Skilorðsbundið fangelsi fyrir að senda kynferðislegt efni af fyrrverandi Árni Sæberg skrifar 7. júní 2022 19:37 Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi karlmann á dögunum fyrir að hafa sent kynferðislegt myndefni af fyrrverandi unnustu sinni en sýknaði af öðrum ákæruliðum. Vísir/Vilhelm Karlmaður var á dögunum dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar sem frestað verður til tveggja ára, haldi hann almennt skilorð. Hann var einnig ákærður fyrir margvísleg meint brot gegn fyrrverandi unnustu sinni, þar á meðal nauðgun, en sýknaður af þeim öllum.
Maðurinn var ákærður fyrir kynferðisbrot, stórfelldar ærumeiðingar og brot í nánu sambandi gegn fyrrverandi unnustu sinni með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð hennar með því að hafa sent fyrrverandi mági konunnar smáskilaboð með myndbandi sem sýndi karlmann hafa samfarir við konuna, sent fyrrverandi eiginmanni hennar smáskilaboð sem innihéldu kynferðislegar myndir af henni og myndband sem sýndi hana í kynferðislegum athöfnum, sent henni myndir sem sýndu hana meðal annars veita honum munnmök, og loks fyrir að hafa sent tveimur einstaklingum nákomnum konunni myndir og myndskeið af henni sem sýndu hana í kynferðislegum athöfnum. Fyrrverandi mágur bar fyrir sig minnisleysi Einn þeirra sem maðurinn var ákærður fyrir að hafa sent myndefni af konunni af kynferðislegum toga til var fyrrverandi maki systur hennar. Fyrir dómi bar hann fyrir sig algjört minnisleysi án nokkurra skýringa, þá fékkst hann ekki til að gefa vitnaskýrslu í málinu en í skýrslutöku hjá lögreglu kvaðst hann kannast við að hafa fengið myndirnar sendar. „Framganga hans fyrir dómi var ótraustvekjandi og ótrúverðug og er ekki ástæða til að ætla að skýringar hans um meint minnisleysi eigi við rök að styðjast,“ segir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Þá varð ráðið af skýrslu mágsins að vitneskja hans um umrætt atvik hafi að einhverju leyti byggst á upplýsingum sem hann hafði frá konunni. Af ofangreindum ástæðum var maðurinn sýknaður af þeim hluta ákærunnar sem sneri að myndsendingu til mágs konunnar. Hann var sakfelldur fyrir myndsendingar að öðru leyti og dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar. Sýknaður fyrir meint brot í nánu sambandi, meinta nauðgun og meint brot gegn nálgunarbanni Maðurinn var ákærður fyrir að hafa nauðgað konunni en hún sakaði hann um að hafa brotist inn á heimili hennar, rifið hana úr fötum og nauðgað. Maðurinn kvaðst kannast við að hafa komið á heimili konunnar umræddan dag en neitaði sök að öllu leyti. Konan gaf skýrslu á neyðarmóttöku og gaf sömu frásögn og fyrir dómi. Í skýrslu segir að konan verið titrandi þegar hún gaf frásögn, grúft sig oft niður og stunið þegar hún sagði frá. Hún hafi talað um að vera uppgefin og að hún vissi ekki hvað hún ætti að gera. Við réttarlæknisfræðilega skoðun á manninum sýndu sýni af forhúð hans að þar var blanda DNA-sniða frá að minnsta kosti tveimur einstaklingum. Annars vegar hafi verið um að ræða snið sem var í meirihluta eins og DNA-snið hins, og hins vegar snið sem var í minnihluta eins og DNA-snið konunnar. Fyrir dómi sagði maðurinn að DNA-snið konunnar væri að finna í forhúð hans eftir kynferðisleg samskipti milli þeirra nokkru áður en umrædd meint nauðgun átti að hafa farið fram. Þá sagði hann að vegna húðsjúkdóms baðaði hann sig sjaldnar en gengur og gerist og nokkrir dagar gætu liðið þar á milli. Dómurinn mat það svo að framburðir konunnar og mannsins væru jafntrúverðugir og að ekki væri sannað svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hefði gerst sekur um meinta nauðgun. Samkvæmt framburði ákærða og brotaþola voru þau hvorki í skráðri sambúð né með sameiginlegan fjárhag eða sameiginlegan rekstur heimilis. Þá verður ráðið af vætti konunnar að samband þeirra hafi í raun aldrei náð því að vera sérstaklega náið og ekki hafi verið um að ræða eiginlegar trúlofanir. Því taldi dómurinn ekki unnt að meta refsinæma háttsemi mannsins með því að hafa sent myndefni kynferðislegs efnis af konunni sem brot í nánu sambandi í skilningi hegningarlaga. Að lokum var maðurinn ákærður fyrir að hafa rofið nálgunarbann sem konan hafði fengið gegn honum í tveimur ákæruliðum. Maðurinn var sýknaður af þeim báðum, annars vegar þar sem brot hans töldust fyrnd og hins vegar vegna þess að dómurinn taldi konuna hafa samþykkt tölvupóstsamskipti þeirra á milli og að maðurinn hafi ekki haft ásetning til að brjóta gegn nálgunarbanni. Dóm Héraðsdóms Reykjavíkur má lesa í heild sinni hér.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Reykjavík Stafrænt ofbeldi Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Erlent Fleiri fréttir Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Sjá meira