Úrhellisrigning fyrir sunnan og að þrettán stiga hiti norðantil Atli Ísleifsson skrifar 30. nóvember 2022 07:14 Það verður vætusamt um landið sunnanvert í dag. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir úrhellisrigningu í Mýrdal og undir Vatnajökli og er búist við að hiti geti víða farið yfir tíu stig og jafnvel yfir þrettán stigum á stöku stað fyrir norðan.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að reiknað sé með ákveðinni suðaustanátt og vætusömu veðri um landið sunnanvert í dag. Hægari suðlæg átt í kvöld og dregur smám saman úr vætu. Víða verður þurrt fyrir norðan. „Góðar líkur á að hiti fari yfir 10 stig nokkuð víða og jafnvel yfir 13 stig á stöku stað fyrir norðan. Sunnanátt á morgun. Skúrir sunnan- og vestantil, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hitatölur verða þá á niðurleið aftur, en víða verður 2 til 7 stiga hiti á landinu.“ Spákort fyrir klukkan 13 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag (fullveldisdagurinn): Sunnan 8-15 m/s og skúrir, hvassast vestast, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti 2 til 7 stig. Á föstudag: Suðlæg átt, 3-8 m/s og skúrir sunnantil, stöku slydduél á Vestfjörðum, en bjartviðri norðaustantil. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst. Á laugardag: Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri, en sunnankaldi og skýjað vestast þegar líður á daginn. Hiti kringum frostmark, en hiti að fimm stigum við suðvesturströndina. Á sunnudag: Suðvestanátt, skýjað með köflum og hlýnar heldur, einkum vestast. Dálítil væta vestantil, en yfirleitt léttskýjað um landið austanvert. Á mánudag og þriðjudag: Breytileg átt, skýjað með köflum og fremur svalt.
Veður Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Sjá meira