Veður

Hvasst á suð­vestan­verðu landinu fram eftir degi

Atli Ísleifsson skrifar
Milt er í veðri miðað við árstíma og má reikna með tveggja til níu stiga hita í dag.
Milt er í veðri miðað við árstíma og má reikna með tveggja til níu stiga hita í dag. Vísir/Vilhelm

Áfram halda suðaustlægar áttir hjá okkur með vætu og þá sérstaklega um landið suðaustanvert. Úrkomulítið verður hins vegar fyrir norðan.

Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að í gær hafi verið stíf austanátt með suðurströndinni, en í dag dragi úr vindi þar.

„Hins vegar hvessir á suðvestanverðu landinu og verður nokkuð hvasst þar fram eftir degi með skúrum. Seinni partinn dregur úr vindi og á morgun verður suðaustan 5-13 m/s á landinu með skúrum eða rigningu, úrkomumest suðaustantil og á Austfjörðum.

Nokkuð milt er í veðri miðað við árstíma eða um 2 til 9 stig.

Það lítur ekki út fyrir stórar breytingar hjá okkur um helgina, en spáð er suðaustanátt með vætu, sérstaklega suðaustantil, fram í næstu viku og hiti breytist lítið.“

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Suðaustan 5-13 m/s og skúrir, en rigning suðaustantil og á Austfjörðum, einkum í fyrstu. Skýjað með köflum fyrir norðan. Bætir heldur í vind suðvestantil undir kvöld. Hiti 2 til 8 stig.

Á laugardag: Vaxandi austan- og suðaustanátt, 8-15 m/s síðdegis, en 13-20 sunnantil. Rigning suðaustan- og austanlands, annars þurrt að kalla. Hiti 0 til 7 stig, mildast með suðurströndinni.

Á sunnudag og mánudag: Ákveðin suðaustan- og austanátt og dálítil væta af og til, en rigning suðaustanlands og á Austfjörðum. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag: Snýst í norðaustlæga átt með rigningu eða slyddu á Norður- og Austurlandi, en bjart að mestu suðvestantil. Kólnandi veður.

Á miðvikudag: Útlit fyrir stífa norðaustanátt með rigningu eða slyddu í flestum landshlutum. Hiti um og yfir frostmarki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×