Hlutabréf á siglingu með Marel í stafni
![Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels. Marel hefur hækkað um 14 prósent á einni viku. Fjárfestar horfa til þess að uppgjör sem birtist á morgun verði gott.](https://www.visir.is/i/565D52E6F9B655AA446E179F3A2B865A862D3855112B0411ABBCD596231E8F51_713x0.jpg)
Hlutabréfaverð hefur verið á mikilli siglingu á undanförnum dögum. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um ellefu prósent á einni viku. Þar munar miklu um að Marel, sem vegur þyngst í vísitölunni, hefur hækkað um 14 prósent. Fjárfestar gera sér vonir um að uppgjör fyrirtækisins, sem birtist á morgun, verði gott.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/146BA48CF9FF86B8D373005523103090F0F3EAF8F0CD054429D9C1361DCE1382_308x200.jpg)
Vísbendingar um að markaðurinn hafi „tekið alltof skarpa dýfu“
Staðan á hlutabréfamarkaði hefur umturnast á síðustu tólf mánuðum. Fyrir um ári mátti sjá merki þess að markaðurinn væri búinn að ofrísa, meðal annars út frá þróun peningamagns í umferð, en núna eru vísbendingar um hið gagnstæða og verðmöt gefa til kynna að meirihluti félaga í Kauphöllinni séu verulega vanmetin, að sögn hlutabréfagreinenda.