Fátt virðist geta komið í veg fyrir meirihluta BSPC í borginni Jakob Bjarnar skrifar 24. maí 2022 11:59 Einar Þorsteinsson og Dagur B. Eggertsson. Afar vel fór á með fulltrúum flokkanna fjögurra sem eru að hefja viðræður um meirihlutasamstarf í borginni. Ekki tókst að kreista neitt uppúr þeim um hver verði næsti borgarstjóri þó mikið væri til þess reynt á nýafstöðnum blaðamannafundi. Vísir/Ragnar Visage Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í borginni boðaði til blaðamannafundar í Grósku í Vatnsmýri ásamt oddvitum Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar.
Þar var tilkynnt að þau hafi ákveðið að efna til viðræðna um meirihluta í borgarstjórn. Afar vel fór á með þeim sem þar töluðu. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði að í samtölum þeirra í milli hafi ríkt mikill málefnalegur samhljómur, traust og trúnaður; það væri verið að leggja upp í nýtt tímabil. „Ég er mjög ánægður og bjartsýnn og hlakka til þess að verja næstu dögum með þessu ágæta fólki að tala um borgina okkar.“ Ríkur samstarfsvilji Fram kom á fundinum að tímarammi sá sem litið er til séu tvær dagsetningar en umboð fráfarandi borgarstjórnar rennur út 1. júní, og fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar verður þann 7. Dagur sagði að ekki stæði til að setja óþarflega langan tímaramma og verkáætlun verður lög niður í dag eða á morgun. Þórdís Lóa, oddviti Viðreisnar, sagðist til í breytingar og að skýr málefnaleg samstaða væri milli flokkanna um aðgerðir í samgöngu-, húsnæðis- og skipulagsmálum. Vísir/Ragnar Visage Nú hefur ekki tíðkast að boðað sé sérstaklega til blaðamannafundar til þess að tilkynna um viðræður og það var einmitt spurning sem fulltrúi fréttastofunnar bar upp, hvers vegna blaðamenn væru boðaðir af því tilefni? „Mér þótti mikilvægt að gefa fjölmiðlum kost á að spyrja spurninga,“ sagði Einar. Hann sagði að skorað hafi verið á þá Framsóknarmenn að taka af skarið. „Ég sé samhljóm milli þessara flokka í ýmsum málum,“ sagði Einar og nefndi að upplegg síns flokks hafi verið tími til breytinga. Hann sagðist fara með það í viðræðurnar og nú sé það samtal hafið. „Nú er að sjá hvort vilji sé fyrir hendi og ég fæ ekki betur séð eftir samtöl að svo sé; ríkur vilji til samstarfs.“ Ekkert fæst uppgefið um hver sest í borgarstjórastólinn Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar sagði að nú væri nýtt kjörtímabil að hefjast og þau í Viðreisn væru til í breytingar. „Skýrt í okkar huga að við erum til í breytingar. Hefja viðræður á miðjunni.“ Dóra Björt, oddviti Pírata, sagði það kost að mynda fjögurra flokka meirihluta. Fólki þyrfti þannig að tala sig að niðurstöðu og það væri lýðræðislegt.Vísir/Ragnar Visage Blaðamenn reyndu að kreista út úr fulltrúum flokkanna hver yrði borgarstjóri en höfðu ekki erindi sem erfiði. Dagur sagðist ítrekað hafa nefnt að hann gengi ekki til þessara viðræðna með neina úrslitakosti að leiðarljósi: „Nú förum við í að ræða málefnin og verkaskiptinguna í lokin,“ sagði borgarstjóri. Þórdís Lóa var spurð hvers vegna Viðreisn, sem skilgreinir sig til hægri, hafi ekki skoðað möguleika á samstarfi flokka sem skilgreina sig einnig sem slíka. „Viðreisn er nútímalegur hægrisinnaður miðjuflokkur,“ sagði Þórdís Lóa. Hún sagði Viðreisn vera meira á miðjunni og flokkurinn sé í viðræðum út frá þeim málefnum sem þau lögðu áherslu á í kosningabaráttunni: „Þar teiknuðust upp skýrar línur, samgöngu-, skipulags- og húsnæðismálum.“ Breytingar og breytingar Gengið var á Einar með það hvort ekki væri erfitt að teknu tilliti til slagorðs um breytingar að ganga til þessara viðræðna flokka sem hafa verið við stjórn í borginni. Þar hafi verið skýrskotað til breytinga á forystu. Einar sagðist telja að borgarbúar hafi aðallega kosið út frá málefnunum. Vissulega breytingum á forystu en þessar breytingar sneru þó einkum og aðallega að ýmsum velferðarmálum svo sem húsnæðismálum. Einar, oddviti Framsóknarflokksins, sagði það vissulega rétt að skírskotað hafi verið til breytinga í forystu borgarinnar í kosningabaráttunni. En hann taldi þó að kjósendur hafi fremur litið til málefnanna en þess hver væri í hvaða stólum.Vísir/Ragnar Visage „Það held ég að hafi ráðið úrslitum þegar kjósendur greiddu atkvæði,“ sagði Einar og ítrekaði að hann teldi afarkosti um að Framsókn fengi borgarstjórastólinn ekki skynsamlega. Mikilvægt væri að ræða málefnin fyrst. Þá var spurningu beint til borgarstjóra, sem hefði hvað gleggsta yfirsýn yfir málefni borgarinnar, hvaða mál hann teldi að gætu orðið erfið í viðræðunum? Dagur sagði að þau væru að hefja viðræðurnar. Flestir flokkanna hafi sett fram skýra málefnasýn og þar eigi flokkarnir fjórir samleið. Hann sagðist ekki kvíða neinu í þeim efnum. „Þetta eru ekki eins flokkar og galdurinn felst í því að ná saman um það sem mestu skiptir.“ Málefnin fyrst og svo verður stólum úthlutað Á fundinum var bent á að sá meirihluti sem til stæði að mynda hefði rúman meirihluta, hvort ekki væri einum ofaukið, kannski Viðreisn? Dóra Björt Guðjónsdóttir oddviti Pírata varð til svara og sagðist telja að það hefið verið gagnlegt í fráfarandi meirihluta að þar væru fjórir flokkar. Á því væri lýðræðisleg áferð og fleiri raddir kæmu að. „Við munum þurfa að ræða okkur niður á lýðræðislega niðurstöðu og ég tel það gagnlegt og lýðræðislegt. Því er gott að það séu fleiri flokkar en færri. Það getur verið faglegt að þurfa að ræða okkur að niðurstöðu. Við ættum að geta fundið málefnalegan samhljóm.“ Dagur sagðist bjartsýnn á að viðræðurnar skiluðu árangri, eiginlega var tónninn í honum sá að vandséð er hvernig þær klúðrist; slík var einingin á blaðamannafundinum.Vísir/Ragnar Visage Öll sögðu þau að fyrst yrðu málefnin rædd, þau væru það sem mestu skipti og verkaskipting kæmi síðar. Þar hlyti að finnast ásættanleg niðurstaða. Dagur sagðist hafa góða reynslu af því að vinna með Viðreisn og Pírötum, og reyndar Framsóknarflokki einnig frá því að R-listinn var og hét. „Með því að mynda sterkan og góðan meirihluta erum við alls ekki að segja að við ætlum ekki að hlusta á aðra í borgarstjórn, bæði til hægri og vinstri. Reynt að leysa sem flest mál í breiðri sátt.“ Hvers vegna telur reynslulaus Einar sig eiga tilkall til borgarstjórastóls? Björn Þorláksson á Fréttablaðinu/Hringbraut spurði Einar hreint út hvernig á því stæði að hann, reynslulaus maðurinn af málefnum borgarinnar, sem hlytu að vera flókin, hefði talað þannig að hann ætti allt eins að verða borgarstjóri. Fátt getur komið í veg fyrir að þessir flokkar, Samfylking, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Píratar myndi meirihluta í borginni og það áður en langt um líður.Vísir/Ragnar Visage „Góð spurning,“ sagði Einar. Hann sagði að það hlyti að ráðast út frá því hvernig kjósendur ráðstöfuðu atkvæðum sínum. „Ég ætla ekki að úttala mig um það hver eigi að vera borgarstjóri.“ Fundinum lauk með spurningu um hvort óðagot væri að ræða en það væri svo að framkvæmdastjóri Grósku hafi komið af fjöllum þegar blaðamenn mættu á staðinn, hún vissi ekkert að til stæði að halda þar blaðamannafund? Hver ákvað að boða til fundar þarna? Borgarstjórinn ákvað að taka þetta á sig og sagði þau hafa leitað til framkvæmdastjóra Vísindagarða, en ekki Grósku og töldu sig vera með þetta á hreinu. „Og dásamlegt að vera hér, í miðstöð nýsköpunar í borginni.“
Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2022 Samfylkingin Viðreisn Píratar Framsóknarflokkurinn Tengdar fréttir Framsókn, Samfylking, Píratar og Viðreisn hefja formlegar viðræður í Reykjavík Framsóknarflokkurinn í Reykjavík hefur boðið Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn til formlegra viðræðna um myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. 24. maí 2022 10:06 Mest lesið Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Innlent Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Innlent 8,8 stiga skjálfti í Rússlandi: Flóðbylgjuviðvaranir gefnar út víða um Kyrrahaf Erlent Lögreglan leitar þessara manna Innlent „Það þarf sennilega að moka þennan bíl upp“ Innlent Fjöldi ferðamanna slíkur að rotþróin ræður ekki við það Innlent „Hann stal henni“ Erlent Veðurspáin fyrir helgina að skána Innlent „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Innlent Langþreyttur á bensínbrúsum og „bílakirkjugarði“ Innlent Fleiri fréttir Rússnesk herflugvél mætt í Landeyjarnar „Ég held að þetta sé ekki bóla“ Kona flutt á spítala eftir fjóhjólaslys Vara við að gangast undir fegrunarmeðferðir hjá óviðurkenndum aðilum „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Barst tilkynning um olíustuld í Hafnarfirði „Léleg blaðamennska“ sem byggi á upphrópunum og hatri á atvinnulífi Ítrekað ofbeldi, skelfdur Íslendingur eftir skjálfta og padel-æði „Það þarf sennilega að moka þennan bíl upp“ Leggja stöðvunarkröfu á framkæmdir við Hvammsvirkjun Lögreglan leitar upplýsinga um þennan mann Lögreglan leitar þessara manna Eldur kviknaði í hjúkrunarheimili á Höfn Stöðfirðingar þreyttir á ferðamönnum sem geri þarfir sínar um allan bæ Fagnar tillögu Sigurjóns og segir veiðiráðgjöf Hafró ranga Langþreyttur á bensínbrúsum og „bílakirkjugarði“ Úkraínumenn vilja fá Íslendinga í almannavarnabandalag Risaskjálfti í Kyrrahafi og bensínbrúsabílar í Breiðholti Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Skýrsla Guðlaugs Þórs frá 2018: „Aðildarviðræðunum var ekki formlega slitið“ Veðurspáin fyrir helgina að skána Fjallabaksleið syðri lokuð vegna vatnavaxta Engin nóróveira í Laugarvatni Fjöldi ferðamanna slíkur að rotþróin ræður ekki við það Reyndi að skemma bíl og hljóp svo undan lögreglu Brennisteinsdíoxíð gæti borist um suðvesturhornið Ísland og Palestína gera samkomulag um samstarf Fundu týnda brú við Suðurlandsbraut Engin framlög til jarðganga en óljós áform um innviðafélag Sjá meira
Framsókn, Samfylking, Píratar og Viðreisn hefja formlegar viðræður í Reykjavík Framsóknarflokkurinn í Reykjavík hefur boðið Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn til formlegra viðræðna um myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. 24. maí 2022 10:06