Sautján ára fluttur með sjúkrabíl eftir árás Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 23. apríl 2022 07:26 Mikill erill var á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Vísir/Vilhelm Ráðist var á sautján ára dreng í miðborg Reykjavíkur klukkan hálf fjögur í nótt. Árásarmennirnir flúðu af vettvangi en drengurinn var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku. Líðan drengsins liggur ekki fyrir.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en um áttatíu mál voru skráð í dagbók lögreglunnar í nótt. Tólf gistu í fangageymslu. Þá var sautján ára drengur handtekinn grunaður um eignaspjöll og brot á lögreglusamþykkt rétt eftir klukkan þrjú í nótt. Haft var samband við forráðamenn sem komu og sóttu drenginn. Ráðist á starfsmann í verslun klukkan 18 í gærkvöldi þegar hann var að loka versluninni. Árásarmaðurinn réðst á hann með höggum og spörkum og sló hann síðan í bakið með barefli. Maðurinn hafði einnig í hótunum við fólk á svæðinu en starfsmaðurinn kannaðist við árásarmanninn. Hann fannst rúmlega klukkustund síðar og var handtekinn og vistaður í fangageymslu. Þá tilkynnti maður um líkamsárás á veitingastað í Hafnarfirði skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt. Hann sagðist hafa verið sleginn í andlitið en árásarmaðurinn var farinn af vettvangi þegar lögregla kom á staðinn. Harður árekstur varð á Höfðabakka í gær en talið er að ökumaður hafi ekið gegn rauðu ljósi. Einn meiddist lítillega. Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og eða fíkniefna. Sautján ára ökumaður var meðal annars tekinn fyrir að hafa ekið á 92 kílómetra hraða á klukkustund á götu þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 kílómetra hraði.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira