Áform ráðherra gætu haft „jákvæð áhrif á vaxtaumhverfið,“ segir bankastjóri Arion
![„Þetta verður nýr veruleiki fyrir fjárfesta Benedikt,“ segir Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion.](https://www.visir.is/i/2FF9B460AF6A9B6C6F40336003589212E44162E0316D981B41BC10160D6852A9_713x0.jpg)
Bankastjóri Arion banka telur að áform fjármálaráðherra um að slíta ÍL-sjóði með sérstakri lagasetningu, náist ekki samkomulag við kröfuhafa, eigi ekki að valda þrýstingi á fjármálamarkaði heldur geti þau haft „jákvæð áhrif“ á vaxtaumhverfið. Arion hefur fært niður virði íbúðabréfa útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum í bókum sínum fyrir um 250 milljónir króna.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/0531629F9322BE57715A3693689A6F21B4E8BD051728A1BBFB47B1D9283EB283_308x200.jpg)
Kristrún og Bjarni saka hvort annað um fáfræði um efnahagsmál
Fjármálaráðherra er með frumvarp í undirbúningi þannig að hægt verði að slíta ÍL sjóði á næsta ári en segist helst vilja semja við kröfuhafa þannig að ekki þurfi að leggja frumvarpið fram. Stjórnarandstöðuþingmenn saka ráðherra um að ætla að varpa skuld sjóðsins yfir á lífeyrissjóðina.
![](https://www.visir.is/i/15D61F759A7D8B341E6DB6C76DAF1E7DFB7E68727441FCC0EBCE3A96183A92B7_308x200.jpg)
Verðið á íbúðabréfum fellur um 16 prósent vegna áforma um slit á ÍL-sjóði
Verðið á íbúðabréfum útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum lækkaði verulega á markaði í morgun í fyrstu viðskiptum sem hafa átt sér stað með bréfin, sem eru á sérstökum athugunarlista Kauphallarinnar, eftir að fjármálaráðherra boðaði tillögur um hvernig megi leysa upp ÍL-sjóð síðasta fimmtudag. Miðað við verð bréfanna í viðskiptunum, sem voru aðeins upp á samtals 300 þúsund krónur, má áætla að markaðsvirði útistandandi íbúðabréfa hafi lækkað um samtals meira en 100 milljarða króna.