Fjölmenni í fangageymslum lögreglu á Hverfisgötu í nótt Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 20. maí 2022 07:21 Alls komu fimm fíkniefnamál upp og þá voru fjórir ökumenn stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum. Vísir/Vilhelm Sjö einstaklingar gistu fangageymslurnar á Hverfisgötu í nótt, sem lögregla segir að teljist nokkuð mikið á virkum degi. Alls komu fimm fíkniefnamál upp og þá voru fjórir ökumenn stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum.
Í Kópavogi reyndi maður að stinga lögregluna af þegar hún ætlaði að stöðva för hans, en maðurinn hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Maðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum heldur reyndi að komast undan og hóf lögregla þá eftirför. Sú eftirför varð þó ekki löng því maðurinn ók fljótlega á annan bíl. Að því loknu reyndi hann að flýja á tveimur jafnfljótum en lögreglumenn hlupu hann uppi og handtóku. Maðurinn sýndi þó nokkra mótspyrnu, að sögn lögreglu og var hann settur í fangageymslu uns hægt verður að yfirheyra hann. Annar af gestum fangelsisins var staðinn að verki við innbrot í fyrirtæki í austurborginni og annar var gómaður við húsleit í Kópavogi þar sem verið var að rækta kannabis. Í miðborginni voru síðan tveir eftirlýstir aðilar handteknir og færðir á lögreglustöð. Reyndi annar þeirra að etja kappi við lögreglumenn í spretthlaupi, en varð að láta í minni pokann fyrir þrautþjálfuðum laganna vörðum.
Lögreglumál Reykjavík Kópavogur Mest lesið Eins og að vera fangi í eigin líkama Fréttir „Faðir minn ætti að deyja í fangelsi“ Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Heimurinn er að breytast, hvað sem er getur gerst“ Erlent Byssumaður í Pizzagate-málinu skotinn til bana Erlent Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Innlent „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ Erlent Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Innlent Viðræður í kjaradeilu kennara sigldu í strand Innlent Þórdís vill ekki fresta landsfundi Innlent Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn ræða seinkun en Framsókn skoðar að flýta Strand í viðræðum og jákvæður þrýstingur frá Trump Þórdís vill ekki fresta landsfundi Viðræður í kjaradeilu kennara sigldu í strand Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Árið í fyrra það heitasta frá upphafi mælinga 85 ára og situr við alla daga og tálgar fugla úr íslensku birki Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Breytingar á Reykjavíkurflugvelli og asahláka Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Ekkert verður af kaupunum á Krafti „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Taka við rekstri Sæborgar á Skagaströnd Endurvekja Á allra vörum til að byggja nýtt Kvennaathvarf Fjölga leikskólaplássum um allt að 300 í Reykjavík Framlengir stuðningskerfi um ár en ræðst í endurskoðun Gular viðvaranir vegna hvassviðris og rigningar Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Leikskólarýmum fjölgað og brýnt að skýra áfengislöggjöfina Stækka leikskólann Múlaborg við Ármúla Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Hættir sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Framsóknarmenn í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Laxalús í sjókvíum smitist greiðlega í villta laxa Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Framkvæmdir við stóran áfanga Borgarlínu á næsta leiti „Kæmi slíkt upp í Reykjavík yrði gengið fljótt til verks“ Sjá meira