Stjórnvöld ráðast í úttekt á aðstæðum barna innan trúarhópa Sunna Valgerðardóttir skrifar 30. mars 2022 19:00 Rakel Íris greindi frá erfiðri æsku og uppvexti innan Votta Jehóva. Hún var rekin úr söfnuðinum fyrir átta árum og hefur ekki fengið að hitta fjölskyldu sína síðan. Rakel, og fleiri fyrrverandi meðlimir sértrúarsafnaða, hafa kallað eftir aðkomu stjórnvalda þegar kemur að aðstæðum barna innan trúfélaga á Íslandi. Vísir Barnamálaráðherra segir að tilvonandi úttekt stjórnvalda á aðstæðum barna í trúarhópum mikilvægt skref. Varaþingmaðurinn sem átti frumkvæði að gerð skýrslunnar segir það hafa komið á óvart hversu lítið þessi mál hafi verið rannsökuð hér. Skoðað verður hvort það þurfti sérstakt eftirlit með æskulýðsstarfi í trúfélögum.
Kompás og fréttastofan hafa fjallað um trúarofbeldi og aðstæður fólks innan kristinna sértrúarsafnaða, þar sem fyrrverandi meðlimir hafa stigið fram og lýst reynslu sinni. Eva Dögg Davíðsdóttir átti frumkvæði að skýrslubeiðninni til barnamálaráðherra þegar hún sat á þingi sem varaþingmaður VG nú í mars. „Ég sá að það hefur í raun ekki verið farið út í svona athuganir hvernig börn standa innan trú og lífsskoðunarfélaga. Og þá á ég við þennan stóra hóp, 80 þúsund börn, sem eru innan trú- og lífsskoðunarfélaga, líka þjóðkirkjunnar,” segir Eva. Skoða hvort það þurfi sérstakt eftirlit með starfinu Níu þingmenn úr fjórum flokkum eru á þingskjalinu, flest úr VG, en líka frá Samfylkingu, Viðreisn og Pírötum. Eva Dögg bjó í Noregi og segir hún töluverða umræðu þar um aðstæður barna innan trúarhópa. „Það kom mér á óvart að sjá hversu lítið við höfum gert til að gæta að réttarstöðu barna innan trúfélaga.” Skýrslan verður í fimm liðum og verður þar meðal annars skoðað hvaða afleiðingar það getur haft á börn að alast upp við afmarkaða menningu innan trúfélags, hvaða hindrunum börn kunni að mæta ef þau yfirgefa trúfélag, hvort það eigi að auka eftirlit með æskulýðsstarfi innan trúfélaga. Eva Dögg Davíðsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænnaVísir/Vilhelm Fyrsta úttektin á stöðu barna innan trúarhópa Ásmundur Einar Daðason barnamálaráðherra segir aðkomu fleiri ráðuneyta nauðsynlega og að þetta sé tímabært skref að taka. „Börn eiga að fá að hafa sína rödd og þau eiga að hafa sín réttindi. Og það er alveg sama hvar það er í íslensku samfélagi að börn búa við óréttlæti eða að raddir þeirra fá ekki að heyrast eða þau fá ekki að segja sína skoðun, þá þurfum við að grípa inn í.” „Mér vitanlega hefur ekki verið unnin vinna á sambærilegum nótum áður,” segir Ásmundur Einar. „Ég lít á þessa skýrslubeiðni að hún sé líka hugsuð til þess að við tökum þennan þátt sérstaklega fyrir og það er gott tilefni til þess. Og það að það séu þingmenn frá fleiri en einum flokki á henni, það gefur líka tilefni til þess að sýna að þetta er mikilvægt skref í því að taka réttindamál barna á næsta stig.”
Trúmál Alþingi Kompás Tengdar fréttir Þingmenn vilja að Ásmundur rannsaki aðstæður barna innan trúfélaga á Íslandi Hópur þingmanna þvert á flokka hefur óskað eftir skýrslu frá Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra, um stöðu barna innan trúfélaga. Skýrslubeiðnin er sett fram vegna fjölda þeirra sem hafa stigið fram í fjölmiðlum og lýst reynslu sinni í sértrúarsöfnuðum á Íslandi. 28. mars 2022 16:46 Útskúfað úr ríki Guðs og standa ein eftir Ung kona sem var rekin úr söfnuði Votta Jehóva, hefur ekki fengið að hitta fjölskylduna sína í átta ár. Fyrrverandi meðlimir Vottanna lýsa gífurlegu andlegu ofbeldi eftir útskúfun, harðræði gegn börnum í söfnuðinum og hvernig það skorti fagleg úrræði og aðstoð eftir að hafa hætt í sértrúarsöfnuði. Þær kalla eftir því að ofbeldið, sem hefur verið látið viðgangast áratugum saman, hætti og að ríkið stígi inn í. 14. mars 2022 07:00 Engin úrræði fyrir þolendur ofbeldis og útskúfunar í ríkisstyrktum trúfélögum Engin fagleg úrræði eru til staðar fyrir fólk sem hættir í sértrúarsöfnuðum á Íslandi og segja margir fyrrverandi meðlimir að mikil þörf sé á slíku. Þingmaður segir skorta eftirlit með starfsemi trúarhreyfinga og að sóknargjöld séu barn síns tíma. Fyrrverandi meðlimir Votta Jehóva lýsa andlegu ofbeldi eftir útskúfun og harðræði gegn börnum í söfnuðinum. 13. mars 2022 19:31 Flúðu trúarofbeldi í sértrúarsöfnuðum á Íslandi Mörg þúsund Íslendingar hafa tilheyrt sértrúarsöfnuðum. Ein sterkustu einkenni hópanna eru strangt skipulag, mikið kennivald og félagslegt taumhald sem er vaktað af valdamiklum leiðtoga. Fólk sem hættir í söfnuðunum upplifir flest depurð, kvíða og áfallastreitu eftir dvölina og mörg hafa orðið fyrir alvarlegu ofbeldi. Í Kompás köfum við ofan í hugtakið trúarofbeldi og ræðum við fyrrverandi meðlimi sértrúarsafnaða. 8. mars 2022 07:01 Útskúfað úr Vottunum og dóttirin lokaði á samskipti Móðir mín, þýsk kona sem tapað hafði öllu sínu, heimili sínu tvisvar í loftárásum, bróður og föður á vígvellinum, sem og öðrum nákomnum í brjálæði heimstyrjaldarinnar, kom til Íslands eftir stríð, kynntist manni eftir tveggja ára dvöl, giftist honum og eignuðust þau tvö börn. 19. mars 2022 09:34 „Eruð þið að pína barnið til að segja þetta?“ Malín Brand, fyrrverandi Vottur Jehóva, segist hafa sagt skilið við allt nema geðheisluna þegar hún yfirgaf söfnuðinn árið 2004. Malín er á meðal fyrrverandi Votta sem stigið hafa fram undanfarna daga í kjölfar umfjöllunar fréttastofu um trúmál og lýst því trúarofbeldi. 17. mars 2022 14:38 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira
Þingmenn vilja að Ásmundur rannsaki aðstæður barna innan trúfélaga á Íslandi Hópur þingmanna þvert á flokka hefur óskað eftir skýrslu frá Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra, um stöðu barna innan trúfélaga. Skýrslubeiðnin er sett fram vegna fjölda þeirra sem hafa stigið fram í fjölmiðlum og lýst reynslu sinni í sértrúarsöfnuðum á Íslandi. 28. mars 2022 16:46
Útskúfað úr ríki Guðs og standa ein eftir Ung kona sem var rekin úr söfnuði Votta Jehóva, hefur ekki fengið að hitta fjölskylduna sína í átta ár. Fyrrverandi meðlimir Vottanna lýsa gífurlegu andlegu ofbeldi eftir útskúfun, harðræði gegn börnum í söfnuðinum og hvernig það skorti fagleg úrræði og aðstoð eftir að hafa hætt í sértrúarsöfnuði. Þær kalla eftir því að ofbeldið, sem hefur verið látið viðgangast áratugum saman, hætti og að ríkið stígi inn í. 14. mars 2022 07:00
Engin úrræði fyrir þolendur ofbeldis og útskúfunar í ríkisstyrktum trúfélögum Engin fagleg úrræði eru til staðar fyrir fólk sem hættir í sértrúarsöfnuðum á Íslandi og segja margir fyrrverandi meðlimir að mikil þörf sé á slíku. Þingmaður segir skorta eftirlit með starfsemi trúarhreyfinga og að sóknargjöld séu barn síns tíma. Fyrrverandi meðlimir Votta Jehóva lýsa andlegu ofbeldi eftir útskúfun og harðræði gegn börnum í söfnuðinum. 13. mars 2022 19:31
Flúðu trúarofbeldi í sértrúarsöfnuðum á Íslandi Mörg þúsund Íslendingar hafa tilheyrt sértrúarsöfnuðum. Ein sterkustu einkenni hópanna eru strangt skipulag, mikið kennivald og félagslegt taumhald sem er vaktað af valdamiklum leiðtoga. Fólk sem hættir í söfnuðunum upplifir flest depurð, kvíða og áfallastreitu eftir dvölina og mörg hafa orðið fyrir alvarlegu ofbeldi. Í Kompás köfum við ofan í hugtakið trúarofbeldi og ræðum við fyrrverandi meðlimi sértrúarsafnaða. 8. mars 2022 07:01
Útskúfað úr Vottunum og dóttirin lokaði á samskipti Móðir mín, þýsk kona sem tapað hafði öllu sínu, heimili sínu tvisvar í loftárásum, bróður og föður á vígvellinum, sem og öðrum nákomnum í brjálæði heimstyrjaldarinnar, kom til Íslands eftir stríð, kynntist manni eftir tveggja ára dvöl, giftist honum og eignuðust þau tvö börn. 19. mars 2022 09:34
„Eruð þið að pína barnið til að segja þetta?“ Malín Brand, fyrrverandi Vottur Jehóva, segist hafa sagt skilið við allt nema geðheisluna þegar hún yfirgaf söfnuðinn árið 2004. Malín er á meðal fyrrverandi Votta sem stigið hafa fram undanfarna daga í kjölfar umfjöllunar fréttastofu um trúmál og lýst því trúarofbeldi. 17. mars 2022 14:38