RÚV segir frá því í morgun að leiguflugvél hafi tekið á loft frá Keflavíkurflugvelli í nótt og verið á leið til Aþenu í Grikklandi. Nokkur viðbúnaður lögreglu hafi verið við vélina á vellinum þar sem tvær rútur hafi beðið. Lögreglumaður staðfestir að einhvers konar aðgerð hafi verið í gangi en vildi ekki upplýsa um eðli hennar.
Hussein Hussein er einn úr fimm manna fjölskyldu frá Írak sem stóð til að vísa úr landi til Grikklands í nótt. Sagt hefur verið frá því að hælisleitendur hafi verið hendteknir á síðustu dögum og hafi nokkrir þeirra verið í gæsluvarðhaldi.
Hussein og fjölskylda hans hefur búið hér á landi í að verða tvö ár og hefur Hussein getað sótt mikilvæga læknisþjónustu hérlendis. Í gær var öll fjölskylda Husseins ásamt honum sjálfum handtekin og færð á Hótel Velli í Hafnarfirði en Hussein var síðar fjarlægður af hótelinu og færður í bíl af fjölda lögregluþjóna.
Freyja segir alla hafa rétt á því að hafa samband við lögmann í málum sem þessum en Hussein sem fatlaður einstaklingur hafi rétt á því að hljóta aðstoð réttindagæslumanns. Hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem fatlaður maður á flótta.
„Hann á rétt á að hafa réttindagæslumann sér til stuðnings, til þess bæði að upplýsa hann um hvað er í gangi og hvernig næstu skref eru. Tryggja það að hann skilji allt sem er að fara fram, tryggja það að hann gæti talað máli sínu og tryggja að það sé verið að standa að viðeigandi aðlögun þannig hann verði ekki fyrir skaða eða ómálefnalegri málsmeðferð í þessum aðstæðum,“ segir Freyja.
Hún segir engan hafa haft samband við sig að fyrra bragði vegna réttar Hussein til þess að hafa réttindagæslumann hjá sér, lögregla ætti að hafa frumkvæði á því að kalla slíka aðila til. Freyja hefur verið réttindagæslumaður Hussein um tíma og því þykir henni slæmt að hún sé ekki kölluð til þegar veruleg þörf er á.

„Misnota hans líkamlegu stöðu og beita hann harðræði eða ofbeldi“
Freyja kveðst hugsi yfir þeirri meðferð sem Hussein virtist beittur við handtökuna og flutning frá hótelinu en hún hafi séð myndbönd af aðgerðunum.
„Það sést mjög vel hvernig hann er tekinn í fangið á lögreglu og þá má alveg segja að hans hreyfihömlun sé í raun notuð gegn honum, fólk er almennt ekki tekið upp af lögreglu með þessum hætti. Hann er fjarlægður úr hjólastólnum sem hann þarf að nota, sem er hans verkfæri til þess að komast um og hans réttindi að hafa til þess að geta hreyft sig úr stað. Hann er settur inn í bíl, ekki í sínum hjólastól eins og hann er vanur að vera. Þarna er bæði verið að misnota hans líkamlegu stöðu og beita hann harðræði eða ofbeldi,“ segir Freyja.
Hún segir jafnframt verið að ógna umferðaröryggi Hussein með því að setja hann inn í bíl án stólsins sem hann sé vanur að sitja í bifreiðum í. Stóllinn sé sér smíðaður fyrir hann.
„Það þarf að varpa ljósi á þekkingarleysi lögreglunnar og skort á meðvitund um fatlað fólk, fatlaða líkama og réttindi fatlaðs fólks. Þetta er bara það sem við höfum séð en svo er allt hitt sem við vitum náttúrulega ekkert um vegna þess að ég hef ekki aðgengi að því að tala við hann,“ segir Freyja.

Undirbýr nú kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu
Hún bendir einnig á það að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hafi verið fullgildur hér á landi. Í honum sé meðal annars fjallað um réttindi fatlaðs fólks við handtöku og réttindi fatlaðs flóttafólks. Hún segir þekkingarleysi Útlendingastofnunar og lögregluyfirvalda hvað varðar fatlað fólk áhyggjuefni.
„Þar er sérstaklega kveðið á um að það verði að vernda þennan hóp vegna þeirrar viðkvæmu stöðu sem hann er í. Samningurinn var undirritaður árið 2006 og fullgildur fyrir nokkrum árum síðan, þetta eru ekki nýjar fréttir, öll stjórnsýsla á að vita nákvæmlega hvað stendur í þessum samningi og á að geta verið farið að fylgja honum núna,“ segir Freyja.
Claudia Wilson lögmaður Hussein og fjölskyldu hans segir framgang stjórnvalda í málinu koma sér verulega á óvart. Hún sé nú að undirbúa kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna málsins sem snúi að því að fá bráðabirgðaákvörðun frá dómstólunum.
Claudia segir alltaf hafi legið fyrir að milliliðalaus skýrslutaka þurfi að eiga sér stað í málinu en það þýðir að nauðsynlegt sé fyrir fjölskylduna að gera grein fyrir máli sínu í dómssal. Því komi spánskt fyrir sjónir að brottvísun fjölskyldunnar liggi fyrir því þá sé verið að gera leið þeirra að milliliðalausri skýrslutöku í dómssal erfiðari.
„Það er ljóst að það er verið að fara gegn því sem talið er nauðsynlegt í þessu máli,“ segir Claudia.

Engin leið til að ná í Útlendingastofnun því skrifstofunni er lokað
Freyja segir Hussein upphaflega ekki hafa hlotið vernd vegna þess að hann hafi verið með vernd í Grikklandi. Hann hafi þá fengið verndarmeðferð þar sem réttarstaða hans skuli vera skoðuð út frá stöðu fólks í Grikklandi en það hafi ekki verið gert.
„Þegar staða fatlaðs flóttafólks í Grikklandi er skoðuð er hún bara afar slæm. Hún er slæm almennt fyrir flóttafólk en sérstaklega slæm fyrir fatlað fólk. Auðvitað verðum við að horfa á þetta heildrænt, það sem er að gerast í kvöld er bara brota brot af öllu málinu, og verður að fjalla um, rannsaka og skoða til hlítar á alla vegu,“ segir Freyja.
Freyja segir einnig skjóta skökku við að þessi ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun sé tilkynnt eftir að skrifstofum hafi verið lokað. Í þeirri stöðu sé engin leið fyrir hana eða lögmann til þess að hafa samband við stofnunina vegna málsins.
Hún segist hafa sett sig í samband við stoðdeild ríkislögreglustjóra sem sjái um brottvísunina og seint í gærkvöldi og þá verið boðið að tala við Hussein í gegnum síma með túlk. Þegar hún tjáði þeim að það væri óaðgengilegt og engin leið fyrir hana að tryggja að Hussein skilji það sem eigi sér stað segir hún lögreglu hafa sagt það eina valkostinn í stöðunni.