Sendir úrkomusvæði yfir stóran hluta landsins í dag Atli Ísleifsson skrifar 9. september 2022 07:19 Reikna má með hita á bilinu tíu til fimmtán stig suðvestanlands, en hlýjast á landinu verður á Norðausturlandi. Vísir/Vilhelm Lægð er nú stödd vestur af Reykjanesskaga og sendir hún úrkomusvæði sitt yfir stóran hluta landsins í dag.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að útlit sé fyrir suðaustan fimm til þrettán metrum á sekúndu með rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu og verður hiti tíu til fimmtán stig á þeim slóðum. „Um landið norðaustanvert verður besta veðrið í dag, þar verður þurrt og bjart og hiti allt að 20 stig. Á morgun er spáð austlægri átt, víða á bilinu 5-10 m/s. Lengst af rigning á sunnanverðu landinu, en skýjað og úrkomulítið norðantil. Hitatölurnar þokast niðurávið. Á sunnudag snýst síðan í norðaustan 5-10. Skýjað og dálítil væta norðan- og austanlands og kólnar á þeim slóðum. Birtir upp sunnan heiða og fallegur dagur í vændum þar og hiti allt að 17-18 stig þar sem best lætur,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austlæg átt 5-10 m/s. Rigning á sunnanverðu landinu, en úrkomulítið norðantil. Hiti 9 til 16 stig. Á sunnudag: Norðaustan 5-10. Skýjað norðan og austanlands og dálítil væta fram eftir degi, hiti 7 til 12 stig. Bjartviðri sunnan heiða með hita að 17 stigum. Á mánudag: Suðvestan 5-10, skýjað og þurrt að kalla, en bjartviðri austantil á landinu. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast austanlands. Á þriðjudag: Vestlæg eða breytileg átt 3-8. Skýjað að mestu, en yfirleitt þurrt. Hiti 7 til 12 stig. Léttskýjað um landið suðaustanvert og hiti þar að 17 stigum. Á miðvikudag: Suðvestan- og vestanátt og víða dálítil væta, en þurrt á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast suðaustantil. Á fimmtudag: Norðlæg átt með vætu fyrir norðan, en þurrt syðra. Kólnar í veðri.
Veður Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Sjá meira