Ó Ragnar, ó beibí, ó beibí Birna Guðný Björnsdóttir skrifar 23. ágúst 2022 17:30 Það hafa verið erjur í verkalýðshreyfingunni og mikið áreiti hefur átt sér stað á forsvarsmenn hennar. Ég sem launamaður fylgist með og velti því fyrir mér hvort hægt sé að treysta verkalýðshreyfingunni að horfa yfir borðið og hugsa í lausnum. Er hægt að treysta henni fyrir að semja um sanngjörn kjör fyrir launþega undir þessum kringumstæðum? Getum við skapað smá umræðu um hvað er hægt að teljast sem ásættanlegar niðurstöður fyrir launþega? Hvað ætlar verkalýðshreyfingin sér að gera eins og staðan er í dag? Sólveig boðar til launahækkunar upp á 52.000 kr. á mánuði frá og með 1 nóvember. Það fyrsta sem ég hugsaði var ha, á að dreifa þessari upphæð yfir á 3-4 ár, en nei, nei hugsunin sýnist mér vera að hækka öll laun upp um 52 þús kr. strax núna í nóvember. Ég væri auðvitað ekki svo ósátt við að fá slíka launahækkun en það er eitthvað sem segir mér að þessi tala eigi eftir að verða umtalsvert lægri. Í þessum skrifuðum orðum þá er ég enn að hlægja yfir þessari bjartsýni. En jú auðvitað það má ekki tala niður bjartsýni. Svona hákarlatala gæti kannski hrist eitthvað upp í hræðslunni hjá Samtökum atvinnulífsins. Og enginn er betri til þess fallinn að slengja fram þessari tölu en Sólveig, þessi dásemdarkona sem allir virðast vera hræddir við miðað við þá hatursumræðu sem hún fær í átt til sín. Við sem kunnum að biðja ættum kannski að setjast niður og biðja eina stutta bæn til hennar í sinni vegferð. Kærleikskveðjur til þín stóra, sterka Sólveig. En hvaða vopnum á að beita til að ná fram slíkri hækkun á launum? Stefnir í alvörunni allt til verkfalla? Mér líst bara ekkert á það. Verkfallsvopnið finnst mér vera bæði þreytt og ofnotað. Það eru mjög margir launþegar sem yrðu ekki sáttir við það ef því yrði beitt. Verkfall er eitthvað sem getur skaðað þeirra atvinnuöryggi vegna lægri tekna fyrirtækis og yfirleitt hverfa störfin ekki með smá fríi í verkfalli. Þetta gæti valdið tilheyrandi kvíða fyrir marga sem gera sér grein fyrir því fjalli sem bíður þeirra þegar þeir komast aftur til vinnu eftir verkfallsfrí. Og ekki má gleyma að það er til fjölda launþega sem líkar bara mjög vel við það að geta mætt til vinnu, hafa eitthvað að gera, heilsa kveðju á samstarfsfélaga og líða vel í þeirra félagsskap. Verkfall myndi taka það frá fólki og yrði í mörgum tilvikum refsing en ekki búbót. Hvað önnur vopn standa til boða en verkfallsvopnið? Til að skilja það þá þarf að bæði að skoða önnur markmið verkalýðshreyfingarinnar fyrir komandi viðræður og það þarf skynja hvar reiðin liggur í þjóðfélaginu. Ef reiðin er í of lágum launum þá er auðvelt að knýja fólk áfram í verkfallsaðgerðir. En það á ekki að þurfa að hvetja fólk til reiði með gerð auglýsinga. Ég sé engan tilgang í því að búa til reiði ef hún er ekki til staðar. Aftur á móti að ef hún er til staðar þá er okkur öllum hollt að takast á við hana. Og ef reiðin liggur annars staðar en í of lágum launakjörum þá er spurning hvort nauðsynlegt sé að endurhugsa hvaða aðgerðir eru bestar til að ná ásættanlegum árangri fyrir launþega. Hvaða önnur markmið liggja fyrir hjá verkalýðshreyfingunni? Efling vill að ríkið setji lægri tekjuskatta á lægri launahópa, auki framboð á íbúðarhúsnæði, setji fram framlag í uppbyggingu á félagslegum leiguíbúðum, hækki húsaleigubætur, barnabætur og vaxtabætur, hækki frítekjumark almannatrygginga og setji takmarkanir á notkun á verðtryggðum lánum eða þá breyta útreikningi á vísitölu verðlags. Eitthvað af kröfunum er ríkisstjórnin tilbúin að mæta, enda er Bjarni Ben sjálfur búinn að gera það kunnugt að búið sé að gera ráð fyrir kjarasamningsviðræðum í fjárlagafrumvarpi. Þetta er kjarasamningsmódel sem margir kannast við, þ.e. breyting verður líklega gerð á tekjuskattsþrepum og smá hækkun verður á húsaleigubótum, vaxtabótum og barnabótum, sem endar kannski ekki í vasanum hjá svo mörgum þar sem viðmörk tekju og eigna við útreikning á bótunum hafa verið alltof lág árum saman. En bæturnar lenda vonandi í vasa þeirra sem þurfa á því mest að halda. Menn setja kannski smá pening í uppbyggingu íbúða og setja fram fögur fyrirheit um breytingar til batnaðar á húsnæðisskorti. Yfir öðru ypta menn kannski bara öxlum, því af hverju ættu þeir að fara í breytingar sem aldrei hafa verið gerðar áður? Af hverju ættu þeir að fara í aðgerðir sem eru lýjandi fyrir fjármagnseigendur. Kæra verkalýðshreyfing, hvað ætlið þið að gera ef ríkisstjórnin vill ekki ganga lengra? Verður farið í einhverjar frekari aðgerðir eða sigla menn bara skútunni