Umfjöllun: Haukar-ÍR 104-53 | Mátti sjá af hverju Haukum er spáð sigri en gestunum falli Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. september 2022 21:30 Sólrún Inga Gísladóttir var frábær í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Haukar áttu ekki í neinum vandræðum með að leggja ÍR að velli í fyrstu umferð Subway deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Gestirnir úr Breiðholti áttu í raun aldrei möguleika í Ólafssal, lokatölur 104-53.
Haukar voru stigahæsta liðið í spá KKÍ fyrir komandi tímabil á meðan ÍR var spáð falli. Það mátti nokkuð fljótt sjá af hverju í leik kvöldsins. Haukar hófu leikinn nokkuð rólega og skoruðu „aðeins“ 17 stig í fyrsta leikhluta. ÍR skoraði hins vegar aðeins 19 stig í fyrri hálfleik á meðan Haukar skoruðu 41 stig og segja má að sigurinn hafi verið kominn í hús er gengið var til búningsherbergja. Það lifnaði yfir sóknarleik beggja liða í þriðja leikhluta en um var að ræða eina leikhluta leiksinns þar sem bæði lið skoruðu yfir 20 stig. Gestirnir skoruðu 23 en heimakonur 34 og munurinn jókst enn frekar. Fjórði leikhluti skipti því ekki öllu máli en Haukar unnu hann samt með 18 stiga mun og leikinn með 51 stigs mun, lokatölur 104-53. Sólrún Inga Gísladóttir var stigahæst í liði Hauka með 22 stig. Þar á eftir kom Tinna Guðrún Alexandersdóttir með 18 stig og Keira Breeanne Robinson með 17 stig en hún gaf einnig 10 stoðsendingar. Í liði ÍR var Aníka Linda Hjálmarsdóttir stigahæst með 16 stig en hún tók einnig 13 fráköst. ÍR fær Fjölni í heimsókn í næstu umferð á meðan Haukar heimsækja Val að Hlíðarenda.
Körfubolti Subway-deild kvenna Haukar ÍR Mest lesið Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira