Innlent

Umdeild ákvörðun og vanhæfi kjörins fulltrúa gætu kostað Dalabyggð skildinginn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fallegur sumardagur á Búðardal í Dalabyggð.
Fallegur sumardagur á Búðardal í Dalabyggð. Vísir/Vilhelm

Sveitarfélagið Dalabyggð hefur verið dæmt til að greiða skólabílstjóra 800 þúsund krónur í miskabætur. Bílstjórinn var starfsmaður fyrirtækis sem tók að sér skólaakstur í sveitarfélaginu en sagði starfsmanninum upp vegna sjö ára ásökunar um kynferðislega áreitni. Þá var skaðabótaábyrgð Dalabyggðar í málinu viðurkennd.

Landsréttur sneri dómi Héraðsdóms Vesturlands frá því í janúar í fyrra sem sýknaði sveitarfélagið af kröfu mannsins. Í samantekt Landsréttar um málið kemur fram að eftir útboð Ríkiskaupa á skólaakstri í Dalabyggð var tilboði eins fyrirtækis tekið.

Í kjölfarið gerði félagið ráðningarsamning við bílstjórann. Sveitarstjórnarfulltrúi hafði samband við Eyjólf Ingva Bjarnason, sveitarstjóra Dalabyggðar, og tjáði honum að sér litist ekki á að umræddur bílstjóri annaðist skólaakstur. Ástæðan var sú að sjö árum áður hefði sá verið kærður fyrir kynferðislega áreitni gegn barni sveitarstjórnarfulltrúans, en málið var fellt niður.

Skömmu síðar var sú ákvörðun bókuð í trúnaðarbók sveitarstjórnar að hún samþykkti ekki karlmanninn sem skólabílstjóra og var ákvörðunin tilkynnt fyrirtækinu sem hafði ráðið hann til starfa. Fyrirtækið sagði bílstjóranum upp störfum. Fyrir dómi krafðist bílstjórinn miskabóta og viðurkenningar á skaðabótaábyrgð Dalabyggðar vegna ákvörðunar sveitarstjórnarinnar.

Landsréttur sagði að ákvörðun Dalabyggðar um að samþykkja karlmanninn ekki sem skólabílstjóra hefði verið stjórnvaldsákvörðun í máli sem karlmaðurinn hefði átt aðild að. Ákvörðunin hefði verið tekin án viðhlítandi rannsóknar og bílstjóranum ekki gefið færi á að koma athugasemdum að eða bregðast við ásökunum.

Auk þess hefði sveitarstjórnarfulltrúinn verið vanhæfur til að taka þátt í meðferð og úrlausn málsins. Dalabyggð yrði að bera hallann af óvissu um hver niðurstaða málsins hefði orðið ef meðferð þess hefði verið fullnægjandi.

Var Dalabyggð gert að greiða karlmanninum miskabætur upp á 800 þúsund krónur og viðurkennt að sveitarfélagið bæri skaðabótaábyrgð á tjóni bílstjórans vegna tekjumissis.

Dómur Landsréttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×