild réttindi. Annar ökumaður vöruflutningabíls var stöðvaður og ákærður fyrir að vera ekki með ökumannskort með sér. Rekstrarðili bílsins sætir einnig ákæru vegna þessa. Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu var kallað út vegna elds í íbúðarhúsnæði í síðustu viku. Annars vegar þegar eldur kom upp í kertaskreytingu á heimili á Selfossi. Íbúar hússins höfðu vaknað við flaut reykskynjara og náðu sjálfir að slökkva eldinn en nokkurt tjón varð af reyk í íbúðinni. Fólki varð ekki meint af. Þá kom upp eldur í íbúðarhúsnæði í fjölbýli á Höfn á Þorláksmessukvöld. Starfsmaður félagsþjónustu varð eldsins var og slökkti hann með því að bera vatn á eldinni en hann var í gardínu sem hafði fallið niður í rúm. Ekki kom til þess að slökkvilið væri kallað til og tjón var minniháttar. Húsráðandi var hins vegar fluttur á sjúkrastofnun til aðhlynningar.
Lögreglumál Slökkvilið Samgönguslys Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Erlent Fleiri fréttir Olíumengun í Kópavogslæk Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Sjá meira