Titrandi hringur og þyngdir fiskar nýjustu hneykslin eftir skáksvindlið Fanndís Birna Logadóttir skrifar 3. október 2022 12:55 Á fimmtudag varð uppi fótur og fit í pókerleik í Kaliforníu þar sem titrandi hringur er sagður koma við sögu og degi síðar komst upp um svindl í veiðikeppni í Ohio þar sem blýkúlur fundust í fiskum. Samsett/Skjáskot Ásakanir um svindl skóku póker og veiðiheimana í Bandaríkjunum í síðustu viku, innan við mánuði eftir að greint var frá meintu svindli með hjálpartækjum ástarlífsins í skákheiminum. Titrandi hringur er sagður hafa verið notaður í stórum pókerleik og blýkúlum komið fyrir í fiskum í veiðikeppni.
Nýliðinn Robbi Jade Lew var sökuð um að svindl eftir að hún hafði betur gegn Garrett Adelstein, vinsælum spilara, í pókerleik síðastliðinn fimmtudag en Lew vann 269 þúsund dollara pott, sem samsvarar rúmlega 39 milljónum króna. THIS JUST HAPPENED...@RobbiJadeLew vs @GmanPoker in one of the strangest poker hands you've ever seenTune in now for SUPER HIGH STAKES $100/200/400: https://t.co/VcpZNMUTi4 pic.twitter.com/iGppl6l9aa— Hustler Casino Live (@HCLPokerShow) September 30, 2022 Leiknum var streymt af Hustler Casino Live frá Kaliforníu en áhorfendur urðu varir við að útkoman hafi komið Adelstein sérstaklega á óvart, þar sem Lew var með talsvert verri spil til að byrja með og hefði að öllu jöfnu átt að gefast upp fyrr. Þeir sem voru að lýsa leiknum lýstu einnig furðu yfir ákvörðunum Lew að halda áfram á nokkrum tímapunktum. Í yfirlýsingu á Twitter eftir leikinn sagði Adelstein augljóst að Lew hafi svindlað. Margir hafa velt því upp að Lew hafi notað titrandi hring til að láta hana vita að hún væri með bestu spilin í umferðinni, þó það hafi ekki verið sannað samkvæmt frétt Insider. Best concise summary of events. Notes:-She several times states she wasn t threatened (HCL & @Joeingram1 vids both), then tweets that she was anyway.-Vibrating device in her pocket @berkey11 podcast-Only right I accept her HU4ROLLZ while retweeting Doug. https://t.co/CooJ8UW3Is— Garrett Adelstein (@GmanPoker) September 30, 2022 Í tilkynningu sagði Hustler Casino Live að engin sönnunargögn væru til staðar sem sönnuðu svindl, þrátt fyrir ásakanir. Það kæmi þó til greina að nota lygamæli og að lögfræðingar yrðu fengnir í málið. Hvorki Lew né Adelstein væru velkomin aftur til keppni fyrr en niðurstaða lægi fyrir. Þau töluðu þó saman eftir leikinn og samþykkti Lew að gefa Adelstein peningana sem hann hafði tapað. Hiti í mönnum eftir að fiskar voru skornir upp Daginn eftir bárust fregnir af annars konar og alls kostar ótengdu svindli í Bandaríkjunum. Chase Cominsky og Jake Runyon, veiðimenn í Ohio-ríki, unnu þrjátíu þúsund dollara, rúmlega 4,3 milljónir króna, í lokaumferð Lake Erie Walleye Trail keppninnar. Það vakti þó upp grunsemdir mótshaldara þegar fimm fiskar, sem þeir áætluðu að væru um tuttugu pund, vógu tæplega 34 pund. Við vigtun var ákveðið að skera upp fiskana og kom þá í ljós að blýkúlum og jafnvel flökum af öðrum fiskum hafi verið komið fyrir í fiskunum. Tilgangurinn sé að láta þá líta út fyrir að vera þyngri en raun bar vitni. Myndbönd af atvikinu hafa farið í deilingu á netinu og má þar sjá að mikill hiti var í mönnum. Að því er kemur fram í frétt BBC eru fyrri sigrar parsins til skoðunar. Fréttamiðlar á svæðinu sögðu þá hafa verið dæmda úr leik í keppninni í fyrra eftir að einn þeirra féll á lygamælaprófi. Hvorki Cominsky né Runyon hafa svarað fyrir ásakanirnar. 