heim, sáttir með sinn hlut í stéttarfélagssjóði? Kæra verkalýðshreyfing. Þið hafið ótrúleg völd sem þið gerið ykkur kannski ekki grein fyrir að þið hafið. Þið hafið fleiri vopn í höndum en verkfallsvopnið til að knýja fram breytingar. Og þá erum við aftur komin að reiðinni. Undanfarin ár hefur þjóðfélagið farið í gegnum ákveðið skeið í umræðu sinni um háa endurgreiðslubyrði lána, sjálftöku launagreiðslna vissra einstaklinga í þjóðfélaginu, ásamt umræðu um himinháar arðgreiðslur. Það horfa allir upp á græðgina, en menn eru frekar vonlausir um að gerðar verði breytingar á þessu ástandi. Allir þeir sem þó fylgjast með og skynja tilfinningastrauma í samfélaginu hafa fundið fyrir að þarna kraumar mikil reíði niðri. Af hverju má ekki losa aðeins um þessa reiði og ráðast á bankana, tryggingafélögin, olíufélögin og öll þau félög sem við heyrum að eru að greiða sér rosalega háar arðgreiðslur. Af hverju er þessum fyrirtækjum leyft á þessum fákeppnismarkaði að okra svona á neytendum sínum og færa ávinninginn til örfárra einstaklinga. Við tölum öll um þetta, en enginn gerir neitt í því að setja upp neinar hindranir á þessari framkomu. Það setur enginn upp mörk. Stjórnmálamennirnir virðast vernda fyrirtækin eða ekki hafa orku í að setja fótinn niður og berjast fyrir breytingum. Það bara trúir því enginn að hægt sé að breyta þessu. Verkalýðshreyfingin er búin að vera að tala um þetta en ætlar hún að verða aðili sem spyrnir við fótum á móti ríkjandi ástandi? Búast má við mikilli andstöðu frá Alþingi fyrir breyttu ástandi en kannski að það leynist leynistuðningsmenn fyrir breytingum þar inni. Af hverju setjum við ekki smá trú á það að hægt sé að gera alvöru breytingar sem skipta launþega verulega máli. En hvaða vopn hefur verkalýðshreyfingin í höndum? Hversu herská viljið þið vera? Ef þið í alvöru viljið setja kvaðir á googolplex háar arðgreiðslur og takast á við verðtrygginguna þá ó Ragnar, ó Ragnar, ó beibí, ó beibí, þú þarft bara að biðja mig um það einu sinni. Ég verð fljót að fara í bankann og taka allan aurinn minn út til að geyma undir kodda. Ég skal bíða í röð út í eina bankaútibúinu sem er eftir á höfuðborgarsvæðinu til að taka út launin mín, um hver einustu mánaðarmót, borga svo reikninga mína hjá gjaldkera, bara svona einn reikning í einu til að taka sem mestan tíma. Og ef þið viljið takast á við arðrán tryggingafélaganna ó Ragnar, ó Ragnar, ó beibí, ó beibí, þú ert með sjóð upp á 16 milljarða króna. Af hverju stofnar þú ekki tryggingafélag? Ég verð mætt fyrsta daginn með allar mínar tryggingar. Ef þið viljið setja kvaðir á laun stjórnenda hafið þið þá ekki einhver völd í ákvörðunartöku á fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða? Getið þið sett bann á fjárfestingum í fyrirtækum sem setja sér ekki mörk þegar kemur að ofurlaunum stjórnenda? Það eina sem þið þurfið að gera er að finna leiðir því þær eru margar opnar fyrir ykkur. Ef þið viljið fá mig með í lið, látið mig þá vita hvað þið viljið ná fram, segið við mig hvað ég get gert til að hjálpa ykkur og ó beibí, ó beibí, ég er með í leiknum. Og það verður auðvelt að finna fleiri til að gera hið sama. Villi, Sólveig og Ragnar. Áttið þið ykkur hversu valdamikil þið eruð? Völd ykkar eru svo mikil að ef menn samþykkja ekki þær kvaðir og mörk sem þið viljið setja fram, þá getið þið sett allt þjóðfélagið á hausinn. Kæra verkalýðshreyfing. Ekki vera löt í komandi samningagerð og sætta ykkur við samninga sem eru eins og allir aðrir sem komið hafa á undan. Biðjið um stóra hluti en ekki litla hluti. Setjið há mörk á því sem þið getið náð fram, því ef þið gerið það og sjáið þau frumlegu vopn sem ykkur bjóðast, þá eru meiri líkur en minni að þið náið því fram sem þið viljið ná fram. Nýtið ykkur kraftinn ykkar því ekki gleyma því að mátturinn og dýrðin er ykkar, í Guðs nafni, AMEN. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðunargreinar. Senda grein Kjaramál Mest lesið Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins Skoðun Inga Sæland og sjálfstæðið Gunnar Ármansson Skoðun Af ávöxtunum skulum við þekkja þá Guðröður Atli Jónsson Skoðun Að „kíkja í pakkann“ sem er nú þegar opinn Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun 390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun Hagfræðileg brenglun í lagatextanum um verðtryggingu Örn Karlsson Skoðun Menn sem hata konur Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Mygla í útveggjum nýbygginga Sigurður Sigurðsson Skoðun Sjávarauðlindin í ESB Björn Leví Gunnarson Skoðun Flott embætti í boði fyrir ESB ríki Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar Skoðun Veikt flutningskerfi er sóun á náttúruauðlindum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun 390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Hvað gerðist hjá listskautakappanum Ilia Malinin á vetrar ÓL? – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson skrifar Skoðun ESB-pakkinn er galopinn Bergþór Ólason skrifar Skoðun Opið bréf til umhverfisráðherra Ragnhildur Elín Skúladóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Hagfræðileg brenglun í lagatextanum um verðtryggingu Örn Karlsson skrifar Skoðun Börnin okkar – sameiginleg ábyrgð Hanna Borg Jónsdóttir skrifar Skoðun Ísland í brennidepli: Lýðfræðilegar breytingar og nýtt jafnvægi á vinnumarkaði Ingvar Freyr Ingvarsson ,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar Skoðun Skilvirkir ferlar, betri reglur Einar Bárðarson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skulum við þekkja þá Guðröður Atli Jónsson skrifar Skoðun Fyrirmyndarverkefni í grunnskólum Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsson,Arndís Seinþórsdóttir skrifar Skoðun Hvað er að gerast í skapandi greinum? Erla Rún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Inga Sæland og sjálfstæðið Gunnar Ármansson skrifar Skoðun Blómin í haganum og börnin í boxinu Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Flott embætti í boði fyrir ESB ríki Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Samgönguáætlun og samkeppni í flutningum Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Samferða á föstunni Hjalti Jón Sverrisson, Árni Þór Þórsson,Guðný Hallgrímsdóttir,Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir,Kristín Pálsdóttir,Toshiki Toma skrifar Skoðun Evrópusambandssinnar - það er bannað að plata! Birgir Finnson skrifar Skoðun Erum við tilbúin í umbreytingu? Agnes Ósk Snorradóttir skrifar Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra vegna stöðu einhverfra Ármann Pálsson,Ragnheiður Ösp Sigurðardóttirp ,Sigurjón Már Svanbergsson,Halldóra Hafsteinsdóttir,Eyrún Halla Kristjánsdóttir,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Að „kíkja í pakkann“ sem er nú þegar opinn Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Ekki ein tomma en hvar eru aðgerðirnar? Telma Árnadóttir skrifar Skoðun Getur tölva dæmt betur en maður? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Réttindi, réttlæti, aðgerðir: Hvers vegna jafnrétti kynjanna skilgreinir framtíð ESB Clara Ganslandt skrifar Skoðun Hið nýja siðfár? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir skrifar Skoðun „Pólitíkin ræður“ Anna Sofía Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Það sem koma skal? Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Flestir fjölmiðlar eru ríkisfjölmiðlar á Íslandi Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Þegar þolendur stíga fram reynir á samfélagið Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir skrifar Sjá meira
Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins Skoðun
390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Skoðun Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar
Skoðun 390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Hvað gerðist hjá listskautakappanum Ilia Malinin á vetrar ÓL? – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson skrifar
Skoðun Opið bréf til umhverfisráðherra Ragnhildur Elín Skúladóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar
Skoðun Ísland í brennidepli: Lýðfræðilegar breytingar og nýtt jafnvægi á vinnumarkaði Ingvar Freyr Ingvarsson ,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar
Skoðun Fyrirmyndarverkefni í grunnskólum Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsson,Arndís Seinþórsdóttir skrifar
Skoðun Samferða á föstunni Hjalti Jón Sverrisson, Árni Þór Þórsson,Guðný Hallgrímsdóttir,Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir,Kristín Pálsdóttir,Toshiki Toma skrifar
Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra vegna stöðu einhverfra Ármann Pálsson,Ragnheiður Ösp Sigurðardóttirp ,Sigurjón Már Svanbergsson,Halldóra Hafsteinsdóttir,Eyrún Halla Kristjánsdóttir,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Réttindi, réttlæti, aðgerðir: Hvers vegna jafnrétti kynjanna skilgreinir framtíð ESB Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þegar þolendur stíga fram reynir á samfélagið Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir skrifar
Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins Skoðun
390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun