Meistararnir með augastað á Bukayo Saka Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 7. júní 2022 14:31 Bukayo Saka er orðaður við Manchester City. EPA-EFE/NEIL HALL Orðrómar þess efnis að Englandsmeistarar Manchester City ætli sér að festa kaup á enska vængmanninum Bukayo Saka verða hærri og hærri með hverjum deginum.
Hinn tvítugi Saka átti mjög gott tímabil er Arsenal var nálægt því að komast í Meistaradeild Evrópu áður en Tottenham Hotspur stal sætinu í raun af þeim undir lok tímabils. Eftir að hafa verið einn þriggja leikmanna sem brenndi af vítaspyrnu í tapi Englands gegn Ítalíu í úrslitaleik EM síðasta sumar þá steig Saka heldur betur upp í vetur. Hann var hreint út sagt frábær í frekar varnarsinnuðu liði Skyttanna. Skoraði hann 11 mörk og lagði upp önnur 7 til viðbótar. Alls kom hann því að 18 af 61 marki liðsins í deildinni eða um 30 prósent allra marka liðsins. Pep Guardiola hefur nú þegar bætt við framherjum í leikmannahóp Man City en virðist vilja bæta enn frekar við sóknarleik liðsins. Hinn örvfætti Saka leikur nær alltaf á hægri vængnum og gæti því veitt Riyad Mahrez samkeppni eða einfaldlega leyst Alsíringinn af hólmi. Man City varð Englandsmeistari eftir harða baráttu við Liverpool. Þá fór liðið alla leið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu þar sem liðið beið lægri hlut gegn verðandi meisturum Real Madríd.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Íslenski boltinn Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Fleiri fréttir Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjá meira