Ört dýpkandi lægð nálgast landið Atli Ísleifsson skrifar 3. nóvember 2022 07:42 Hiti á landinu verður á bilinu núll til sjö stig, mildast syðst. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir norðlægri átt í dag, víða kalda eða strekkingi, og dálítilli vætu norðan- og austanlands. Annars má reikna með léttskýjuðu og að það lægi heldur í nótt. Hiti á landinu verður á bilinu núll til sjö stig, mildast syðst.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að langt suðvestur í hafi er sé ört dýpkndi lægð, sem hreyfist norður á bóginn. „Því er spáð hægt vaxandi austanátt á morgun og verður orðrið hvasst við suðuströndina annað kvöld. Annars skýjað með köflum og úrkomulítið. Á laugardag er komin stíf austanátt á landinu og dálítil rigning eða slydda austantil, en annars þurrt að kalla. Hiti víða 0 til 5 stig að deginum, en sums staðar vægt frost í innsveitum.“ Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Austan og norðaustan 8-13 m/s, en 13-18 við suðuströndina undir kvöld. Skýjað með köflum og skúrir eða él á stöku stað, en þurrt vestanlands. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst. Á laugardag: Austan 8-15 m/s, en 15-20 syðst. Rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið norðvestanlands. Hiti 0 til 6 stig. Á sunnudag: Norðaustan 8-15 m/s, hvassast með suðurströndinni. Dálítil rigning eða slydda með köflum, en þurrt að kalla norðvestanlands. Hiti 0 til 5 stig. Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir hvassar norðaustlægar áttir með rigningu, einkum austantil og hægt hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Musk reynir að hafa áhrif víða: „Ekki fóðra tröllið“ Erlent Heitir því að verða betri eiginmaður og finna sér nýja vinnu Innlent Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir Erlent The Vivienne er látin Erlent Íslensku þjóðinni ofbjóði ástandið Innlent Mikið álag vegna inflúensu Innlent Hringi viðvörunarbjöllum þegar of auðvelt sé að taka lán Innlent 1166 ára gömul systkini frá Kjóastöðum og öll á lífi Innlent Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu Erlent Grautarmessa sló í gegn í Hrepphólakirkju Innlent Fleiri fréttir Vindstrengir ná mögulega stormstyrk í kvöld Slydda eða snjókoma sunnan- og vestantil Dálítil él og frost að tíu stigum Kalt og rólegt veður á fyrsta degi ársins Talsvert frost en rólegt veður þegar nýtt ár gengur í garð Segir umferðarmenninguna oft erfiða á Hellisheiðinni Snjómokstur hófst klukkan fjögur í nótt „Það versta stendur yfir áramótin“ Útlit fyrir snjókomu vestast Smálægðir keppast við að stýra veðrinu í dag Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Stíf suðvestanátt áfram ríkjandi Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Ákveðin suðaustanátt og víða snjókoma Stíf norðanátt og frost í flestum landshlutum Köldu éljalofti beint til landsins Víða kaldi og él Lægð beinir vestlægri átt til landsins Hlýnar með skúrum og slydduéljum Stormur á Austfjörðum Allhvass vindur með skúrum eða éljum Útlit fyrir allhvassan vind með rigningu Vindur á niðurleið en næsta lægð nálgast úr suðvestri Góðar líkur á rauðum jólum í Reykjavík Dregur úr vindi og úrkomu með morgninum Köld norðanátt og víða él Stöku él og vaxandi norðaustanátt Sjá meira