'We got weights in fish!' Mr. Fischer shouted, holding up an egg-sized lead ball he plucked from the fish in a dramatic moment captured on videos posted online." https://t.co/mmCaNI4zPJ— Olimpiu Di Luppi (@olimpiuurcan) October 2, 2022 Hjálpartæki ástarlífsins í meintu skáksvindli Fregnirnar af meintu svindli pókerspilara og veiðimanna koma innan við mánuði eftir að meint svindl skók skákheiminn. Heimsmeistarinn Magnus Carlsen hætti í miðri keppni á Sinquefield-mótinu í síðasta mánuði en hann taldi brögð hafa verið í tafli eftir að hann tapaði fyrir hinum nítján ára Hans Niemann. Carlsen deildi myndskeiði á Twitter, þar sem knattspyrnuþjálfarinn Jose Mourinho sagðist ekki geta tjáð sig, þar sem það myndi aðeins koma honum í vandræði. Margir túlkuðu tíst Carlsen á þann veg að þarna væri hann að saka Niemann um svindl. Getgátur voru á lofti að Niemann hafi verið með fjarstýrt unaðstæki ástarlífsins í endaþarminum og vitorðsmaður hans gefið honum upplýsingar um besta leikinn með því að láta tækið titra. Um var að ræða alþjóðlegt skákmót þar sem heildarverðlaunafé nam í kringum fimm hundruð þúsund dollurum, hátt í 73 milljónum króna. Niemann hafði áður gerst uppvís að svindli á skáksíðunni Chess.com en hann neitaði alfarið að hafa svindlað í keppninni við Carlsen. DV greinir þá frá því í dag að stórmeistarinn Fabiano Caruana telji Niemann hafi einnig svindlað gegn hinum íslenska Hjörvari Steini Grétarssyni þegar þeir mættust á Reykjavíkurskákmótinu í apríl. „Þessi skák er annað hvort tefld af snillingi eða það er eitthvað undarlegt á seyði. Það er annað hvort,“ sagði Caruana í hlaðvarpsþættinum C-squared samkvæmt frétt DV.
Fjárhættuspil Stangveiði Bandaríkin Ásakanir um svindl í skákheiminum Mest lesið Einn besti dómari landsins fær ekki leik Körfubolti Sakaði syni sína um „fullkomið mannorðsmorð“ á leynilegri upptöku Sport Leik lokið: Valur - Grindavík 94-89| Valsarar sluppu fyrir horn Körfubolti Uppgjör: Tindastóll - Keflavík 94-87 | Stólarnir sterkari í lokin Körfubolti Jota hetjan þegar Liverpool náði aftur tólf stiga forystu Sport Var kóngurinn 1995 en „algjörlega á botninum“ 1997 Íslenski boltinn Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla Íslenski boltinn Vilja VAR á Íslandi og finnst Gylfi langbestur Íslenski boltinn „Meðvituð um að þetta er samfélagslegt vandamál“ Íslenski boltinn Jón Guðni Fjóluson leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Söfnuðu milljörðum og eiga nú meirihluta í leikvangi félagsins Arne Slot: Við vorum ekki heppnir, reglan er svona Kári Jóns meiddist illa á hné í kvöld Barcelona og Real Madrid mætast í bikarúrslitaleiknum Jota hetjan þegar Liverpool náði aftur tólf stiga forystu Tonali tryggði Newcastle dýrmætan sigur Uppgjör: Tindastóll - Keflavík 94-87 | Stólarnir sterkari í lokin Man. City saknaði ekki Haaland í kvöld Styrmir stigahæstur á vellinum Ómar Ingi markahæstur í sigri í Meistaradeildinni Jón Guðni Fjóluson leggur skóna á hilluna Súrt kvöld fyrir íslensku landsliðskonurnar Leik lokið: Valur - Grindavík 94-89| Valsarar sluppu fyrir horn Íslensku stelpurnar réðu ekki við Maísu „Mótlætið styrkir mann“ Mo Salah í myndatökum niður við höfnina í Liverpool Pérez rætt við nokkur lið um endurkomu Eyjamenn sækja Pólverja í rammann Gylfa aftur spáð titlinum en spáin röng síðan 2020 „Auðvitað söknum við hennar“ „Undir okkur komið að hamra járnið á meðan það er heitt“ Einn besti dómari landsins fær ekki leik Vilja VAR á Íslandi og finnst Gylfi langbestur Félögin spá Víkingum titlinum Segir að það hafi ekki verið mistök að selja Elanga Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla „Hann virðist bara ekkert vera þannig þjálfari“ Skelltu lærisveinum Alonso og ótrúlegt bikarævintýri heldur áfram Besta-spáin 2025: Litað út fyrir Jokic skoraði 61 stig en Westbrook eyðilagði allt Sjá meira