Hvessir seinnipartinn og þykknar upp Atli Ísleifsson skrifar 4. nóvember 2022 07:14 Hiti á landinu verður á bilinu núll til átta stig, mildast syðst. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir fremur hægri, norðlægri og síðar austlægri átt og lítilsháttar vætu á Norður- og Austurlandi og slyddu í innsveitum. Annars er búist við léttskýjuðu og fremur mildu veðri.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það hvessi seinnipartinn og þykkni upp – verði allhvasst eða hvasst syðst í kvöld. Hiti á landinu verður á bilinu núll til átta stig, mildast syðst. „Austanstrekkingur á morgun, en hvassviðri syðst. Skýjað að mestu, en dálítil slydda eða snjókoma austantil á landinu og kólnar heldur. Dregur smám saman úr vindi á sunnudag, en áfram smá rigning eða slydda fyrir austan.“ Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austan 8-15 m/s, en 15-20 syðst. Dálítil rigning eða slydda á austanverðu landinu, og með suðurströndinni, en annars skýjað með köflum og þurrt. Hiti 0 til 6 stig. Á sunnudag: Austan- og norðaustan 8-15 m/s, hvassast með suðurströndinni. Bjartviðri vestantil, en annars skýjað og lítilsháttar rigning eða slydda við sjávarsíðuna. Hiti 0 til 6 stig. Á mánudag: Stíf austlæg átt og rigning eða slydda með köflum, en bjartviðri vestantil. Hiti 0 til 5 stig. Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir austlægar- og norðaustlægar áttir með rigningu öðru hvoru og hægt hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Sjá meira