Óttast að enginn hlusti á menntaskólanema sem verði fyrir ofbeldi Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 4. október 2022 20:30 Brynhildur segist óttast að lítið hafi breyst innan framhaldsskóla hvað varðar viðhorf og viðbrögð til kynferðisbrota síðan hún var nemandi við skólann. Vísir/Egill Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð hafa mótmælt því í dag og í gær að nemendur við skólann, sem eru þolendur kynferðisofbeldis, þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Fyrrverandi nemandi segir lítið hafa breyst frá því að hann var í þessari sömu stöðu fyrir áratug.
Nemendur við MH birtu í gær myndir á samfélagsmiðlum af skilaboðum sem höfðu verið skrifuð á spegla inni á klósettum skólans. Þar var meðal annars búið að skrifa nöfn meintra gerenda og skilaboðin „Ég vil ekki fokking nauðgara í skólanum mínum.“ Þá hafa nemendur boðað til útgöngumótmæla á fimmtudag vegna málsins. Hvernig hefur stemningin verið í skólanum í vikunni? „Það er mikil reiði, mikil ólga en svo í grunninn snýst þetta um að finna lausnir og finna réttlæti,“ segir Una Ragnarsdóttir, varaforseti Nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð. Nemendafélagið vildi ekki tjá sig nánar um þau mál sem hafi komið mótmælunum af stað en Una sagði að um mörg viðkvæm mál væri að ræða, sem komið hafi upp á nokkurra ára tímabili, þar sem aðilar máls væru margir hverjir undir lögaldri. Una segir skólastjórnendur hafa brugðist vel við ábendingum nemenda í dag og gær.Vísir/Egill Viðbrögð skólastjórnenda í dag og gær hafi verið góð en nemendur höfðu sakað skólastjórnendur um slæm og léleg viðbrögð við tilkynningum um kynferðisbrot. „Þau hafa verið opin fyrir því að breyta sínum vinnubrögðum, opin fyrir að hlusta og það hafa verið fengnir inn óháðir aðilar til að hjálpa skólastjórnendum með næstu skref. Þau eru að hlusta, þau vilja gera betur og finna lausn. Hún er ekki einföld eða augljós en það er dagljóst að eitthvað þarf að gera og helst núna,“ segir Una. Að sögn Unu varpar málið þó ljósi á stærri spurningar. „Eins og hvar er miðlæg viðbragðsáætlun Menntamálaráðuneytisins í kynferðisbrotamálum sem hefur verið kallað eftir lengi og enn virðist ekkert vera að breytast. Hvaða ítök hefur skólastjórn raunverulega til að gera eitthvað? Hverju þarf að breyta innan kerfisins til að þolendur fái þann stuðning sem þeir þurfa og geti stundað nám án raskana?“ spyr Una. Var sagt að skipta um skóla Brynhildur Karlsdóttir, söngkona og fyrrverandi nemandi við MH, skrifaði í dag grein sem birtist á Vísi um svipaða upplifun hennar innan veggja skólans árið 2013. Hún var þá sautján ára og hafði verið nauðgað af vini sínum og samnemanda. Hún segir lítið hafa breyst hjá skólanum síðan þá. „Upplifun mín af skólanum var mjög slæm. Ég átti gott fyrsta ár hérna en eftir þessa nauðgun gróf hún undan öllum mínum forsendum til að njóta þess að vera í skólanum,“ segir Brynhildur í samtali við fréttastofu. „Þau viðbrögð sem ég fékk [frá skólastjórnendum] voru að ég gæti farið og talað við námsráðgjafa, sem ég gerði og ég man ekki eftir að það hafi borið neinn sérstakan árangur og það gerði það ekki að verkum að það væri auðveldara að umgangast ofbeldismanninn minn. Ég fékk þau ráð að ég gæti flutt mig um skóla ef ég vildi ekki umgangast hann.“ Mótmæli gærdagsins hafi verið tilfinningaþrungin. Eitt plagganna sem búið var að hengja upp í MH í gær.Vísir/Egill „Það verður ekki svona sprengja eins og varð nema það sé einhver innistæða fyrir því, eitthvað sem er greinilega búið að byggjast upp innra með mörgum. Þar á meðal mér, mér finnst þetta vera saga sem er loksins að fá að heyrast,“ segir Brynhildur. „Manni er eiginlega bara kennt að maður eigi að þegja yfir þessu og það sé svo óþægilegt fyrir alla og megi ekki tala um þetta. Hvað þá nefna nöfn eða krefjast einhvers réttlætis. Mér líður eins og sé mikið búið að safnast upp og þá kemur sprengja.“ Minnir á að nemendur eru börn Skólayfirvöld allra framhaldsskóla þurfi að muna að þau beri ábyrgð á börnum. „Þau eru á viðkvæmum aldri og það er ekki hægt að gera þær kröfur til þeirra að þau viti alltaf bestu leiðirnar til að koma upplifunum og tilfinningum sínum til skila. Mér finnst það á ábyrgð fullorðna fólksins að passa upp á þau,“ segir Berglind. „Núna er ég fullorðin og get skrifað einhvern pistil en það hlustaði enginn á mig þegarég var hér og það er það sem ég óttast að sé að gerast við stelpurnar og krakkana hér sem eru að upplifa óréttlæti og ofbeldi.“ Steinn Jóhannsson, rektor MH, sagði í yfirlýsingu í dag skólastjórnendur litu kynferðisofbeldi alvarlegum augum. Í gær hafi stjórnendur skólans fengið óháðan fagaðila til ráðgjafar um viðbrögð og aðgerðir vegna ábendinga nemenda og unnið verði áfram að málinu. Steinn hafnaði beiðni fréttastofu um viðtal vegna málsins.
Skóla - og menntamál Framhaldsskólar MeToo Kynferðisofbeldi Reykjavík Tengdar fréttir Skólastjórnendur MH segja fagaðila hafa verið kallaða til Skólastjórnendur Menntaskólans við Hamrahlíð hafa sent frá sér tilkynningu vegna umfjöllunar fjölmiðla um mótmæli nemenda vegna kynferðisofbeldis. Nemendurnir mótmæltu því í gær að þurfa að mæta gerendum á göngum skólans. 4. október 2022 14:00 Bylting í MH: Vilja ekki mæta nauðgurum sínum á göngunum Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð mótmæltu því í gær að nemendur skólans sem eru þolendur kynferðisofbeldis þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Þeir segja viðbrögð skólans vera ófullnægjandi. Fyrrverandi nemandi við skólann segir söguna vera að endurtaka sig. Fyrir tíu árum hafi henni verið nauðgað af samnemanda sínum. 4. október 2022 12:00 Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira
Skólastjórnendur MH segja fagaðila hafa verið kallaða til Skólastjórnendur Menntaskólans við Hamrahlíð hafa sent frá sér tilkynningu vegna umfjöllunar fjölmiðla um mótmæli nemenda vegna kynferðisofbeldis. Nemendurnir mótmæltu því í gær að þurfa að mæta gerendum á göngum skólans. 4. október 2022 14:00
Bylting í MH: Vilja ekki mæta nauðgurum sínum á göngunum Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð mótmæltu því í gær að nemendur skólans sem eru þolendur kynferðisofbeldis þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Þeir segja viðbrögð skólans vera ófullnægjandi. Fyrrverandi nemandi við skólann segir söguna vera að endurtaka sig. Fyrir tíu árum hafi henni verið nauðgað af samnemanda sínum. 4. október 2022 12:00