Ríkisstjórnin þarf að gefa skýr svör um framtíðarsýn í heimsfaraldri Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar 19. janúar 2022 18:01 Í viðtali við Fréttablaðið um mitt síðasta sumar talaði Þórdís Kolbrún Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins um stefnumótunarvinnu ríkisstjórnarinnar um stefnu og framtíðarsýn í viðbrögðum við heimsfaraldrinum. Þar lýsti hún inntaki vinnunnar sem væri farin af stað og sagði að ríkisstjórnin ætlaði að gefa sér 2-3 vikur til að ljúka henni. Í viðtalinu sagði Þórdís Kolbrún: „Svo stendur upp á okkur að svara því hvernig við ætlum að hafa hlutina til framtíðar. Viðtalið birtist þann 24. júlí, degi eftir að ríkisstjórnin boðaði sóttvarnaaðgerðir innanlands aftur. Það var bakslag. Ríkisstjórnin hafði aðeins tæpum mánuði haldið blaðamannafund þar sem öllum aðgerðum innanlands var aflétt. Bakslagið var þó tímabundið sagði ráðherrann. „Við erum í rauninni að gefa okkur þennan tíma, í raun bara þessar tvær til þrjár vikur, til að vinna þessa vinnu.“ Ríkisstjórnin þarf að sýna forystu Ríkisstjórninni var um mitt síðasta ár því orðið ljóst að hún þyrfti að setja sér eitthvert plan til lengri tíma. Plan sem tæki á þýðingu þess að þátttaka almennings í bólusetningu er á heimsmælikvarða. Plan til að mæta áskorunum heilbrigðisstarfsfólks og álagi á heilbrigðiskerfið. Eitthvert plan og einhverja hugmyndafræði um skólastarf, þar sem smit verða áfram hluti af veruleika okkar en alvarleg veikindi eru blessunarlega afar fátíð. Eitthvert plan fyrir fyrirtækin og atvinnulífið. Plan fyrir menningarlíf og íþróttastarf í landinu. Eitthvert plan þannig að hægt væri að horfa til lengri tíma en bara næstu daga og vikna í lífi og starfi. Framtíðarplan í stað stöðugrar óvissu. Orð ráðherrans voru gríðarlega mikilvæg. Flestum er enda löngu orðið ljóst að heimsfaraldurinn er ekki verkefni sem þjóðfélagið glímir við í skamman tíma og viðbrögð ríkisstjórnarinnar geta því ekki heldur verið til skemmri tíma. Stefnan og planið af hálfu stjórnvalda átti að svara hvernig við ætlum sem þjóðfélag að lifa með Covid í náinni framtíð og mögulega um alla framtíð. Með skýrri sýn í þeim efnum er jafnframt komin leið til að horfa fram á veginn og skapa fólki, fyrirtækjum og samfélaginu öllu skýrari umgjörð en þá óvissu sem við búum við. Hvar er planið? Síðan í júlí hefur hins vegar ekkert heyrst af plani ríkisstjórnarinnar. Vikurnar 2-3 liðu og ráðherrar töluðu ekki lengur um þá vinnu sem sagt hafði verið frá opinberlega. Fyrir jólin birtist svo formaður Sjálfstæðisflokksins í fjölmiðlum og kallaði eftir plani og framtíðarsýn. Þá voru aðgerðir hertar aftur vegna aukinna smita í samfélaginu. Bjarni Benediktsson sagði þá að það væri ákall eftir því að ekki væri aðeins brugðist við ástandinu á grundvelli upplýsinga sem breytast frá degi til dags. Þess vegna þyrfti að teikna upp nýja framtíðarsýn, „eitthvert plan um það hvernig við hyggjumst tryggja sem fyrst að fólk endurheimti eðlilegt líf.“ Orð fjármálaráðherra bera með sér að hann virtist ekki vita af þeirri vinnu sem hans eigin ríkisstjórn tilkynnti um nokkrum mánuðum fyrr. Einmitt um að smíða einhverja sýn til lengri tíma litið. Forystuleysið hrópar á okkur. Ráðherrann virtist ekki heldur sjá fyrir sér að ríkisstjórnin sjálf gæti mótað einhverja slík stefnu og plan. Á sama tíma hefur það gerst aftur og aftur að þegar ríkisstjórnin hefur talið ástæðu til að framlengja sóttvarnaaðgerðir að þá hafa ráðherrar ríkisstjórnarflokkanna þriggja samþykkt þær í ríkisstjórn en ráðherrar Sjálfstæðisflokksins svo lýst yfir andstöðu við eigin ákvarðanir í skrifum á samfélagsmiðlum strax í kjölfarið. Heilbrigðisráðherra hefur svo fengið það hlutverk að gera grein fyrir aðgerðum í samtali við fréttamenn og þá jafnan lýst því yfir að samstaða hafi verið innan stjórnarinnar um þær ákvarðanir sem voru teknar. Hefur ríkisstjórnin gefist upp? Ríkisstjórnin virðist hafa gefist upp fyrir því verkefni að móta sér einhverja framtíðarsýn um viðbrögð við heimsfaraldri eins og boðað var. Sóttvarnayfirvöld hafa afmarkað hlutverk í faraldrinum og samfélagið hefur haft á þeim mikinn skilning. Óhætter aðað segja það um samfélagið í heild sinni að það hefur sýnt samstöðu og þolinmæði. Þjóðfélagið allt hefur fært fórnir. Það hefur heilbrigðisstarfsfólk sannarlega gert. Það hafa skólarnir gert. Það hefur atvinnulífið gert og ákveðnar greinar auðvitað alveg sérstaklega. Það hefur menningarlífið gert. Og það hafa börnin og ungmenni gert sem og foreldrar ungra barna. Það er þess vegna ábyrgðarhluti hversu lítið ríkisstjórnin hefur sjálf gert til þess að draga úr óvissu fólksins í landinu, með því að móta sér einhverja sýn og plan til lengri tíma en 2-3 vikna í senn. Ég lagði þess fyrr í vikunni fram fyrirspurn til Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttur utanríkisráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins um þau orð hennar síðastliðið sumar að von væri á stefnuplaggi um sýn ríkisstjórnarinnar um hvernig á að lifa með veirunni. Það er óskandi að sú fyrirspurn geti ýtt við ríkisstjórninni og hún sýni þá forystu sem nauðsynleg er. Sýni að hún er þess megnug að móta tillögur um hvernig þjóðfélagið getur nálgast eðlilegt líf að nýju. Höfundur er þingmaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Viðreisn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Alþingi Mest lesið Falleinkunn skólakerfis? Helga Þórisdóttir Skoðun Halldór 28.06.2025 Halldór Hvers vegna berðu kross? Hrafnhildur Sigurðardóttir Skoðun Hvar er auðlindarentan? Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Þannig gerum við þetta? Ísak Ernir Kristinsson Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson Skoðun Hætt við að hækka ekki skatta á almenning Bryndís Haraldsdóttir Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Hver borgar brúsann? Ingibjörg Isaksen Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Flokkurinn hans Gunnars Smára? Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Raforkuverð: Stórnotendur og almenningur Ingvar Júlíus Baldursson skrifar Skoðun Hætt við að hækka ekki skatta á almenning Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Skattafíkn í skjóli réttlætis: Tímavélin stillt á 2012 Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Hver borgar brúsann? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Hvers vegna berðu kross? Hrafnhildur Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þannig gerum við þetta? Ísak Ernir Kristinsson skrifar Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Falleinkunn skólakerfis? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þjónusta sem gleður – skilar sér beint í kassann Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Hvar er auðlindarentan? Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Miðflokkurinn – Rödd skynseminnar í borginni Ómar Már Jónsson skrifar Skoðun Virði barna og ungmenna Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Sættir þú þig við þetta? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Alþingi gleymir aftur fötluðum börnum Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lægri gjöld, fleiri tækifæri Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Tölum um stóra valdaframsalsmálið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar Skoðun Öflugar varnir krefjast stöndugra fréttamiðla Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Gott frumvarp, en hvað með verklagið? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Augnablikið Magnús Jóhann Hjartarson skrifar Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar Skoðun Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag Bolli Héðinsson skrifar Skoðun „Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum Eyrún Arnarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál Grímur Atlason skrifar Skoðun Í vörn gegn sjálfum sér? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin stendur með sjúkraliðum Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar
Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar
Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar