Veður

Hvasst við suð­vestur­ströndina og hlýjast norð­austan­lands

Bjarki Sigurðsson skrifar
Það mun rigna fyrir hádegi á höfuðborgarsvæðinu en styttir upp þegar líða fer á daginn.
Það mun rigna fyrir hádegi á höfuðborgarsvæðinu en styttir upp þegar líða fer á daginn. Vísir/Vilhelm

Veðurstofa Íslands spáir suðaustanátt, fimm til fimmtán metrum á sekúndu, en hvassast verður við suðvesturströndina.

Þá verður súld og rigning norðaustantil, en bjart með köflum. Hitinn mun ná frá tíu til tuttugu stigum, hlýjast norðaustanlands.

Á morgun dregur smám saman úr vindi og skúrir síðdegis norðaustantil, en áfram súld eða rigning sunnan- og vestanlands. Hiti breytist lítið.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofa Íslands

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag: Sunnan 5-10 m/s og súld eða dálítil rigning, en stöku skúrir um landið norðaustanvert. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi.

Á mánudag: Hæg breytileg átt. Skýjað á landinu og víða svolítil væta. Hiti yfirleitt á bilinu 8 til 15 stig.

Á þriðjudag: Norðan 3-8 með súld eða dálítilli rigningu. Skýjað með köflum sunnanlands og stöku skúrir síðdegis. Hiti frá 7 stigum fyrir norðan, upp í 18 stig á Suðausturlandi.

Á miðvikudag: Suðvestan og vestan 3-8 og dálitlir skúrir, en bjart með köflum á Norður- og Austurlandi. Hiti 8 til 14 stig.

Á fimmtudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt. Súld eða rigning sunnan heiða, en bjartara og stöku skúrir fyrir norðan. Hiti breytist lítið.

Á föstudag: Norðlæg eða breytileg átt. Skýjað en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi og heldur kólnandi, en annars skýjað með köflum og víða síðdegisskúrir sunnanlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×