Ákærður fyrir að hafa keypt kynlífstæki fyrir fimm stúlkur og svo nauðgað þeim Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 11. maí 2022 12:50 Maðurinn er ákærður í sautján liðum fyrir brot gegn fimm ólögráða stúlkum. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað fjórum ólögráða stúlkum, sumum oftar en einu sinni, ítrekað og beitt þær allar, auk þeirrar fimmtu, ítrekuðu kynferðisofbeldi og -áreiti. Aðalmeðferð í málinu er lokið fyrir Héraðsdómi Reykjaness og er dómsuppsaga á dagskrá 19. maí næstkomandi. Þinghald í málinu er lokað.
Maðurinn er ákærður fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn fimm börnum og er ákæran í sautján liðum. Maðurinn er ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn barni, brot gegn barnaverndar- og áfengislögum og lögum um rafrettur, með því að hafa frá mars til byrjun nóvember í fyrra ítrekað haft kynferðislegt tal við unga stúlku á Snapchat og fengið hana ítrekað til að senda sér kynferðislegar myndir og myndbönd, meðal annars af berum brjóstum og kynfærum. Þetta kemur fram í ákærunni, sem fréttastofa hefur undir höndum. Fram kemur í ákærunni að maðurinn hafi jafnframt sent stúlkunni ítrekað myndir af berum kynfærum sínum auk þess að senda henni myndir af öðrum brotaþola hafa við sig munnmök. Þá hafi hann gefið stúlkunni ýmis kynlíshjálpartæki, nærfötu, nikótínpúða, rafrettur, áfyllingar á rafrettur og áfengi gegn því að hún sendi honum myndefnið. Maðurinn er jafnframt ákærður fyrir að hafa nauðgað stúlkunni í tvígang. Hann hafi látið hana hafa við sig munnmök, stungið fingrum í leggöng hennar og fengið hana til að stinga fingri í endaþarm sinn og taka myndband af því sem hún svo sendi manninum. Fram kemur í ákærunni að á tveimur farsímum hans hafi fundist níu myndbönd og 52 ljósmyndir af stelpunni sem sýndu hana á kynferðislegan og klámfenginn hátt, sem hann er jafnframt ákærður fyrir. Ákærður fyrir að hafa fengið tvo brotaþola til að taka sig upp i kynlífsathöfnum Í sjötta lið ákærunnar er maðurinn ákærður fyrir kynferðislega áretni með því að hafa í upphafi síðasta árs ítrekað fengið aðra stúlku til að senda sér kynferðislegt myndefni, sent henni kynferðislegt myndefni af öðrum stúlkum og gefið henni kynlífshjálpartæki og nærföt gegn því að hún sendi honum kynferðislegt efni. Þá er maðurinn ákærður vegna eins myndbands og þriggja ljósmynda sem fundust á farsímum hans af stelpunni. Maðurinn er jafnframt ákærður fyrir að hafa fengið fyrrnefndar tvær stúlkur með ólögmætri nauðung í krafti yfirburðarstöðu sinnar afhent fyrrnefndri stúlku áfestanlegan gervilim og fengið hana og síðarnefndu stúlkuna til að hafa með honum kynferðismök. Hann hafi látið stúlkurnar taka athæfið upp á myndband sem þær hafi svo sent manninum. Sagður hafa gefið þeim kynlífshjálpartæki og nærföt Maðurinn er ákærður fyrir að hafa beitt þriðju stúlkuna sambærilegri kynferðislegri áreitni á Snapchat árið 2018 með því að hafa fengið hana til að senda sér kynferðislegar myndir og sent henni kynferðislegar myndir og myndbönd. Hann er jafnframt ákærður fyrir að hafa nauðgað þriðju stúlkunni tvívegis með ólögmætri nauðung og án samþykkis. Hann hafi annars vegar nauðgað henni í bifreið og hins vegar á gistiheimili. Hann hafi í bæði skiptin tekið myndbönd af nauðguninni og sent þau á stúlkurnar tvær sem nefndra voru hér að ofan. Fram kemur í ákæru að þrjár kynferðislegar ljósmyndir hafi fundist af stúlkunni á síma mannsins. Maðurinn er auk þess ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn fjórðu stúlkunni með því að hafa frá því í ágúst 2020 til apríl 2021 ítrekað viðhaft kynferðislegt tal við hana á Snapchat og fengið hana til að senda af sér kynferðislegar myndir og myndbönd. Maðurinn hafi auk þess gefið stúlkunni kynlífshjálpartæki og nærföt og hvatt hana til að nota þau og senda sér myndefni af því. Þá er maðurinn ákærður fyrir að hafa ítrekað reynt að mæla sér mót við fjórðu stúlkuna í því skyni að hafa við hana samræði eða önnur kynferðismök. Fara fram á 2,5 til fimm milljónir í miskabætur Maðurinn er ákærður fyrir að hafa viðhaft viðlíka háttsemi við fimmtu stúlkuna á Snapchat. Hann hafi þar talað við hana kynferðislega, fengið hana til að senda af sér myndir og myndbönd og sent henni kynferðislegar myndir og myndbönd af sér og öðru fólki. Fram kemur í ákærunni að hann hafi jafnframt afhent stúlkunni kyhnlífshjálpartæki gegn því að hún sendi honum myndefni. Maðurinn er sömuleiðis ákærður fyrir að hafa reynt að mæla sér mót við stúlkuna til þess að hafa við hana kynferðismök og fyrir nauðgun gegn stúlkunni með því að hafa í júlí 2020 fengið stúlkuna til að fróa sér með notkun kynlífshjálpartækis sem maðurinn gaf henni og taka myndband af því sem hún svo sendi honum. Foreldrar fyrstu stúlkunnar fara fram á að maðurinn greiði henni 4,5 milljón króna í miskabætur. Þá fara foreldrar annarrar stúlkunnar fram á þriggja milljóna króna miskabætur. Foreldrar þriðju stúlkunnar fara fram á fimm milljónir króna í skaða-og miskabætur og foreldrar fjórðu stúlkunnar fara fram á 2,5 milljónir króna fyrir hönd sinnar dóttur, sem foreldrar fimmtu stúlkunnar gera sömuleiðis. Dómur verður kveðinn upp í málinu 19. maí í Héraðsdómi Reykjaness.
Dómsmál Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Mál Brynjars Joensen Creed Mest lesið „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent „Þetta er innrás“ Innlent Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Innlent Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Erlent Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Innlent Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Innlent Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent Mínútuþögn á Menningarnótt Innlent Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Erlent Fleiri fréttir Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Höfuðpaur fær þremur mánuðum lengri dóm en burðardýr Veðrið sem hlaupararnir á laugardag geta búist við „Þetta er innrás“ Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Óbreyttir stýrisvextir, samræmd námspróf og breytt snið á Menningarnótt Kjósa um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í september Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Mínútuþögn á Menningarnótt Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf „Það er engin sleggja“ Slökktu eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Ísland frumstætt samanborið við Noreg Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór „Á farsælum þrettán ára ferli hef ég bara heyrt af þessu tvívegis“ Ekkert bendi til tengsla milli bankastuldsins og Gufunesmálsins Tilkynnt um par að slást Norskir kafarar og dularfullur hraðbankaþjófnaður Líkið ekki innan um aðra sjúklinga Sjá meira