Bayern jók forskot sitt á toppnum í fimm marka leik Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. febrúar 2022 19:23 Thomas Müller skoraði fyrsta mark leiksins. Markus Gilliar/GES-Sportfoto via Getty Images Bayern München er nú með níu stiga forskot á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-2 sigur gegn RB Leipzig í kvöld.
Thomas Müller kom heimamönnum í Bayern yfir strax á 12. mínútu leiksins áður en Andre Silva jafnaði metin stundarfjórðungi síðar. Müller hélt svo að hann hefði komið Bayern yfir á nýjan leik þegar hann setti boltann í netið stuttu fyrir hálfleik, en eftir skoðun myndbandsdómara kom í ljós að brotið hafði verið á Josko Gvardiol í aðdraganda marksins og það því dæmt af. Heimamenn náðu þó forystunni fyrir hálfleik þegar Robert Lewandowski skallaði fyrirgjöf Kingsley Coeman í netið á 44. mínútu. Staðan var því 2-1 í hálfleik, Bayern í vil, en gestirnir jöfnuðu metin á 53. mínútu með marki frá Christopher Nkunku eftir stoðsendingur frá Konrad Laimer. Fimm mínútum síðar varð Josko Gvardiol svo fyrir því óláni að setja boltann í sitt eigið net og heimamenn í Bayern því komnir með forystuna í þriðja skiptið í leiknum. Þetta reyndist seinasta mark leiksins og niðurstaðan því 3-2 sigur Bayern sem situr enn á toppi deildarinnar. Bayern er með 52 stig eftir 21 leik, níu stigum meira en Dortmund sem situr í öðru sæti. RB Leipzig situr hins vegar í sjöunda sæti deildarinnar með 31 stig, þremur stigum minna en Union Berlin sem situr í fjórða og seinasta Meistaradeildarsætinu.
Þýski boltinn Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti Eiríkur nýr þjálfari Vals Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Sjá meira