Innblásturinn er fastur liður hjá Lífinu á Vísi þar sem rætt er við ólíkt fólk um hvað veitir því innblástur í tilverunni og hvaða ráðum þau luma á varðandi andlega heilsu.
Hver ert þú í þínum eigin orðum?
Ég er 24 ára gömul fyrirsæta og nemi úr Grafarvogi. Ég er í mastersnámi í lögfræði og hef unnið út um allan heim sem fyrirsæta. Fyrirsætuskórnir eru hins vegar aðeins uppi á hillu þar sem ég eignaðist son minn Andra fyrir sjö mánuðum og er í fæðingarorlofi.
Ég er vön því að hafa alltaf brjálað að gera hjá mér og að vera á miklu flakki.
Hvað veitir þér innblástur?
Ég fæ innblástur frá því að ferðast og sjá nýja hluti.
Hvað er þitt besta ráð til að næra andlega heilsu?
Að heyra í fólkinu sínu, það er það mikilvægasta fyrir mína andlegu heilsu.
Hvernig er hefðbundinn dagur í þínu lífi?
Núna er ég í fæðingarorlofi og því er hefðbundinn dagur í mínu lífi talsvert frábrugðin því hvernig hann er venjulega þegar ég er að vinna.
Þegar ég er í vinnunni þá er hefðbundinn dagur þannig að ég er yfirleitt stödd erlendis í landi þar sem að ég er með umboðsskrifstofu. Þar geta dagarnir mínir verið allskonar, ég fer til dæmis í myndatökur, labba á tískusýningum eða fer í casting fyrir möguleg verkefni. Svo ef það er frítími þá eyði ég honum í því að læra, kanna borgina og njóta þess að vera erlendis.
Núna hins vegar í orlofinu snýst dagurinn minn aðallega um strákinn minn, námið og að prófa helstu kaffihús bæjarins.
Svo hef ég verið að taka örfá verkefni að mér og er að læra hvernig ég mun takast á við það að blanda saman móðurhlutverkinu og vinnu sem krefst ferðalaga.
Uppáhalds lag og af hverju?
L’amour toujours með Gigi D’Agustino, af því þetta lag er algjört banger lag sem kemur mér alltaf í gott skap.
Uppáhalds matur og af hverju?
Ég elska skelfisk, til dæmis ostrur og bláskel.
Ég vakna á hverjum morgni og þakka fyrir að vera með ofnæmi fyrir hestum en ekki skelfisk.
Svo er ég með ótrúlega furðulega og gamaldags bragðlauka og elska því einnig mat eins og lifrarpylsu eða steikta medisterpylsu, ekki í lagi.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
Besta ráð sem ég hef nokkurn tíman fengið er: „Fáðu endurskoðanda til að gera skattframtalið þitt.“ Ef þú ert að byrja að starfa sem verktaki eða í sjálfstætt starfandi vinnu, borgaðu endurskoðanda til að gera skattaskýrsluna þín.
Þegar ég var að byrja að vinna sjálfstætt reyndi ég að gera skattskýrsluna mína sjálf og það var eitt stórt slys sem tók mig marga daga og fjölmörg símtöl í skattinn til að klára. Stundum er best að fá fagmann í verkið.
Hvað er það skemmtilegasta við lífið?
Skemmtilegasta við lífið er allt frábæra fólkið sem ég hef í kringum mig. Annars væri það frekar dull.