Fjórar líkamsárásir og vinnuslys Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. febrúar 2022 06:36 Það var nóg að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og nótt, meðal annars nokkrum er tengdust líkamsárásum.
Kvöldið hófst um klukkan 17.30 þegar einstaklingur gaf sig fram á lögreglustöð og sagðist hafa orðið fyrir líkamsárás. Ekkert fleira stendur um atvikið í samantekt úr dagbók lögreglu en um klukkan 19.30 var tilkynnt um aðra líkamsárás í póstnúmerinu 111 og í því tilviki var þolandinn fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Upp úr klukkan 23 barst þriðja beiðni kvöldsins um aðstoð vegna líkamsárásar og hótana og þá var tilkynnt um fjórðu líkamsárás í póstnúmerinu 105 hálftíma seinna en í því tilviki var gerandi handtekinn á vettvangi og vistaður í fangageymslu. Lögregla og sjúkrabifreið voru einnig kölluð út að veitingastað rétt fyrir klukkan 19 þar sem starfsmaður hafði slasað sig. Lögregla kannaði aðstæður á vettvangi og skýrsla verður rituð um málið. Þá var einstaklingur handtekinn rétt fyrir klukkan 22 fyrir að hafa í hótunum og fara ekki að fyrirmælum lögreglu. Hann var vistaður í fangageymslu. Annar var síðan handtekinn rétt fyrir klukkan 1 í nótt fyrir að hafa í hótunum í póstnúmerinu 107. Lögregla hafði einnig afskipti af manni sem svaf í bifreið en hann reyndist vera með fíkniefni í fórum sínum. Þá var annar ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum en sá reyndi að ljúga til um nafn og reyndist hafa verið sviptur ökuréttindum sínum.
Lögreglumál Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira